Morgunblaðið - 29.11.2008, Side 18

Morgunblaðið - 29.11.2008, Side 18
18 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008 Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „ÞAÐ liggur í augum uppi að þjón- ustan minnkar. Það er ekki hægt að fara í 700 milljóna niðurskurð á starf- semi Ríkisútvarpsins án þess að það bæði sjáist og heyrist,“ segir Páll Magnússon útvarpsstjóri. Að sínu viti hafi aldrei verið jafnmikil þörf fyrir öflugt Ríkisútvarp og á þeim tímum sem við nú lifum. „En því miður virðast kannski ekki allir vera þeirrar skoðunar,“ segir Páll. Hann hélt í gær fund með starfs- fólki RÚV þar sem tilkynnt var um uppsagnir 21 starfsmanns og 23 verk- taka hjá stofnuninni. Mikill halli var á rekstri RÚV rekstrarárið 1. septem- ber 2007 til 31. ágúst 2008, en tap tímabilsins var tæpar 740 milljónir króna. „Við gerðum ráð fyrir því að reka fyrirtækið á síðasta ári með tæp- lega 200 milljóna króna halla. Í okkar langtímaáætlunum átti þetta að verða síðasta árið sem Ríkisútvarpið yrði rekið með tapi. Þá gerðum við ráð fyr- ir tilteknum verðbólguforsendum, en hún reyndist miklu meiri en við gerð- um ráð fyrir. Verðbólgan umfram áætlun ein og sér þýddi sex hundruð milljóna króna verri afkomu heldur en við höfðum gert ráð fyrir,“ segir Páll. Eigið fé RÚV er nú um 31 milljón króna. Á næstu 12 mánuðum er áætl- að að spara um 700 milljónir, þar af um 550 milljónir með almennum nið- urskurði. Þá á að spara 150 milljónir króna með tímabundinni launalækk- un frá áramótum. Lækkar sjálfur um 10-11% Páll segir að enn sé eftir að búa til formúluna vegna launalækkunarinn- ar, en það verði flókið enda margir kjarasamningar í gangi á RÚV. Gróf- asta útfærslan sé sú að lægst launaða fólkið lækki ekkert, miðjuhópurinn, sem meginþorri starfamanna sé í, lækki á bilinu 6-7%. „Þeir hæstu og þar með talið ég sjálfur lækka um 10- 11%.“ Páll segir að mest hafi verið af upp- sögnum á fréttasviði, enda sé lang- stærstur hluti af rekstrarútgjöldum þar laun og launatengd gjöld. Þá hafi ýmsum verktökum verið sagt upp, m.a. þáttagerðarfólki, tæknimönnum, pistlahöfundum og fleira fólki. Skorið verði niður í innlendu sem erlendu efni, en Páll bendir á að erlend dag- skrá RÚV sé lítill hluti af heildarút- gjöldum stofnunarinnar, eða um 7%. Framleiðslukostnaður við þætti á borð við Kastljós verði skorinn niður. Þá verði þátturinn Káta maskínan lagður af. Páll segir ljóst að óvissa sé fram- undan hjá Ríkisútvarpinu. Óljóst sé hver verði nefskattur sem fara á af stað um áramótin. Þá sé ekki vitað hvaða takmörk RÚV verði sett á aug- lýsingamarkaði. Spurning um bætur „Nú er komið fram að það verði gert en við vitum ekki hvernig eða hvers kyns tillögur þetta eru. Við get- um enn ekki lagt mat á það hversu mikið tekjur okkar skerðast. Við eig- um líka eftir að sjá það hvort gert sé ráð fyrir því að bæta þá tekjuskerð- ingu með þeim tekjum sem við höfum af almannaþjónustunni,“ segir Páll. Niðurskurðurinn nú byggist á ákveðnum tekjuforsendum sem skoða þurfi upp á nýtt verði breyt- ingar á þeim áætlunum. Skerðing á þjónustu RÚV  45 sagt upp hjá Ríkisútvarpinu  Halli