Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Blaðsíða 20
Leikafmæli Poul Reumerts
Ágrip útvarpserindis,
er Vilhjctlmur Þ. Gíslason flutti.
H.yrey.yr.
'
POUL REUMERT á nú 50 ára leikaf-
mæli. Þess er minnst með hátíðahöldum í
leikhúsi hans, Konunglega leikhúsinu í
Kaupmannahöfn. Þjóðleikhúsið hér hefur
einnig gert ráðstafanir til þess að flytja
honum virðingu og kveðjur á afmælinu.
Poul Reumert er einn af ágætustu leik-
urum síns samtíma. Hamrfór ungur að
leika, þegar hann var 18—19 ára, nýbak-
aður stúdent, og lék fyrst í enskum gam-
anleik, „Þegar við vorum 21 árs“, undir
stjórn William Block. Um þessar mundir
voru starfandi við dönsk leikhús ýmsir
ágætir menn og þá og lengi síðan sóttu
menn hérlendis fyrirmyndir leiklistar
sinnar til Danmerkur þó að norsk leikrit
væru einnig vinsæl.
Fyrsta höfuðhlutverk sitt telur Reu-
mert sjálfur Meyer í „Indenfor murene“
eftir Henri Nathansen (1912) og nokkru
seinna hófst samleikur hans og Bodil Ip-
sen í mörgum ágætum leikritum. Um
þessar mundir lék Reumert einnig í ís-
lenzku leikriti, Höddu Pöddu Guðmund-
ar Kamban. Lengst hefur hann starfað
við Konunglega leikhúsið í Höfn og ver-
ið gestur á leiksviðum allra liöfuðborg-
anna á Norðurlöndum, m. a. hér í Reykja-
vík. Hann hefur einnig leikið á frönsku
í þjóðleikhúsinu í París og hlotið fyrir
mikið lof þar í landi.
Hlutverk Reumert hafa verið mörg og
margvísleg. Hæfileiki hans til þess að
bregða sér í hin furðulegustu og fjar-
skyldustu gerfi er undraverður, og til þess
að lifa sig inní sálarlíf og látbragð per-
sóna sinna. Hann hefur sjálfur lýst því
ágætlega, hvernig leikarinn þarf að vera
svo að ekkert mannlegt sé honum óvið-
komandi, þarf að geta farið milli alda
og landa og sett sig inní allar skapgerðir
og öll aldursskeið. Poul Reumert er fyrst
og fremst leiksviðsmaður, en hann hefur
einnig reynt önnur svið leikarans, kvik-
myndir og útvarp. Hann er afburða upp-
lesari.
Fundum okkar Poul Reumert hefur
öðru hvoru borið saman frá því að hann
lék hér í „Bandinu" eftir Strindberg, sem
ég hafði þýtt og nokkrum sinnum hef
ég séð hann á heimaleiksviði hans og
undrast og glaðst yfir lífsfjöri hans, lífs-
skilningi og listauðgi. Okkur er tamast
að tala um list leiksviðsins og má að sjálf-
sögðu til sanns vegar færa. Hinu skyldi
þó ekki gleymt, að á bak við þetta allt
stendur fyrst og fremst vinna, erilsöm
og óþrjótandi vinna myrkranna milli, ef
góður árangur á að nást. Sú vinna er ekki
einlægt fengin með sitjandi sældinni, —
að tjaldabaki er önn og erfiði og allskon-
ar áhyggjur og stundum árekstrar, sem
venjulega koma þó ekki fram fyrir tjald-
skörina. Poul Reumert hefur verið óþreyt-
andi starfsmaður og gengið allur upp í
hlutverki leiksins og leiksviðsins. Með
hárfínni nákvæmni hefur hann mótað og
meitlað hvert smáatriði í orði og áherzlu,
20 ÚTVARPSTÍÐINDI