Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 24

Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 24
ÞÆTTIR ÚR rr Aíengisvarnír ÓLA ÞEGAR Áfengisvarnarnefnd Reykjavíkur tók til starfa ritaði liún forsetum AJþingis og bæjar- stjóm Reykjavíkur og mæltist til þess að sá siður væri lagður niður, að veita áfengi í opin- bemm veizlum. Benti nefndin á að fordæmi það, er bið opinbera gæfi með þessu, væri hættu- legt, vegna þess að eftir höfðinu dönsuðu lim- irnir. Ekki fékk nefndin nein svör frá forsetum AJþingis, en iiæjarstjórn samþykkti að gera enga breytingu á um veizluhöld sín á meðan Alþingi og ríkisstjóm veittu áfengi í veizlum sínum. Þar dönsuðu limirnir eftir liöfðinu. Enda þótt nefndinni bærist engin svör frá þessum aðiljum, fékk hún þó svör frá liinum og öðmm, sem vildu Játa þetta mál til sín taka. Og það var aðalviðkvæðið hjá þeim, að sóma síns vegna mættu íslendingar ekki hætta við að liafa áfengi á borðum í opinberum veizlum. AHar menningarþjóðir teldi slíkt alveg sjálf- sagt, og það væri laglegt til afspumar, eða hitt þó heldur, að Islendingar byði góðum gest- um sínum í veizJur þar sem ekkert áfengi væri. Slíkan skrælingaskap gætu þeir ekki látið unr sig spyrjast. Þeirn mönnum, sem þannig hugsa og halda að áfengisnevzla sé menningarbragur, skal bent á nærtækt dæmi til umhugsunar. Fyrir skemnistu fóru þau Elísabet ríkiserfingi — nú drottning — Breta og maður hennar, hertoginn af Edinborg, í opinbera heimsókn til Kanada. í höfuðborg Kanada, Ottawa, hélt borgarstjórnin þeim virðu- lega veizlu, en þar var ekkert áfengi á borð- um. Eftir kenningum ýmissa manna liér, ætti Kanadamenn að hafa orðið sér til háborinnar skammar með þessu. En hvorki bólaði á þeirri skoðun þar vestra né í Englandi, og ekki er þess getið að hinir tignu gestir hafi talið að sér væri óvirðing svnd með þessu. En þess ber að geta, að þetta var engin undantekning. Borg- arstjórnin í Ottawa hefur samþykkt, að veita aldrei vín í þeim veizlum er hún heldur, og 24 ÚTVARPSTÍÐINDX hún brá ekki út af því þótt ríkiserfingi Jands- ins ætti í hlut. Annað hvort er nú, að þeir í Ottawa standa á mikið lægra menningarstigi en við, eða þá að það er misskilningur hjá okkur að áfengisveit- ingar sé nauðsynlegur menningarvottur. En heilbrigð dómgreind ætti að geta úr því skor- ið hvort réttara sé. Áfengisvarnanefnd Reykjavíkur hefur löng- um átt í stímabraki út áf skilningi á 17. grein Áfengislaganna um undanþágur til vínveitinga, en þar segir: „Ekkert félag manna má hafa um hönd í félagsskap áfengisveitingar né heldur má áfengisnautn fara fram í félagsherbergjum, hvort sem þau eru í húsi félagsins eða annara, nema leyfi lögreglustjóra komi til“. I reglugerð um sölu og veitingar áfengis eru ákvæði um það, hve nær slíka undanþágu má veita og segir þar: „Lögreglustjórar geta ekki neytt heimildar til að leyfa að áfengi sé um hönd haft í félagsskap, nema í veizlum, sam- sætum eða öðrum slíkum samkvæmum, þar sem sýnt er að félagsskapurinn í heild eða ein- stakir þátttakendur í honurn hafa ekki fjárhags- legan hagnað áf því að vínnautn sé urn hönd höfð. Slík leyfi má ekki veita skemmtifélögum. Ekki má lieldur veita slík leyfi til vínnautnar i samkvæmum, sem haldin eru á veitingastöð- um, ef ætla má að til þeirra sé stofnað í tekju- skyni fyrir veitingahúsið". Áfengisvarnanefnd gat ekki annað séð en að ákvæði þessi væru nægilega skýr, og jafnframt þóttist hún sjá að farið liefði verið langt út fvrir ramma þeirra með undanþágum hér í Revkja- vík. Taldi hún það frekar ólag, sem hefði á lagst, heldur en hitt, að þessi ákvæði væru snið- gengin af ásettu ráði. Hugði hún því að unnt mundi að stöðva þessar undanþágur að mestu leyti. En hér fór sem oftar að hægar er að koma ólaginu á en að afnema það. Þó hefur þessum undanþágum fækkað nokkuð. Árið sem leið

x

Útvarpstíðindi : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/727

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.