Útvarpstíðindi : nýr flokkur - 01.03.1952, Side 39
H.F EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Aðalfundur
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipkafélags Islands. verður
haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardag-
inn 7. júní 1952 og hefst kl. 1,30 e. h.
Dagskrá:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu
starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og á-
stæðum fyrir henni, og leggur fram til úrsurðar endurskoðaða
rekstursreikninga til 3. desember 1951 og efnahagsreikning
með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og
tillögur til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu árs-
arðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem úr
ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðenda í stað þess er frá fer, og eins
varaendurskoðenda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál. sem upp kunna
að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og um-
boðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana
3.—5. júní næs'tk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til
þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Osk-
að er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin
skrifstofu félagsins í hendur til skrásetningar, ef unnt er 10 dög-
um fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en 27. rrtaí 1952.
Reykjavík, 4. febrúar 1952.
STJÓRNIN.
\__ ___________________________________________________________
útvarpstíðindi 39