Morgunblaðið - 29.11.2008, Blaðsíða 29
Fréttir 29VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008
Hefur þú skaðast í slysi?
Við könnum rétt þinn á bótum!
Slys breyta aðstæðum í starfi og frítíma.
Gættu réttar þíns.
Fulltingi þér við hlið / www.fulltingi.is / sími 533 2050
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
BJÖRGVIN G. Sigurðsson viðskiptaráðherra vill
að Landsbanki, Kaupþing og Glitnir birti uppgjör
peningamarkaðssjóða sinna.
Aðspurður segir hann eðlilegt að bæði samsetn-
ing sjóðanna og það verðmat sem lá til grundvallar
þegar bréf voru keypt úr sjóðunum verði gert op-
inbert.
Hljóta að birta uppgjör
„Mér finnst eðlilegt að bankarnir gefi þessar
upplýsingar upp. Það liggur þessu uppgjöri sjóð-
anna til grundvallar. Við fengum á sínum tíma
upplýsingar frá bankastjórnunum að þetta hefði
verið gert á viðskiptalegum forsendum og að mat-
ið hefði verið framkvæmt af hlutlausum aðila, end-
urskoðendafyrirtækjum. Þess vegna hljóta bank-
arnir að birta einhvers konar uppgjör á þessu
sjóðum. Það er gagnrýni á báða vegu vegna upp-
gjörs þeirra og mér finnst alveg einboðið að þetta
verði birt.“
Ríkisbankarnir þrír hafa til þessa ekki viljað
gefa upp hvaða fyrirtæki hafi átt bréf í sjóðum
þeirra né við hvaða verðmat þeir hafi stuðst þegar
þeir keyptu út öll skuldabréf sem eftir voru í sjóð-
unum eftir fall fyrirrennara þeirra þrátt fyrir
ítrekaðar fyrirspurnir Morgunblaðsins.
Morgunblaðið hefur hins vegar samsetningu
peningamarkaðssjóðs Spron undir höndum.
Í þeim sjóði voru meðal annars skuldabréf frá
Milestone, Samson, Baugi, Landic Properties, Ex-
ista, Jarðborunum og Vodafone. Öll þessi fyrir-
tæki tengjast fyrrum stærstu eigendum bankanna
þriggja. Heimildir Morgunblaðsins herma að út-
gefendur skuldabréfa í sjóðum ríkisbankanna hafi
að mestu leyti verið sömu aðilar og voru með bréf í
sjóði Spron auk þess sem bréf frá bönkunum sjálf-
um voru í sjóðunum. Skuldabréf ríkisbankanna
eru að mestu talin verðlaus og virði bréfa marga
útgefenda slíkra talin verðlítil.
Viðskiptaráðherra vill að
bankar birti uppgjör sjóða
Björgvini G. Sigurðssyni finnst að birta eigi samsetningu sjóða og verðmat bréfa
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Eðlilegt Björgvin vill að bankarnir skýri frá sam-
setningu og verðmati peningamarkaðssjóðanna.
TAP Spalar
ehf., rekstr-
araðila Hval-
fjarðarganga, á
síðustu tólf
mánuðum nam
kr. 366 millj-
ónum króna, á
sama tíma fyrir
ári var 282
milljóna króna
hagnaður af
rekstri félags-
ins. Tap Spalar
ehf. eftir skatta á fjórða ársfjórð-
ungi félagsins sem er 1. júlí 2008 til
30. september 2008 nam 47 millj-
ónum króna. Á sama tíma árið á
undan nam hagnaður félagsins 112
milljónum króna.
Veggjald ársins nam 979 millj-
ónum króna til samanburðar við
1.040 milljónir árið áður sem er
5,8% lækkun. bjarni@mbl.is
Göng Spölur rekur
Hvalfjarðargöng.
Spölur
tapar 336
milljónum
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
TAP SPRON á fyrstu níu mánuðum
ársins nam 16,5 milljörðum króna,
en á sama tímabili í fyrra var 9,3
milljarða króna hagnaður á rekstri
bankans. Á þriðja ársfjórðungi á
þessu ári var ríflega þriggja millj-
arða króna tap á rekstri bankans,
samanborið við 850 milljóna króna
tap á sama tímabili í fyrra.
Eigið fé bankans var við lok sept-
ember á þessu ári 10,4 milljarðar
króna, en var 27,8 milljarðar í upp-
hafi árs.CAD eiginfjárhlutfall var
10,1% í lok september, en var 13,4%
á sama tíma í fyrra.
Rekstrarkostnaður dróst töluvert
saman á tímabilinu og nam 1,6 millj-
örðum króna, samanborið við 4,2
milljarða á fyrstu níu mánuðum árs
2007.
Heildarútlán til viðskiptamanna
námu 206,5 milljörðum króna og
voru innlán 45% af heildarútlánum.
Alvarlegar afleiðingar
Guðmundur Hauksson, forstjóri
SPRON, segir í fréttatilkynningu að
afkoman fyrir fjórðunginn endur-
spegli stöðuna við hrun viðskipta-
bankanna þriggja. Fallið og afleið-
ingar þess séu ekki enn að fullu
komnar fram og muni snerta öll fyr-
irtæki og heimili í landinu. Spron
hafi ekki farið varhluta af því, en að-
stæður geri það að verkum að erfitt
sé að meta verðmæti eigna og aðrar
stærðir af fullri nákvæmni.
SPRON hafi hins vegar gripið til
aðgerða til að styrkja stöðu bankans
með langtímahagsmuni hans að leið-
arljósi. Niðurstaðna áðurnefndra að-
gerða sé að vænta áður en langt um
líði.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fé Eigið fé SPRON hefur minnkað um rúma 17 milljarða króna það sem af
er árinu og hefur CAD eiginfjárhlutfall bankans farið úr 13,4% í 10,1%.
Tap SPRON nemur
16,5 milljörðum króna
HÆTT hefur verið við sölu á 5,49%
eignarhlut Kaupþings í norska trygg-
ingafélaginu Storebrand, sem boðuð
var á fimmtudag.
Í ljós kom að bústjóri Kaupþings í
Noregi var andvígur sölunni. Gengi
bréfa Storebrand hækkaði um 9,16% í
kauphöllinni í Ósló í gær.
Dótturfélag Kaupþings í Noregi var
sett undir skilanefnd þegar íslenska
Fjármálaeftirlitið greip inn í rekstur
móðurfélagsins á Íslandi. Þá gerði
tryggingasjóður banka lögtak í eign-
um útibúsins en meðal þeirra eigna
var stór eignarhlutur í Storebrand.
Á fimmtudag tilkynnti skilanefnd
norska bankans að 24,7 milljónir hluta
yrðu seldar í svonefndri „book-build-
ing“ sölu. Var sölutímabilið frá því að
lokað var fyrir viðskipti í kauphöllinni
í Ósló í gær og þar til viðskipti hæfust
í morgun.
Fram kemur á vefnum Dagens
Næringsliv, að í gærmorgun sendi
bústjórn norska Kaupþingsbankans
hins vegar frá sér yfirlýsingu þar sem
lagst er gegn sölunni. Því ákvað skila-
nefndin að hætta við.
gummi@mbl.is
Hætt við sölu á hlut
Kaupþings í Storebrand
Morgunblaðið/Árni Sæberg