Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 21
svipbrigði og fasi. Þekking, menntun og
vinna hefur skapað Ijósa og lifandi list
hans, með smekkvísi hans, upplagi og
uppeldi, hann er upprunninn úr leikara-
heimili og leikhúsið hefur verið heimur
hans alla tíð.
Poul Reumert hefur öðrum fremur
tengt saman leiklist Norðurlanda. Hann
hefur leikið stór hlutverk um öll Norður-
lönd og lesið upp mjöð víða. Hann hefur
hrifið fólk með sér. Hann hefur verið
ágætur og síungur fulltrúi fjölbreyttrar,
frjósamrar og fagurrar listar.
/ tilefni af fimmtíu ára leikafmælinu efndi
Konunglega leikhúsiS í Kaupmannahöfn,
til ■sýninga á sex sjónleikfum, með Poul
Reumert í áðalhlutvérkum þeim, er liann
hefur áður getið sér livað mestan orðstír
ftjrir. Eru myndir þær, er hér birtast af
honum í fjórum þeirra: Leikarinn í sjón-
leiknum „En sjæl efter döden'. 2. Triquit í
óperu Tschaikowskys, „Eugen Onegin".
3. Rosiflengius í sjónleik Holbergs: „Det
lykkelige skibbrud“. 4. Swedernhielm í
samnefndu leikriti Hjalmar Bergmans. —
ÚTVAEPSTÍÐINDI 21