Morgunblaðið - 29.11.2008, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
RÍKISSTJÓRNIN mun skýra frá þeim aðgerðum sem
hún hyggst grípa til í því skyni að koma fyrirtækjum lands-
ins til hjálpar eftir helgina, að sögn Grétu Ingþórsdóttur,
aðstoðarmanns forsætisráðherra. Hún segir fund for-
svarsmanna atvinnulífsins, verkalýðshreyfingarinnar og
sveitarfélaga með fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinnar í
Ráðherrabústaðnum í gær hafa verið gagnlegan.
„Menn voru að lýsa stöðunni eins og hún blasir við þeim
og hvaða aðgerðir þeim finnst aðkallandi að ráðast í. Þess-
ar tillögur með fyrirtækin eru á lokastigi og munu líta
dagsins ljós á næstu dögum,“ segir Gréta.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands,
sat fundinn í Ráðherrabústaðnum. Spurður um efni fund-
arins segir Gylfi að þrýst hafi verið á ríkisstjórnina að
skýra frá þeim aðgerðum sem hún hyggst beita til að létta
fyrirtækjunum róðurinn.
„Samtök á vinnumarkaði, launamegin og atvinnuveit-
endamegin, funduðu í gær og þessi fundur í dag var fram-
hald á því. Við vorum ásamt fulltrúum Samtaka atvinnu-
lífsins ákveðin í að fá fram upplýsingar um hvar það
markmið ríkisstjórnarinnar væri statt sem kynnt var fyrir
tveimur vikum um aðgerðir gagnvart fyrirtækjunum. Við
erum alveg sammála SA um að það sé ákaflega mikilvægt
að fá slíkar aðgerðir fram sem fyrst, vegna þess að það er
verið að segja upp okkar fólki í þúsundavís.“
Staðið verið við kjarasamninga
Gylfi segir það vilja ASÍ að halda kjarasamninga.
„Það er ljóst að ASÍ og Samtök atvinnulífsins hafa
kjarasamning til nóvemberloka 2010. Það er ákveðin sam-
staða meðal okkar um að það séu verðmæti í þeim samn-
ingi sem ber að halda í gildi. Þótt forsendur hans séu
brostnar eru í honum ákveðin verðmæti fyrir okkar fólk og
fyrir fyrirtækin. Það er auðvitað mikilvægt fyrir okkur,
samtök launafólks, og fyrirtækin að sjá í fjárlögin og hvað
stjórnvöld hyggjast gera á næsta ári,“ segir Gylfi, sem
væntir þess að þau verði lögð fram í næstu viku.
Skýrist eftir helgina
Aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar til handa fyrirtækjum að vænta næstu daga
Forseti ASÍ lýsir yfir vilja til að halda kjarasamninga Beðið eftir fjárlögunum
Í HNOTSKURN
»Auk Geirs H. Haarde for-sætisráðherra sátu Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra og Árni Mathiesen fjár-
málaráðherra fundinn í Ráð-
herrabústaðnum í gær.
»Gylfi Arnbjörnsson, forsetiAlþýðusambands Íslands,
telur að ef Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn hafi gert kröfu um
gjaldeyrishöft sé það til vitnis
um skort á tiltrú hans á að-
gerðum stjórnvalda.
VEL fór um Eydísi Öglu Hallbjörnsdóttur þegar
hún fékk að prófa Örvar, nýja skynörvunarstofu,
sem formlega var tekin í notkun í Safamýr-
arskóla í gær. Stofan, sem kostuð er af Sunnu-
sjóði, er aðstaða þar sem hægt er að örva öll
skynfæri nemenda, virkja þau og þroska. Safa-
mýrarskóli er sérskóli fyrir nemendur á grunn-
skólaaldri með alvarlega fjölfötlun sem þurfa
sértækar námsaðstæður við nám sitt.
Morgunblaðið/Ómar
Skynfærin örvuð
ALLS hefur
Vinnumálastofn-
un fengið í nóv-
ember tilkynn-
ingar frá innan
við tíu fyr-
irtækjum um
hópuppsagnir.
Taka þær til 300
til 350 starfs-
manna. Eru þetta mun færri upp-
sagnir en í síðustu mánuðum þegar
tilkynnt hefur verið um uppsagnir
þúsunda.
