Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Qupperneq 6
því ekki er að vita nema önnur tilhögun
verði á þessu höfð að ári.
— Hvað segið þér um úthlutunina í
ár?
— Ég er ekki fvllilega ánægður með
hana. Þó hafa ýrnis vansmíði frá fyrri ár-
um verið lagfærð. Yfirleitt hefur það ver-
ið vandi okkar., að reyna að bæta fyrir það
næst, sem við sjáum eftir á að betur hefði
mátt fara eða gátum ekki við ráðið ýmissra
hluta vegna. Til dæmis má búast við því,
að ef sömu menn myndu um þetta fjalla
næsta ár, yrði þeim kippt inn fyrir, sem
næstir stóðu nú dyrum hvers launaflokks.
Ég vil svo að lokum minna á ummæli
þau, er fylgdu úthlutunarskýrslunni frá
nefndinni í fvrra, þau standa enn í fullu
gildi.
★
Þorkell Jóhannesson, prófessor, er
ritari nefndarinnar:
— Hvað segið þér um Akademíufrum-
varpið? Teljið þér að hin fyrirhugaða
Akademía ætti að fjalla um úthlutun
listamannafjár?
— Björn Olafsson menntamálaráð-
herra hefur sýnt lofsverðan áhuga á því
að vernda tungu vora og efla islenzk fræði
og listir, svo að frábært má kalla. Með
frumvarpi sínu um Akademíu íslands,
ákvæði um nafnbreytingu til íslenzkrar
venju þeirra manna útlendra, sem öðlast
vilja þegnrétt hér á landi, stuðningi til
aukinna fjárframlaga til listamanna og
fjárveitingu til útgáfu íslenzks nývrða-
safns, hefur liann sýnt, að hann vill og
þorir að gera kröfur til þings og þjóðar
um efni, sem sjaldan heyrist um rætt á
flokksþingum eða í samþykktum þing-
málafunda. Mun sannast, að þtjóðin í
heild sinni fylgir fast og styður slíka við-
leiti og kann að meta hana. Ég er viss
um, að gott myndi af því leiða, ef vel
tækist að samstilla áhuga og starfskrafta
nokkurra valinna manna til úrlausnar
þeim verkefnum, sem akademíunni eru
helzt ætluð. — Hitt tel ég varhuga-
vert, að fá þeirri stofnun í hendur
það verk að skipta listamannafé. —
Mín skoðun er sú, að slíkt sé lítt fallið
til þess að auka vinsældir eða lofsamlegt
tal um nokkurn mann eða stofnun, en
miklu varðar, að akademían öðlist hvort-
tveggja í sem ríkustum mæli og verði því
ekki spillt með því að fela henni óvinsæl-
an starfa. Skal það ekki nánar rætt. En
eitt vildi ég samt minnast á, úr því þetta
efni ber á góma: mörgum líkar illa nafnið
Akademía og það með réttu. Ætti að velja
slíkri stofnun betra nafn. Hún ætti að
bera íslenzkt heiti. Ég legg til, að hún
verði nefnd Bragþingi Islands. Bragur
þýðir í fornu máli hið æðsta, fegursta og
bezta, auk þess sem það er heiti skáld-
skapar. Allt má þetta með réttu tengjast
nafni stofnunar, sem það hlutverk er
ætlað að standa vörð um tungu, listir og
fræði þjóðarinnar. Bragþingi er tungu-
tamt orð, og eigi mun neinum dyljast, að
bragþingismaður er skemmtilegra orð en
akademíumeðlimur, sem annars má ætla
að yrði heiti þeirra manna, sem þar tæki
sæti.
— Hver ætt'i að yðar dómi að vera
helztu einkenni þeirra manna, sem hljóta
eiga listamannalaun?
— Þessari spurningu vil ég helzt ekki
reyna að svara, 'því vel mætti svo fara að
ýmsum virtist, að svarið kæmi lítt heirn
við niðurstöður úthlutunarnefndar fyrr
og síðar! Ef litið er yfir þann hóp manna,
sem árlega æskir launa af listamannafé,
þá mundi fleirum en mér sýnast, að
6 útvabpstíðindi