Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 19

Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 19
Og Kaupmannahöfn (söng í Kaupm.h. 26. febrúar). Aður en hann fór utan, söng hann nokkur lög á plötur fyrir útvarpið og verður söngur hans á dagskrá útvarps- ins bráðlega. Þá verða einnig flutt í útvarpið innan skamms sjö lög eftir Sigfús Halldórsson, sem Ævar Kvaran söng á plötur áður en hann fór vestur um haf nú fvrir skemmstu. Höfundurinn leikur sjálfur undir. Utvarpstíðindi vonast til að geta bráð- lega birt grein um Sigfús og sagt nánar frá viðfangsefnum hans. Meðal söngmanna, er láta til sín heyra í útvarpinu á næstunni, er Sigurður Ólafs- son, sem útvarpshlustendum er að góðu kunnur og hefur undanfarið komið fram í mörgum sönghlutverkum í Þjóðleikhús- inu. ★ Um sænska skáklkonu. ÞÓRUNN Magnúsdóttir rithöfundur hefur undanfarna vetur flutt athyglis- verð, fróðleg og skemmtileg erindi um sænskar skáldkonur og kvenréttindafröm- uði. 'A næstunni flytur hún tvö slík til viðbótar, eru þau um Önnu Charlotte Leffler, en hún er fædd 1849, og var sam- tímakona Viktoríu Benediktsson, en kom langtum fyrr fram á sjónarsviðið, sem rit- höfundur og átti sér því lengri rithöfund- arferil, þó að ekki yrði liún heldur lang- líf. Þórunn s,egir: Eins og Viktoría Bene- diktsson, var hún talin til „áttundartugs höfunda" Svía, en svo voru þeir höfund- ar nefndir, sem fóru að láta að sér kveða um og eftir 1880 og fylgdu að mestu þeirri stefnu, sem spámaður þeirra Au- gust Strindberg markaði. Þetta voru raun- sæisskáld og allróttæk, enda þurfti mörgu Þórunn Magnúsdóttir rith. að bylta til og konurnar fundu ekki hvað sízt hvar skórinn kreppti að. Þetta bók- menntatímabil er mjög heillandi til rann- sókna. Það er eins og vorleysingar væru þá að brjótast fram í þjóðlífinu. Anna Charlotta Leffer var um margt gæfumanneskja, hún var alltaf að þrosk- ast og bæta við sig sem rithöfundur. Hún sóttist ekki eftir að vinna sér almennar vinsældir og frama með ritstörfum sínum, heldur telfdi oftast á tæpasta vaðið með hvorttveggju. Henni var fyrir öllu að vekja mannlund, víðsýni og frjóan lífs- skilning hjá lesendum sínum. Frá Svíþjóðu hinni köldu lá leið henn- ar suður í heim. Síðustu ár ævi sinnar lifði hún mjög hamingjusömu lífi með seinni manni sínum Itölskum hertoga og syni þeirra, útsýnið úr höll hennar var ævin- týralega fagurt, Napolíflóinn og hið sí- gjósandi eldfjall Vezovius, sem sendi hvítan gufustrókinn upp mót fagurbláum himni. ÚTVARPSTÍÐINDI 19

x

Útvarpstíðindi : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/727

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.