á rekstrinum frá 2007-2008 nam 740 milljónum króna  Aldrei jafnmikil þörf fyrir öflugt Ríkisútvarp en ekki virðast allir deila þeirri skoðun, segir útvarpsstjóri Morgunblaðið/Árni Sæberg Skorið Rúv hyggst spara um 700 milljónir króna í rekstir á næstu 12 mánuðunum, m.a. með fækkun starfsfólk. Í HNOTSKURN » RÚV hefur þegar endur-skoðað áætlun sína vegna yfirstandandi rekstrarárs. »T.d. var auglýsingaáætlunstofnunarinnar skorin nið- ur vegna kreppunnar í sam- félaginu og samdráttar á aug- lýsingamarkaði. »Útvarpsstjóri segir að ekkihafi verið hægt að bíða lengur með að bregðast við hallarekstri RÚV. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra kynnti í ríkisstjórn í gær nýtt frumvarp um Ríkisútvarpið, að því er fram kom í fréttum MBL sjónvarps. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að RÚV hverfi að hluta til af auglýsingamarkaði. Málið hefur ekki verið kynnt þingflokkunum en vonast er til að þingið geti tekið það til meðferðar í næstu viku. Ráðherrann vildi í gær ekki segja til um hversu langt yrði gengið með frumvarpinu en sagði að þess yrði gætt að Ríkisútvarpið gæti eftir sem áður sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Frumvarpið er árangur af starfi starfshóps ráð- herra um fjölmiðla sem settur var laggirnar vegna ástandsins á fjöl- miðlamarkaði. Starfshópurinn hóf störf í síðustu viku, en hefur ekki lokið störfum því eftir er að skila tillögum um einkareknu fjölmiðlana. Starfshópinn skipa Steingrímur Sigurgeirsson, án tilnefningar, sem jafnframt er formaður hópsins, Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæð- isflokki, Skúli Helgason, Samfylkingu, Pétur Gunnarsson, Framsókn- arflokki, Kolbrún Halldórsdóttir, Vinstri grænum og Magnús Þór Haf- steinsson, Frjálslynda flokknum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Af auglýsingamarkaði að hluta „Það er ekkert launungarmál að þetta kemur á versta tíma hjá okkur. Við ætlum að gera okkar besta til þess að sinna okkar hlutverki og munum endurskipuleggja okkur upp á nýtt með það í huga,“ segir Óðinn Jónsson, fréttastjóri Ríkisútvarpsins, um uppsagnir á fréttasviði RÚV vegna niðurskurðar hjá stofnuninni. Af fréttasvið- inu hverfa alls fimmtán manns sem sinna fjórtán stöðu- gildum, að sögn Óðins. Beinar uppsagnir eru 12 talsins. Óðinn segir að harkalegasti niðurskurðurinn verði í íþróttafréttum, en þar er bæði sagt upp fréttamönnum og tæknifólki. „Þá er niðurskurður á vaktinni hér, í veffréttunum og á svæðisstöðvunum, en reyndar bara á Akureyri,“ segir Óðinn. Hann segir ekki hægt að líta svo á að verið sé allt að því að leggja svæðisútvörpin niður með sparnaðaraðgerðunum. „Nei, þvert á móti,“ segir Óðinn. Verið sé að hætta með svæðisbundnar útsend- ingar, en fólkinu sem verði eftir verði ætlað að setja inn fréttir á lands- rásir RÚV. Það eigi að styrkja innlenda fréttahlutann sem sé forgangs- mál á tímum sem þessum. elva@mbl.is Innlendar fréttir í forgangi Óðinn Jónsson Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „ÞETTA hefur áhrif á flesta þætti hinnar innlendu dagskrárdeildar,“ segir Þórhallur Gunnarsson, dag- skrárstjóri