Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 9

Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 9
Fast eða sekur skóggangsmaður eins og ýmis beztu skálcl nýlendnanna. Hægt væri að skrifa heila bók um þetta mál og því líklega jafngott að hætta hér, áður en heftið fyllist! — Telur þú það ekki ótækt, að blanda saman útblutunarmálum allra listgreina og láta sömu menn u :n fjalla og dæma? — Jú, bezt væri að sérfróðir menn í listum og bókmenntum fjölluðu um lista- mannalaun, enda þótt þeir yrðu ekki ó- skeikuljr og jafnvel lærðustu menn geti verið haldnir pólitísku ofstæki, skrítinni sérvizku og svörtustu fordómum. — Hver hefur verið stefna þín í úthlut- unarmálunum og hvernig sýnist þér horfa nú? — Núverandi fyrirkomulag úthlutun- ar listamannalauna var upp tekið í and- stöðu við sósíalistaflokkinn og hefur hann þing eftir þing flutt frumvörp á Alþingi, um aðra skipun þessara mála og hafa all- ir fulltrúar flokksins í úthlutunarnefnd reynt að sveigja úthlutunina í sömu átt. Bæði á Alþingi og í nefndinni hafa sósí- alistar lagt til að fylgt væri reglum, þeim sem felast í frumvarpi um listamanna- laun, er rætt hefur veríð og samþykkt ein- róma af öllum deildum Bandalags ís- lenzkra listamanna, en þær tillögur hafa litla áheyrn fengið. Nú er það að verða almennt sport hjá foringjum þeirra flokka sem alla ábyrgð bera á fyrirkomulagi út- hlutunarinnar að sanna galla hennar og ætti að mega vænta þess að tillögur um heilbrigðari aðferðir fari að fá meiri byr á Alþingi en hingað til. ★ Helgi Sæmundsson, blaðamaður, er nýr maður í útlilutunarnefnd, lengi hafði Ingimar Jónsson skólastjóri ver- ið fulltrúi Alþýðuflokksins: — Ég hef valið þig til að svara um- fangsmestu og e. t. v. erfiðustu spum- ingunni, er ég legg fyrir ykkur fjórmenn- ingana. Ekki er það þó vegna þess að ég telji þér beri meiri skylda til greiðari svara en hinum. En ég veit að við höf- um báðir fylgst með úthlutunarmálunum síðustu 15—20 árin af töluverðum áhuga. Við höfum veitt því athygli hversu mis- skipt hefur verið, hversu sumir hafa set- ið fastir í sessi, þrátt fyrir litla afburði á stundum, að okkar dómi, og þokast hærra og hærra meðan aðrir, sem við töldum jafnverðuga eða verðugri, hafa verið settir hjá eða af þeim tekið, það litla sem þeir 'höfðu hlotið. Auðvitað höf- um við ekki alltaf verið sammála um þetta í einstökum atriðum. En hvað seg- ir þú nú um réttlætið, er þú lítur til baka til áranna, sem við munum? — Ég hef verið óánægður með úthlut- unina og oft stungið niður penna til að gagnrýna hana. Mér hefur fundizt hún handahófsleg og undrazt það, hverjar hafi verið forsendur úthlutunarnefnd- anna. Hlutdrægnin hefur verið mikil og pólitísk sjónarmið stundum mjög áber- andi. Þó hefur þetta lagazt nokkuð síð- ustu árin, en samt ekki nóg. Mér liefur alltaf fundizt, að megintilgangur úthlut- unarinnar eigi að vera sá að gefa beztu listamönnum kost á viðunanlegum starfs- skilyrðum og hlúa að hinum efnilegustu úr hýpi þeirra ungu. En allt of mikið af þessu fé hefur farið til aðila, sem lítið eða ekkert hafa sér til ágætis, og það hefur auðvitað bitnað á hinum. — Við, sem málið snertir, reynum að telja okkur trú um að úthlutunarnefndin á hverjum tíma leggi listrænt mat á verk rithöfundanna. Sumir okkar ætla þó að ýnis annarleg sjónarmið ráði nokkru um, persónulegur áróður og jafnvel stjórn- ÚTVARPSTÍÐINDI 9

x

Útvarpstíðindi : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/727

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.