Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 38

Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 38
Úr greinargerð úthlutunarnefndar 1951. ÚR GREINARGERÐ úthlutunamefndar 1951, samanber viðtal við Þorst. Þorsteinsson: „Eins og öllum er kunnugt hefur leiklistin í landi voru átt örðugt uppdráttar til skamms tíma, verið borin uppi við lítinn opinberan styrk af frjálsum samtökum leikaranna sjálfra. — Úthlutun af listamannafé til leikara hef- ur á undanförnum árum borið þess merki, að hún var í rauninni ekki annað en lítilfjörleg uppbót á láglaun þeirra í þessu starfi. Nú er þessi að- staða gerbreytt. Þau tíðindi hafa nú gerzt, að ríkið liefur tekið leiklistina sérstaklega á sína arma, boðið öllum hinum færustu leikkröftum landsins föst og eftir atvikum, vel launuð störf, er gera þeim fært að Iielga leiklistinni alla krafta sína við hin beztu skilyrði. Þvilík kjör hafa engri stétt listamanna í þessu landi nokkm sinni feng- in verið, enda er þess nú að vænta, að leiklistin eigi mikið blómaskeið í vændum. Nefndin lítur svo á, að þar sem rikið sér fyrir því að mikið fé er lagt til þessarar listgreinar og listamanna sér i lagi, sé burtu fallin að verulegu leyti ástæðan til þess að veita leikurunum reglulegan auka- styrk af ríkisfé. Þó telur nefndin rétt, að veitt sé árlega nokkurt fé til leikará í viðurkennincar- skyni. Um fjölda slíkra styrkja, upphæð þeirra og hverjir hljóta, verður að fara nokkuð eftir á- streðum hverju sinni.“ Sök sér væri nú að viðurkenna þetta sjónar- mið, ef því væri fylgt út í æsar. En hvers eiga þeir leikarar að galda, sem ekki hafa komist að í musteri leiklistarinnar og hafa engu hærri tekjur en áður fyrir listþjónustu sína? Eða má það teljast öruggt að það séu allt saman skuss- ar, sem ekki eru ráðnir hjá Þjóðleikhúsinu? Og er það ekki móðgandi fyrir leikara, eins og Gunnþórunni og Friðfinn, að verða að skipa neðsta launaflokk? Nógu gömul ættu þau þó að vera til að hafa þokast örlítið hærra og í litlu hlutfalli eru laun þeirra við mat þjóðarinnar á störfum þeirra. — Innskot ritstjórans. „Þar sem upphæð sú, er Alþingi veitir til skálda, rithöf. og listam., hefur verið lún sama frá ári til árs um hríð, er óhjákvæmilegt, að fjár- veitingar fyrst og fremst í lægri flokkum séu breytilegar frá ári til árs. Við efri flokkana, sem skipaðir eru yfirleitt þeim, sem til langs tíma hafa notið fjárlagastyrks frá þinginu, eða með öðrum hætti orðið þar fastir í sessi, gildir það, að engin nefnd, sem kjörin er frá ári til árs, getur þar nokkru verulegu um þokað, enda eiga þar í hlut yfirleitt mjög vel metnir lista menn vorir. Hitt veit enginn betur en sá, sein fylgzt hefur með þessum málum frá ári til árs, hversu erfitt er að gæta þess, að góðir og vax- andi kraftar verði ekki fyrir borð bornir vegna fjárskorts. Úrræði néfndarinnar verður þá helzt að veita mönnum nokkra úrlausn ár og ár í senn.“ Rúmið leyfir ekki að þessu sinni að hér fylgi hugleiðingar um úthlutunina og spjall um sjón- armið þau, sem fram koma í viðtölunum við út- hlutunarnefndina. Eg mun víkja að því i næsta hefti. Gaman héfði og verið að minnast á fund, sem Stúdentafélag Reykjavikur hélt í lok síðasta mánaðar. Þar voru hin svonefndu atómskákl talin hættuleg máli þjóðarinnar og menningn og þau, sem ekki ríma, óalandi og óferjandi. Með þetta verðum við að bíða næsta heftis. \ Alii'ifaincsta aug'lýsiiig'iii Útvarpið flytur auglýsingar og tilkynningar til landsmanna með skjót- um og áhrifamiklum hætti. Þeir, sem reynt liafa, telja útvarpsauglýs- ingar áhrifamestar allra auglýsinga. AUGLÝSINGASKRIFSTOFA ÚTVARPSINS. Sími1095. I 38 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/727

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.