Morgunn - 01.06.1998, Page 75
Er lif eflir dauðann?
Það er athyglisvert að stjórnandi þessi hefur lýst yfir óá-
nægju sinni með gömlu heitin, svo sem „andatrú“ og „spi-
ritistahreyfing“ (spiritualists) og vill fá ný heiti, segir
hann, sem samræmist betur nýjum viðhorfum hvað þetta
snertir og flýta þannig fyrir því að hið óhjákvæmilega ger-
ist, nefnilega að vísindamenn fari að rannsaka betur þær
staðreyndir sem þarna búi að baki. A fundunum hefur sál-
efnis fyrirbærum farið íjölgandi, hlutir efnast frammi fyr-
ir fundarmönnum, svo sem skartgripir, einnig birtast
framliðnir á fullkomlega líkamlegan hátt þannig að fund-
armenn taka í hendurnar á þeim og þreifa á líkama þeirra,
sem eru ekki síður efnislegir en þeirra eigin. Myndir frá
öðru lífsviði efnast á fundunum án þess að myndavélar
komi við sögu. Oft finna fundarmenn heilandi og endur-
nýjandi orku gagntaka sig á fundunum. Þarna segir Robin
Foy vera á ferðinni nýja tegund tækni þar sem ekki sé
lengur þörf á því orkufyrirbæri sem notað hefur verið
hingað til í þessu sambandi og kallað hefur verið útfrymi
(ectoplasma). Þessi nýja orka sé í senn orka frá hand-
ansviðinu og jarðnesk orka sem komi hvort tveggja i senn
frá fundarmönnum og orkuhjúpjarðar, umframorku, sem
sumsstaðar sé fyrir hendi. Til að geta notað þessa orku til
að framleiða efnisbirtingu hluta(efnun) sé nauðsynlegt að
sameina báðar þessar orkutegundir í réttum hlutfollum.
Til að skilja betur hvernig því er háttað er einfaldast að
líkja þessari orku við rafsegulsviðið umhverfis fundar-
menn. Til að hægt sé að nota orkuna þarf hópurinn að
mynda eins konar „orkuþak“ ofan við hópinn. Orkumagn-
ið er síðan nákvæmlega fyrirfram ákveðið sem hæfilegt til
notkunar fyrir starfshópinn fyrir handan. Það eitt að láta
einn eða fleiri einstaklinga fá aðgang að fundinum sam-
svarar því ef ein eða fleiri járnstengur kæmu inn í segul-
MORGUNN 73