Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 18

Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 18
Séra Óskar J. Þorlákss. Frá Hveragerði SKÓGRÆKTARFÉLAGIÐ í Hvera- gerði helgar sér vöku í útvarpinu. Lesa þar upp rithöfundarnir séra Gunnar Benediktsson, Valdís Helgadóttir, séra Helgi Sveinsson, Kristmann Guðmunds- son, Kristján frá Djúpalæk og Jóhannes úr Kötlum, en þessi skáld eru öll búsett í Hveragerði. Þá svngja þeir Magnús A- gústsson og Gunnar Magnússon tvísöng. Ennfremur verður kórsöngur og leikþátt- ur fluttur. ★ Frá tónlistardeildinni. BJÖRN Ólafsson og Árni Kristjánsson leika sónötu í c-moll fvrir fiðlu og píanó, op. 30 nr. 2, eftir Beethoven. Þeir léku þessa sónötu á tónleikum Tónlistarfélags- ins í Austurbæjarbíó nýlega og hafa hlot- ið mikið lof fyrir. Talin ein fegursta fiðlu- sónata Beethovens. ★ Egill Jónsson og Rögnvaldur Sigurjóns- son leika sónötu í Es-dúr fvrir klarinett og píanó, op. 120 nr. 2. eftir Brahms. Önnur af tveimur klarinett-sónötum tón- skáldsins. Báðar meðal allra merkustu verka. sem samin hafa verið fyrir það SÉRA ÓSKAR J. Þorláksson mun flytja erindi er hann nefnir Siglufjörður að sumri og vetri, en í fáum stöðum á land- inu munu umskipti á árstíðum vera meiri en þar. Fannfengi er þar mikið flesta vetur og byljir endast dögum saman, en sumardýrð og veðurblíða er aftur á móti ríkuleg. Séra Óskar var hátt á annan ára- tug prestur á Siglufirði og það eru svip- myndir frá þeirri tíð, sem hann ætlar að bregða upp fyrir útvarpshlustendum. hljóðfæri. Egill og Rögnvaldur hafa æft og undirbúið verkið sérstalega til flutn- ings í útvarpið. ★ Flutt verður sónata fyrir trumpet og píanó eftir Karl Ó. Runólfsson. Paul Pampichler og Wilhelm Lanzky-Otto leika. Þetta verk var nýlega valið til flutn- ings á alþjóða tónlistarhátíð í Salzburg næsta vor, og hafa blaðafregnir um það vakið nýja athygli á verkinu. Sónatan var leikin á plötur fyrir útvarpið fyrir nokkru, og hefur áður verið flutt í út- varpið. ★ Meðal kammertónverka, sem verða munu á dagskrá útvarpsins á næstu vik- um má sérstalega nefna strengjakvartett eftir Ravel, sem þeir Björn Ólafsson, Josef Felsman, Jón Sen og Einar Vigfús- son leika, og kvintett eftir Johan Christi- an Bach fyrir flautu, óbó, fiðlu, celló og píanó, sem Ernest Normann, Paul Pud- elski, Þórarinn Guðmundsson, Þórhallur Árnason og Fritz Weishappel leika. ★ Vinsælir söngvarar. GUÐMUNDUR Jónsson söngvari hefur undanfarið dvalizt á Norðurlöndum og m. a. sungið í útvarp í Stokkhólmi, Osló 18 ÚTVABPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/727

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.