Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Side 5
Tnlnð við úthlutunarnefnd
Nokkrar meinlausar samvizkuspurning-
ar lagðar íyrir skömmtunarmenn lista-
mannalauna.
Þorst. Þorsteinsson
alþm.
ÚTHLUTUN listamannafjár er alltaf
töluverður viðburður, og um fátt er meira
rætt a. m. k. næstu dagana eftir að skýrsla
úthlutunarnefndar er birt, einkum þó í
hópi listamannanna sjálfra og mennta-
manna og annara þeirra, sem einkum láta
sig skipta þessi mál. Þegar úthlutunar-
nefndin hafði lokið störfum fór ég á fund
nefndarmannanna með miða, er á voru
nokkrar af þeim spurningum, sem komu
í huga minn, og þó kannski ekki þær, sem
ég hefði helzt viljað fá svarað, þær bann-
aði háttvísi blaðamannsins mér að nefna.
Allir tóku nefndarmennirnir erindi mínu
vel. Hér birtast nú spurningarnar og svör-
in:
Þorsteinn Þorsteinsson alþingismað-
ur er aldursforseti nefndarinnar og
formaður hennar:
— Hve miklu fé var úthlutað í ár?
Teljið þér að þessi upphæð sé við hæfi?
— I ár var úthlutað 609 þúsund krón-
um til skálda, rithöf. og annarra lista-
manna, og er það 108 þúsund krónum
hærri upphæð en í fyrra, held ég að það
verði að teljast við hæfi.
— Eins og kunnugt er hefur alþingi
falið fjögurra manna nefnd að úthluta
listamannalaunum. Hvað álitið þér að það
telji að eigi að vera fyrsta boðorð úthlut-
unarmannsins?
— Það, að dæma menn eftir verkum
þeirra og taka þó eitthvert tillit til allra
aðstæðna.
— Teljið þér ekki það fyrirkomulag
varhuganlegt að úthlutunarnefnd skuli
vera skipuð fulltrúum stjórnmalaflokka
og að meira eða minna leyti mönnum,
sem standa mitt í stjórnmálabaráttu?
— Nei. Ég tel ekkert óeðlilegt við það
að alþingi kjósi í þessa nefnd með hlut-
fallskosningu fulltrúa frá stjórnmála-
flokkunum, en auðvitað mega ekki illvíg-
ar flokkadeilur eiga sér stað innan nefnd-
arinnar eða hafa áhrif á störf hennar,
enda hefur sú ekki orðið raunin í þau
skipti, sem ég hef átt sæti í úthlutunar-
nefndinni. Mér virðist að pólitíkin þar
hafi verið meir í orði en á borði. Ég tel
þá skoðun hins vegar mjög varhugaverða
að nefnd þessa eigi endilega að skipa
menn, sem eru skoðanalausir í stjórnmál-
um. Hitt er auðvitað galli, að í nefndinni
skuli vera fjórir menn en ekki fimm. Það
er mjög óþægilegt að oddamanninn skuli
vanta. Þá gerir það nefndinni mjög erfitt
um vik að hún skuli vera kosin aðeins til
eins árs í senn en ekki t. d. fjögurra ára.
Með þessari skipun, sem nú er á höfð,
getur hún engar breytingar gert að ráði,
ÚTVARPSTÍÐINDI 5