Morgunblaðið - 29.11.2008, Blaðsíða 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
GRUNUR hefur leikið á því um langa hríð að
færeyskir togarar hafi stundað ólöglegar veiðar í
íslenskri lögsögu milli Íslands og Færeyja. Þetta
hefur sannast í einstaka tilfellum en framferði
skipstjóra færeysku togaranna hefur leitt að því
líkur, að þessar veiðar hafi verið stundaðar í enn
meira mæli. Þeir leita í gjöful mið og dæmi munu
vera um allt að 30 tonna þorskafla á einum sólar-
hring, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Nýjasta dæmið kom upp í vikunni, þegar frétt-
ir bárust af því að færeyskt varðskip hefði tekið
tvo færeyska togara, Bresti og Vestleika, við
miðlínuna, og fært þá til hafnar í Þórshöfn,
vegna gruns um fiskveiðibrot. Landhelgisgæslan
fékk enga tilkynningu um þetta mál og fréttu
starfsmenn Gæslunnar fyrst af því á heimasíðu
færeyska dagblaðsins Dimmalætting.
Skipstjórarnir viðurkenndu að hafa
slökkt á fjareftirlitsbúnaði togaranna
Samkvæmt frétt blaðsins telur ákæruvaldið í
Færeyjum sig hafa rökstuddan grun um að báðir
togararnir hafi verið á ólöglegum veiðum í ís-
lenskri lögsögu með slökkt á fjareftirlitsbúnaði,
sem sýnir hvar skipin eru stödd. Samkvæmt
frétt Dimmalætting hafa skipstjórar beggja
togaranna viðurkennt að hafa slökkt á fjareft-
irlitsbúnaðinum. Þá hefur skipstjórinn á Bresti
jafnframt viðurkennt að hafa gengið skrefinu
lengra og kastað siglingatölvu skipsins í sjóinn,
þegar skipið var á leið til hafnar í Færeyjum 16.
nóvember sl. Þar með fór helsta sönnunargagn
ákæruvaldsins í sjóinn. Að sögn Halldórs B. Nel-
lett, framkvæmdastjóra aðgerðasviðs Landhelg-
isgæslunnar, kostar svona tölva nokkur hundruð
þúsund krónur, sem er lág upphæð ef miðað er
við sektir fyrir landhelgisbrot, ef þau sannast.
Þá getur sektin numið milljónum króna auk þess
sem afli og veiðarfæri eru gerð upptæk. Segir
Halldór að þessi háttsemi skipstjórans bendi
vissulega til þess, að hann hafi ekki haft hreint
mjöl í pokahorninu.
Skipstjórinn á Bresti kom einnig við sögu í
janúar 2006. Þá flaug gæsluflugvélin Sýn yfir
togarann, þar sem hann var að ólöglegum veið-
um innan landhelginnar. Skipstjórinn svaraði
engu, þegar áhöfn flugvélarinnar reyndi að hafa
samband við hann. Færeyska lögreglan tók á
móti togaranum þegar hann kom til hafnar og
skoðaði m.a. afladagbækur. Skipstjórinn var
kærður fyrir athæfið og er málið enn til rann-
sóknar hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins í
Reykjavík.
Í desember 2007 kom upp mál þar sem Brestir
kom við sögu enn og aftur, nú ásamt togaranum
Rankin. Varðskipið Týr kom að togurunum við
ólöglegar fiskveiðar austur af landinu. Týr gat
eðlilega ekki fylgt báðum togurum eftir. Varð
Rankin fyrir valinu en Brestir slapp. Að sögn
Halldórs B. Nellett, var Rankin kominn langt
inn í færeyska lögsögu þegar hann stoppaði loks.
Að beiðni Landhelgisgæslunnar kom færeyska
varðskipið Brimill á staðinn. Varðskipsmenn
vildu fá að fara um borð en fengu neitun frá fær-
eyskum yfirvöldum. Að sögn Halldórs taldi
Landhelgisgæslan sig hafa fulla heimild til að
fara um borð samkvæmt ákvæðum hafrétt-
arsáttamálans því Týr hafði veitt togaranum
óslitna eftirför. Stóð í stappi í heilan dag. Þegar
þetta lá fyrir vildi Landhelgisgæslan að togarinn
yrði færður til hafnar á Íslandi, en því var einnig
neitað. Loks var óskað eftir því að hann yrði
færður til hafnar í Þórshöfn en færeysk yfirvöld
töldu það ástæðulaust. Togaranum var leyft að
klára túrinn en ekkert hefur gerst í málinu síðan.
„Við erum mjög óhress með það,“ segir Halldór.
Samkvæmt samningi milli Íslands og Færeyja
mega færeyskir línu- og handfærabátar stunda
veiðar í íslenskri landhelgi. Enginn færeyskur
togari hefur leyfi til að veiða innan lögsögunnar.
Halldór B. Nellett segir að það séu 5-6 fær-
eyskir togarar sem Landhelgisgæslan reyni að
hafa auga með. Það sé erfitt verkefni því athug-
anir hafi leitt í ljós, að togararnir reyni helst að
lauma sér inn fyrir línuna á nóttunni eða í þoku
og dimmvirði, þegar ómögulegt sé að fylgjast
með þeim úr lofti.
