Morgunblaðið - 29.11.2008, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 9. N Ó V E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
327. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Jólagjöf
frá kaupmönnum í miðborginni
og Norræna félaginu í Reykjavík
TAKIÐ KORTIÐ MEÐ Í MIÐBORGINASjá límmiða framan á Morgunblaðinu 30. nóvember
10-20% afsláttur – kynnið ykkur nánar á www.norden.is
AFSLÁTTARKORT Í MIÐBORGINNI Í DESEMBER
Bakhjarlar verkefnisins eru: Nói-Síríus, Europris, MS-mjólkursamsalan.
Leikhúsin
í landinu >> 63
GISSUR PÁLL GISSURARSON TENÓR
KREPPUVÖRN AÐ
GEFA ÚT JÓLADISK
FÖRÐUN Á AÐVENTUNNI
Falleg förðun er
alltaf vel blönduð
95
ára
mbl.is
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu stendur nú fyrir svokölluðu áherslu-
verkefni, sem hófst í síðustu viku, þar sem ástand ökumanna er kannað,
með tilliti til áfengis-, fíkniefna- og lyfjaneyslu. Guðbrandur Sigurðsson,
aðalvarðstjóri umferðardeildar, segir jólaboðin gefa tilefni til hins árlega
verkefnis. Á sjötta hundrað ökumenn hafi verið stöðvaðir, þar af hafi 20
verið teknir fyrir ölvun. Þessar stúlkur voru með allt sitt á hreinu.
KANNA ÁSTAND ÖKUMANNA
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglan hefur þegar stöðvað á sjötta hundrað bifreiðar í árlegu eftirliti
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„ÉG er mjög ánægður. Þetta eru
góðar fréttir eftir að hafa beðið hér í
fjögur ár. Ég er mjög þakklátur,“
segir Farzad Raahmanian, hælisleit-
andi frá Íran, sem ásamt öðrum
írönskum hælisleitanda, Mehdi Kav-
iapoor, hefur verið í hungurverkfalli
síðan í upphafi mánaðar.
Dómsmálaráðuneytið beindi í gær
þeim tilmælum til Útlendingastofn-
unar að mennirnir fengju bráða-
birgðadvalarleyfi hér og var bréf
þess efnis jafnframt sent lögmanni
hælisleitendanna. Í því sama bréfi
mælir ráðuneytið fyrir um það að
Útlendingastofnun upplýsi mennina
um möguleika á að sækja um at-
vinnuleyfi hér á landi.
Mennirnir hættu verkfalli sínu við
þessar fréttir og segist Farzad horfa
björtum augum fram á við. „Ég vil
sýna yfirvöldum að við erum ekki
óvinir eða munum valda vandræðum
hér. Við erum bara eins og annað
fólk,“ segir Farzad.
Góðar fréttir | 23
Fagna áfangasigri
Hælisleitendur hættir í hungurverkfalli
Fá bráðabirgðadvalarleyfi hér á landi
Í HNOTSKURN
»Farzad Raahmanian ogMehdi Kaviapoor hófu
hungurverkfall í byrjun mán-
aðar til að mótmæla því að
senda ætti þá aftur til Írans.
»Þá var umsóknarferliþeirra lokið hjá íslenskum
stjórnvöldum og fyrir lá að
ekki ætti að veita þeim var-
anlegt dvalarleyfi eða hæli
hérlendis.
»Þeir hafa beðið úrlausnsinna mála sl. fjögur ár.
SPARNAÐARRÁÐSTAFANIR
RÚV munu m.a. koma fram í því að
ekkert verður af sérstökum jóla-
þætti í Góðu kvöldi, Káta maskínan
verður felld niður frá áramótum og
dregið verður úr kostnaði vegna
Eurovision og Gettu betur. „Ég hef
áhyggjur af því að sú stefna sem
tekin var fyrir einu og hálfu ári, að
auka íslenskt leikið efni, verði fyrir
barðinu á þessum niðurskurði,“
segir Þórhallur Gunnarsson, dag-
skrárstjóri RÚV.
Niðurskurðarhnífurinn
kemur við alla þætti RÚV
Ný skáldsaga Steinars Braga, Kon-
ur, vekur meðal annars spurningar
um leikina sem stundaðir eru í sam-
félaginu þar sem konum er fórnað.
LESBÓK
Steinar Bragi
og Konur
Jón Baldvin Hannibalsson leitar að
rótum kreppunnar í tilefni af bók
Guðmundar Magnússonar, Nýja Ís-
land – listin að týna sjálfum sér.
Vonsvikin þjóð í
leit að sjálfri sér
Segir brosandi hópafneitun leikara
og leikhúsfólks á Eddunni eitthvað
um stöðu leikhússins eftir hrun?
María Kristjánsdóttir svarar.
Hvernig standa
leikhúsin?
FORSETI ASÍ óttast að gjaldeyr-
ishömlur þær sem ákveðnar voru í
gær leiði til þess að gengi krónunnar
verði áfram veikt. Talar hann um
þær sem vott um uppgjöf.
„Ég óttast að með þessu sé verið
að taka úr höndum okkar þá von sem
við bárum í brjósti um að krónan
gæti farið að styrkjast á næsta ári,
sem þá myndi leiða til þess að verð-
bólgan gæti farið hratt niður,“ sagði
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
leggur áherslu á að hömlurnar séu
hugsaðar til að stemma stigu við
fjármagnsflótta, til skamms tíma, og
telur að gagnrýni sem komið hafi á
aðgerðirnar sé of harkaleg. | 28
Vottur um
uppgjöf