Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 22

Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 22
Olav Kielland. OLAV KIELLAND ráðinn liljómsveit- arstjóri Sinfóníu- hljómsveit- arinnar. Starfsemi Sinfóníuhljómsveitarinnar hefur legið niðri um skeið, sökum 'þess að ekki hefur að svo stöddu náðst sam- komulag við hljóðfæraleikaranna um starfskjör þeirra. En vonir standa til, að úr þessu rætist á næstunni, og tnun hljóm sveitin þá láta til sín heyra í útvarpinu, bæði í sérstökum útvarpsdagskrám og í útvarpi frá opinberum tónleikum í Þjóð- leikhúsinu Hljómsveitarstjórnin hefur ráðið norska hljómsveitarstjórann Olav Kielland liing- að til tveggja mánaða starfs í vor, frá miðjum apríl fram til miðs júní. UM STEFÁN FRÁ HVÍTADAL Dr. Sveinn Berg- sveinsson flytur er- indi Stefán frá Hvítadal. DR. SVEINN Bergsveinsson mun flytja tvö erindi um Stefán frá Hvítadal. Sveinn er kunnur fyrir leikrit, smásögur og kvæði 22 ÚTVARPSTÍÐINDI er birzt hafa í útvarpi og tímaritum, eink- um þó hermiljóð og þankabrot, sambland gamans og alvöru, er komið hafa í Spegl- inum. Ennfremur hefur hann síðustu miss eri, ritað nokkuð um leiklist og bók- menntir í timaritið Líf og List. Sveinn var við háskólann í Þýzkalandi, er samgöngur tepptust á stríðsárunum og þar varði hann doktorsritgerð sina. Hann er mál- fræðingur, en mun og hafa lagt stund á bókmenntafræði. Hann hefur nýlega ver- ið ráðinn til að sjá um útgáfu nýyrða í ísl. tungu. Erindi um ísl. skáld er nýnæmi fvrir út- varpshlustendur og væri ánægjulegt til þess að hyggja, ef við færum bráðum að eignast, þó ekki væri nema einn bók- menntafræðing, sem ekki væri vakandi og sofinn aftur í grárri fornöld. Að gefnu tilefni voru sumir farnir að halda, að við þyrftum að leita til annarra þjóða manna til að tala fyrir okkur og skrifa um nú- tímabókmenntir af tilhlýðilegu háskóla- viti. ★ Tvö leikrit. FLUTT verður bráðlega leikrit eftir Bérnhar.d Shaw og ber það heitið Sonur stjarnanna og fjallar um Napóleon. Shaw var sem kunnugt er enginn keisaradýrk- ari og eykur sjaldan við dýrðarljóma sögupersónu sína. Hér sem fyrr beitir hann sínu miskunnarlausa háði og gagn- rýnisaugum. Leikrit þetta telzt til hinna meiri eftir þennan merkilega brezka snilling, sem lést, eins og flestir vita, á síðasta ári í hárri elli. Þýðingu leiksins hefur séra Gunnar Árnason frá Skútustöðum gert. Leikstjóri verður Lárus Pálsson. ★

x

Útvarpstíðindi : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/727

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.