Morgunn - 01.06.1998, Page 81
Er lif eftir dauðann?
fyrir því, væru jarðarbúar tengdir öðrum vitsmunaverum
innan alheims. Að þeirri niðurstöðu komst hann með því
að athuga drauma, dáleiðslu og miðilssambönd. Á þeim
tíma sem dr. Helgi lifði þóttu hugmyndir sem þessar svo
Qarstæðukenndar að margir töldu hann ruglaðan og hlógu
að hugmyndum hans. í dag mættu menn hugsa sig tvisvar
um áður en þeir hafna sambandskenningum dr. Helga.
Samkvæmt eðlisfræðinni í dag eru allar ijarlægðir innan
alheims afstæðar, og í raun ekki fyrir hendi nema frá tak-
mörkuðu sjónarmiði og samkvæmt því á engan hátt fjar-
stæðukennt að hugsa sér að lífverur innan alheims - hvar
sem þær eru - séu í sambandi sín á milli.
Þessar kenningar dr. Helga Pjeturs eru langt frá því að
virðast eins ijarstæðukenndar og þær virtust um hans
daga. Hinn efnislegi alheimur felur í sér margar víddir og
yfirljóshraðaeindir, (tachyonur) svo hann gæti vel verið
innan seilingar mannsvitundarinnar.
Gætu parasálfræðingar ráðstefnunnar í Basel kannski
eitthvað lært af þessum misskilda snillingi?
Eðlisfræðingar, sem rannsaka öreindasviðið, halda því
nú fram að mannkynið standi á barmi nýrrar heimssýnar
og hljóti óhjákvæmilega að búa sig undir mikla byltingu
varðandi skilning á eðli alheims og eiginleikum mannver-
unnar innan breyttrar heimsmyndar. Eðlisfræðingurinn
David Bohm, einn af mestu hugsuðum nútímans á sviði
kjarneðlisfræði, veitir sýn inn á þá nýju heimsmynd sem
nú er að opnast. Kenning hans um upplýsingasvið handan
orku og efnis sem stýri rafeindasviðinu bendir á til-
vistarrými einstaklingsvitundarinnar innan kjarneðlis-
heimsmyndarinnar, en vitundin er jú einmitt safn upp-
lýsinga. Hér er komið inn á svið þar sem ekki lengur
Framhald á bls 144
MORGUNN 79