Morgunn - 01.06.1998, Page 98
Miðlakynning
Beðið fyrir látnum
í janúar 1997 hafði Guðrún Skúladóttir samband við
Hafstein og bað hann að biðja fyrir syni sínum, sem var
tveggja og hálfs árs gamall. Hún hafði tekið eftir því að
hann varð stundum skyndilega hræddur og það að tilefn-
islausu. Taldi hún greinilegt að hann sæi eitthvað, sem
gerði hann hræddan.
Tekur Hafsteinn málið fyrir og bað fyrir syni hennar.
Varð hann þá var við það sem sonur Guðrúnar sér og
reyndist það vera karlmaður á þrítugs aldri, mjög góðleg-
ur og auðsjáanlega farinn fyrir ekki löngu síðan, eftir
klæðaburði hans að dæma.
Hefur Hafsteinn samband við Guðrúnu og segir henni
frá þessu og jafnframt að þarna sé ekki neitt illt á ferðinni.
Þessi maður þurfi bara á hjálp að halda.
Guðrún hefur svo samband við Hafstein nokkrum dög-
um síðar og er hún þá búin að tala við fleiri íbúa í húsinu,
en hún býr í nýlegri blokk í Kópavogi. Hafði komið í ljós
að fleiri íbúar í blokkinni höfðu sömu sögu að segja og
íbúar í næstu blokk líka.
Við athugun kom í ljós að maður á þrítugsaldri, sem
hafði unnið hjá verktakanum er byggði blokkirnar, hafði
orðið fyrir vinnuslysi og látist. Hafði hann verið giftur
maður og tveggja barna faðir.
Bað Hafsteinn fyrir honum og þegar hann er að því þá
sér hann hvar tvær bjartar verur koma til mannsins og taka
undir sitthvorn handlegg hans og leggja af stað með hann
upp dálítinn halla og er þetta eins og í nokkurri móðu.
Skyndilega sér Hafsteinn svo skil á móðunni og er eins og
að komið sé upp úr vatni. Þá blasir við mjög skýrt lands-
lag með fallegum görðum og tjörnum, en það, sem vekur
mesta athygli hans, er fallegí hús,nokkuð stórt og minnir
96 MORGUNN