RÚV, um niðurskurð- inn í gær. „Það eru miklar að- haldsaðgerðir í öllum þáttum og starfsfólki fækkar í fjölmörgum þeirra,“ segir Þórhallur. Áætla megi að alls fækki um sjö manns í innlendri dagskrárgerð RÚV. Bæði sé um að ræða hlutastörf og full störf hjá stofnuninni. Meðal annars verður fækkað um tvö og hálft stöðugildi í Kastljósi og tæknikostnaður við þáttinn verður jafnframt lækkaður verulega. Þá verði þáttur Þorsteins J. Káta maskínan, felldur niður frá og með áramótum. Meðal annars sem sparað verð- ur er sérstakur jólaþáttur í þætt- inum Góðu kvöldi sem Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, hefur stýrt í haust. Til stóð að þátturinn yrði til áramóta og þá tæki við und- ankeppni vegna Eurovison. Jóla- þáttur Góðs kvölds átti að vera annan í jólum, en ekki verður af því. Þórhallur segir ljóst að mikið verði dregið úr kostnaði við Euro- vision og jafnframt við spurn- ingaþáttinn Gettu betur eftir ára- mótin. „Þessir þættir hafa verið haldnir utanhúss, til að mynda í Smáralind í fyrra, en verða í ár teknir upp innanhúss,“ segir Þór- hallur. Með þessu sparist heil- mikið og að auki skapist meiri vinna fyrir starfsfólk RÚV. Þórhallur bendir á að fram til þessa hafi RÚV veitt súrefni út á hinn frjálsa markað. „Við höfum keypt þjónustu af frjálsum fram- leiðslufyrirtækjum. Nú drögum við úr þeim kaupum og það er sárs- aukafullt, líka fyrir aðila utan fyr- irtækisins.“ Hann segir að RÚV muni halda áfram að sýna íslenskar heim- ildamyndir þótt niðurskurðurinn hafi einnig áhrif á þá þætti dag- skrárinnar. „Ég hef áhyggjur af því að sú stefna sem tekin var fyrir einu og hálfu ári að auka íslenskt leikið efni verði fyrir barðinu á þessum niðurskurði en ég mun gera allt til þess að forðast það.“ Þórhallur segir ljóst að nið- urskurðurinn nú hafi áhrif á inn- lendu dagskrárgerðina. „En við munum reyna allt til veita þá þjón- ustu sem okkur er ætlað að veita. Við misstum afburða fólk í öllum deildum RÚV í dag [í gær] og megum ekki við frekari blóðtöku.“ Aðhaldsaðgerðir í öllum þáttum  Ekki verður af jólaþætti í Góðu kvöldi Ragnhildar Steinunnar  Mikið verður dregið úr kostnaði við Eurovision og Gettu betur  Káta maskínan felld niður frá áramótum  Sparað verulega í Kastljósinu Morgunblaðið/Frikki Ragnhildur Steinunn Ekkert verður af fyrirhuguðum jólaþætti í Gott kvöld. „Það er alveg ljóst að þetta hlýtur að bitna á dagskránni, hún verður einsleitari með færra fólki. Ég held fast- ráðnu starfsfólki en lausráðnu fólki fækkar. Ég hef þeg- ar þurft að sjá á eftir 20 lausráðnum dagskrárgerð- armönnum,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri Rásar 1 og Rásar 2. Hún þarf líkt og yfirmenn annarra deilda Rík- isútvarpsins ohf. að sæta 20% niðurskurði. „Það sem mestu skiptir er að við báðar rásir starfar fólk sem vill takast á við þennan vanda. En þetta þýðir niðurskurð og einföldun í allri dagskrárgerð. Mér sýnist að það þurfi sérstaklega að spara í sumardagskrá en það á eftir að koma betur í ljós,“segir Sigrún Stefánsdóttir. the@mbl.is Einsleitari dagskrá Sigrún Stefánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.