Hífa trollið upp umsvifalaust
Þá er mjög erfitt fyrir íslensku varðskipin að
nálgast togarana. Þeir eru mjög varir um sig og
hífa trollið umsvifalaust þegar þeir verða varir
við ferðir varðskipanna. Síðan taka þeir strikið
út úr íslenskri lögsögu og svara engum köllum
varðskipanna. Ekki bætir úr skák, að Landhelg-
isgæslan hefur ekki getað haldið úti varðskipum
með eðlilegum hætti undanfarna mánuði vegna
fjárskorts. Landhelgisgæslan hefur sent
skýrslur um framferði færeysku togaranna til
viðkomandi ráðuneyta. Þau hafa komið þeim
boðum til færeyskra stjórnvalda, að þau sætti
sig ekki við þetta ástand.
Sönnunargagnið í sjóinn
Grunur um alvarleg
landhelgisbrot Færey-
inga í lögsögu okkar
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Landhelgisbrjótur Færeyski togarinn Sancy í Eskifjarðarhöfn sumarið 2006. Varðskipið Óðinn færði
hann til hafnar eftir að togarinn hafði verið staðinn að ólöglegum veiðum í Rósagarðinum.
FÆREYSKI togarinn Sancy var staðinn að ólög-
legum veiðum í Rósagarðinum í júní 2006. Varð-
skipið Óðinn gaf togaranum stöðvunarmerki
sem hann sinnti ekki. Varðskipsmenn komust
um borð á gúmmítuðrum þegar togarinn var á
fullri ferð.
Ástæða þess að togarinn stoppaði ekki strax
þegar Óðinn gaf stöðvunarmerki var sú að skip-
stjórinn var að reyna að eyða gögnum úr sigl-
ingatölvu skipsins. Hún geymir mikilvægar upp-
lýsingar um staðsetningar skips hverju sinni
með gps-staðsetningartækni. Hægt er að sjá
miðað við hraða skipsins hvort það er að toga
eða ekki. Íslenskir tæknimenn skoðuðu tölvuna
og komust að athæfi skipstjórans. Tókst þeim
að ná út úr tölvunni upplýsingum sem sönnuðu
að togarinn hefði margsinnis farið inn í íslenska
lögsögu. Væntanlega hefur skipstjórinn á Bresti
haft þetta bak við eyrað þegar hann ákvað að
henda staðsetningartæki togarans fyrir borð
þegar hann var tekinn á dögunum.
Samkvæmt afladagbókum Sancy átti skipið
að hafa verið á veiðum í færeyskri lögsögu.
Fyrir dómi neitaði skipstjórinn allri sök. Hann
var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi
og til að greiða 600 þúsund krónur í sekt fyrir
ólöglegar veiðar innan íslenkrar lögsögu og fyrir
að óhlýðnast fyrirmælum varðskipsins.
Skipstjórinn reyndi að eyða gögnum úr siglingatölvunni
FÍKNIEFNI fundust við húsleit í
Mosfellsbæ í fyrrakvöld en um var
að ræða marijúana, samtals um 700
grömm. Húsráðandinn, karl á fer-
tugsaldri, var handtekinn en hann
hefur áður komið við sögu lögreglu
vegna fíkniefnamála. Við aðgerð-
ina, sem er liður í að hamla gegn
sölu og dreifingu fíkniefna, naut
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
aðstoðar fíkniefnaleitarhunds frá
tollgæslunni.
Lögreglan minnir á fíkniefnasím-
ann 800-5005. Í hann má hringja
nafnlaust til að koma á framfæri
upplýsingum um fíkniefnamál.
Fíkniefnasíminn er samvinnuverk-
efni lögreglu og tollyfirvalda og er
liður í baráttunni við fíkniefna-
vandann.
Fundu fíkni-
efni við húsleit
KRÓNAN opnaði í gær nýja verslun
í Rofabæ 39 í Árbæjarhverfinu.
Skv. upplýsingum frá versluninni
verður kappkostað að þjóna Árbæ-
ingum og öðrum viðskiptavinum á
sem bestan hátt.
Samkvæmt upplýsingum sem
finna má á heimasíðu Krónunnar er
þetta ellefta Krónuverslunin.
Ný Krónu-
verslun
„TRYLLTUR flóamarkaður“ verð-
ur haldinn í dag kl. 11-18 í Lind-
argötu 6 (Leikarafélagshúsinu á
bak við Þjóðleikhúsið). Yfirskvís-
urnar Helga Braga Jónsdóttir og
Elma Lísa og Nína Björk Gunn-
arsdætur ætla að selja skvísufötin
sín. Tískuráðgjöf, magadans og
léttar veitingar á staðnum.
Skvísur selja
STJÓRN Félags íslenskra heim-
ilislækna segir í fréttatilkynningu
að á þessum erfiðu tímum sé mik-
ilvægara en áður að standa vörð um
heilsufar þjóðarinnar. Stjórnin var-
ar við lækkun útgjalda til heilbrigð-
ismála, sérstaklega í heilsugæslu
landsmanna „enda um að ræða hag-
kvæmasta kost heilbrigðisþjónust-
unnar, fyrsta viðkomustað sjúk-
linga og nauðsynlega
grunnþjónustu. Niðurskurður í
heilsugæslu mun fela í sér þjón-
ustuskerðingu og hafa neikvæð
áhrif bæði á sjúklinga og starfs-
fólk.“
Niðurskurður gæti
bitnað á heilsu
STUTT