Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.01.1952, Blaðsíða 20
Friðfinnur Guðjón-sson
og Gunnþórunn sem Jón
bóndi og kona hans í
Fjalla-Eyvindi eftir -Jó-
lwnn Sigurjónsson, en
þau liafa leikið saman
oftar en nokkrir aðrir
núlifandi leikarar og
fáir njóta meiri vinsælda
en þau.
★
★
Gunnþórunn Halldórsdóttir lék í fyrsta
skipti 6. janúar 1895. Það var hlutverkið
Sigríður frá Stuðlabergi í sjónleik Indriða
Einarssonar, Systkinin i Freinstadal, sem
leikfélagið í Breiðfjörðshúsi sýndi. Tveim
árum síðar gerðist hún ásamt nokkrum
félöguin sínum og leikendum frá Leik-
félaginu í Góðtemplarahúsinu stofnandi
Leikfélags Reykjavíkur, og er hún nú
heiðursfélagi þess félags. Á fyrstu árum
L.R. var hún ein mikilvirkasta leikkona
félagsins, lék 38 hlutverk stór og smá,
en frá árinu 1905 og til 1930 lék hún mest-
megnis utan Leikfélagsins. Á þessum ár-
um kom hún fram í velflestum revyum,
sem hér voru sýndar, og ávann sér orð
sem langfremsta leikkona bæjarins í gam-
ansömum hlutverkum. Yngsta kynslóð
áhorfenda nú þekkir þó hvorki hina mik-
ilvirku blómarós byrjunaráranna né rev-
yu-drottningu þriðja áratugs aldarinnar,
heldur hina stóébrotnu skapgerðarleik-
konu, jafnvíga á gaman og alvöru, sem
kemur fram á leiksviðiuu eftir 1930, þeg-
ar Gunnþórunn tók aftur til starfa í sínu
gamla félagi. Já, á áttræðisaldri kastaði
20 ÚTVARPSTÍÐINDI