Meðal þeirra fyrirtækja sem
sögðu upp starfsfólki í mánuðinum
voru Húsasmiðjan sem sagði upp
um 100 starfsmönnum og Eimskip
liðlega 72 starfsmönnum.
Í gær sagði fyrirtækið HRV
Engineering upp nítján starfs-
mönnum sem flestir störfuðu við
hönnun og verkefna- og bygg-
ingastjórnun við álver Norðuráls í
Helguvík. Gripið var til aðgerðanna
vegna biðstöðu sem nú ríkir um
byggingu álversins.
Vinnumálastofnun birtir sam-
antekt um hópuppsagnir í byrjun
næstu viku. Gissur Pétursson for-
stjóri segir að auk þeirra uppsagna
sem tilkynntar hafi verið séu fyr-
irtæki að hagræða og segja upp
fólki í smærri stíl. Þá séu fyrirtæki
að lækka laun starfsfólks, segja
upp starfi að hluta og grípa til ann-
arra aðgerða. Þá vekur hann at-
hygli á því að uppsagnir síðustu
mánuði séu nú að taka gildi, jafn-
óðum og uppsagnarfrestur rennur
út. helgi@mbl.is
350 manns
í hópupp-
sögnum
Færri missa vinnuna
en síðustu mánuði
SAMNINGANEFND launanefndar
sveitarfélaga og stéttarfélaga mikils
fjölda starfsmanna sveitarfélaganna
luku fundum um tíuleytið í gærkvöld
án niðurstöðu.
Nefndirnar hittast aftur hjá Rík-
issáttasemjara í Karphúsinu um tíu-
leytið í dag.
Samningar margra stéttarfélaga
við Launanefnd sveitarfélaga hafa
ýmist verið lausir frá 1. nóvember
eða losna hinn 1. desember næst-
komandi.
Fundað um
kjaramálin
REYKJAVÍK
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Glæsileg gjafabók.
Fæst bæði á íslensku og ensku.
HÓPUR áhugasamra einstaklinga undirbýr að gera til-
boð í Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins. Fyrirtækið
er með erfiða lausafjárstöðu. Unnið er í þeim málum um
helgina ásamt endurskipulagningu efnahagsreiknings fé-
lagsins.
Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Árvakurs, hélt
fund með starfsfólkinu síðdegis í gær til að greina því frá
fjárhagslegri stöðu fyrirtækisins. Einar sagði í samtali í
gær að lausafjárstaðan væri erfið vegna harkalegs sam-
dráttar á auglýsingamarkaði og lausafjárþrenginga sem
verið hafi í verslun og viðskiptum á árinu. Þá hafi skuldir
hækkað vegna gengisfalls krónunnar. Greidd voru út
laun til hluta starfsfólks í gær og segir Einar að unnið
verði í málinu um helgina til að ljúka launagreiðslum.
Jafnframt er áfram unnið að fjárhagslegri endurskipu-
lagningu Árvakurs hf., í samstarfi við viðskiptabanka
fyrirtækisins, Glitni. Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins vinnur hópur áhugasamra einstaklinga að því að
gera tilboð í Árvakur. Þessi hópur hefur áhuga á því að
koma að rekstri útgáfunnar í samvinnu við Glitni, við-
skiptabanka félagsins. Lögð hefur verið áhersla á það í
hópnum að miðað sé við að enginn einn hluthafi sé með
ráðandi hlut í útgáfunni. Í þessum hópi eru m.a. stjórn-
endur og starfsmenn Árvakurs og ýmsir fjárfestar. Þá er
talið líklegt að í þessum hópi séu einnig eigendur útgáfu-
félagsins Valtýs sem lengi hefur verið viðriðinn útgáfu
blaðsins.
Einar Sigurðsson leggur áherslu á að staða Morgun-
blaðsins sem fjölmiðils sé að styrkjast. Áskrifendum hafi
fjölgað og þeir séu nú nánast jafnmargir og fyrir ári. Þá
hafi lestur blaðsins aukist. „Það er augljóst að í krepp-
unni leitar fólk í þá fjölmiðla sem það treystir. Þess vegna
tel ég það mjög mikilvægt verkefni að tryggja þennan
rekstur til framtíðar,“ segir Einar. helgi@mbl.is
Hópur fjárfesta undirbýr til-
boð í útgáfufélagið Árvakur
Morgunblaðshúsið í Hádegismóum