Morgunblaðið - 29.11.2008, Síða 30

Morgunblaðið - 29.11.2008, Síða 30
30 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008 Lofa Indverjum aðstoð  Pakistanar neita ásökunum um að þeir séu viðriðnir árásirnar í Mumbai  Yfirmaður leyniþjónustu Pakistans á að aðstoða Indverja við rannsókn málsins Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is STJÓRNVÖLD í Pakistan neituðu því í gær að þau væru viðriðin árásir sem hafa kostað að minnsta kosti 150 manns lífið í Mumbai á Indlandi. Yousuf Raza Gilani, forsætisráðherra Pakist- ans, ræddi við indverska forsætisráðherrann Manmohan Singh í síma og hét því að senda yf- irmann pakistönsku leyniþjónustunnar til Ind- lands til að aðstoða við rannsókn málsins. Leyniþjónustan er mjög áhrifamikil í Pakistan og sú ákvörðun að senda yfirmann hennar til Ind- lands er athyglisverð í ljósi þess að Indverjar hafa oft sakað hana um að hafa aðstoðað hryðjuverka- menn við að undirbúa árásir á Indverja. Síðast sakaði stjórn Indlands pakistönsku leyniþjón- ustuna um að hafa aðstoðað talibana við að gera sprengjuárás á indverska sendiráðið í höfuðborg Afganistans í júlí þegar 58 manns létu lífið. Rekja árásirnar til Karachi Indverski forsætisráðherrann sagði í sjónvarps- ávarpi í fyrradag að skipuleggjendur árásanna í Mumbai væru með bækistöðvar í öðru landi og varaði „grannríki“ við því að halda verndarhendi yfir hryðjuverkamönnum, án þess að nefna Pak- istan sérstaklega. Í fréttatilkynningu frá indversku stjórninni í gær sagði Singh forsætisráðherra í samtalinu við Gilani að „fyrstu fregnir“ hermdu að rekja mætti árásirnar til Karachi, stærstu hafnarborgar Pak- istans. Margar hreyfingar íslamista hafa starfað í borginni. Indland og Pakistan hafa þrisvar sinnum háð stríð sín á milli frá því að löndin fengu sjálfstæði frá Bretlandi árið 1947. Margir telja að Pakistanar hafi aðstoðað vopnaða hópa múslíma í indverska hluta Kasmír. Múslímar frá Kasmír hafa verið sakaðir um að hafa tekið þátt í árás á þinghúsið í Nýju-Delhí árið 2001, en hún leiddi næstum til fjórða stríðsins milli landanna tveggja. KOMIST Íhalds- flokkurinn til valda í Bretlandi mun hann ráðast í að afnema í áföngum þá „að- skilnaðarstefnu“, sem birtist í miklu betri líf- eyriskjörum hjá opinberum starfsmönnum en öðrum launþegum. Kom þetta fram hjá David Cameron, leiðtoga flokksins. Cameron skýrði ekki málið neitt nánar og aðrir talsmenn Íhalds- flokksins, sem vilja komast hjá því að styggja opinbera starfsmenn fyrir næstu kosningar, sögðu að- eins, að um væri að ræða brýnt mál. Allt önnur kjör og betri Í Bretlandi og víðar munar miklu á lífeyriskjörum opinberra starfs- manna og annarra launþega. Líf- eyrir opinberra starfsmanna mið- ast við launin, þegar þeir fara á eftirlaun, en það fyrirkomulag heyrir nú sögunni til hjá öðrum launþegum. Útgjöldin við það voru meiri en atvinnulífið fékk risið und- ir. Samkvæmt opinberum útreikn- ingum er búist við, að kostnaður við lífeyri opinberra starfsmanna muni aukast um 40% á næstu 20 árum. „Við verðum að binda enda á þessa aðskilnaðarstefnu í lífeyr- ismálum,“ sagði Cameron, sem út- listaði það ekki frekar en talið er, að hann hafi í huga tillögu, sem hann hefur flutt og kveður á um að afnema skuli sérréttindi þing- manna í lífeyrismálum. svs@mbl.is Cameron vill jafna lífeyriskjörin Cameron vill sér- réttindin burt. Í ÞEIRRI kreppu, sem nú ríður röftum um allan heim, er Kreppan mikla á fyrri hluta síðustu aldar gjarnan rifjuð upp og þeir lærdóm- ar, sem af henni voru dregnir. Breski sagnfræðingurinn Philip Kay leitar þó öllu lengra eða til Rómar árið 88 fyrir Krist. Þá skall þar á fjár- málakreppa, sú fyrsta, sem sögur fara af. „Það, sem gerðist fyrir 21 öld, og það, sem hefur gerst hér í landi, er, að ótrúlega auðveldur að- gangur að lánsfé og vaxandi vand- ræði í öðru landi leiddu til fjár- málakreppu,“ segir Kay, sem ætlaði að flytja fyrirlestur um þessi mál í gær að því er fram kom í Gu- ardian. Kay ætlaði meðal annars að segja frá ræðu, sem rómverski mælsku- snillingurinn Cicero flutti árið 66 f.Kr. en þá vitnaði hann til fjár- málakreppunnar 20 árum áður. Í ræðunni hvatti Cicero til, að Pom- peiusi yrði falið að stýra hernum gegn Míþrídates, konungi Pontus á Svartahafsströnd Tyrklands. Minnti hann áheyrendur á hvað gerst hefði fyrir 22 árum þegar þessi sami Míþrídates réðst inn í skattland Rómverja í Litlu-Asíu og sagði, að kostnaðurinn við að verj- ast innrásinni hefði valdið fjár- málakreppu í Róm. „Stöndum saman gegn hættunni og trúið mér þegar ég segi, að fjár- málakerfið í Róm er tengt fjár- málakerfinu í Asíu. Hrynji annað, dregur það hitt með sér.“ Kay segir, að þessi orð Ciceros séu furðulega nútímaleg. „Setjum bandarísku undirmálslánin inn í staðinn fyrir „fjármálakerfið í As- íu“ og breska bankakerfið í staðinn fyrir „fjármálakerfið í Róm“ og út- koman er sú sama.“ svs@mbl.is Sama kreppa í Róm 88 f.Kr. Marcus T. Cicero SAMTÖK kvenna á vinnumarkaði í Bangladesh efndu til fundar í Dacca, höfuðborg landsins, í gær til að krefjast tafarlausra aðgerða í lofts- lagsmálum. Voru konurnar með grímur í líki leiðtoga helstu iðnríkjanna en fáar þjóðir eiga jafnmikið undir því, að sjávarborð hækki ekki mikið vegna hlýnunar andrúmsloftsins. 60% landsins eru undir sex metrum yfir sjávarmáli og á stórum svæðum færi allt í kaf ef sjávarborð hækkaði um einn eða hálfan annan metra. Kon- urnar kröfðust þess, að ríku þjóðirnar drægju verulega úr mengun og rausnuðust auk þess til að bæta fátækum þjóðum í einhverju þann skaða, sem þær hafa þegar orðið fyrir af völdum loftslagsbreytinga. Óttast að landið sökkvi í sæ AP Fullveldisfagnaður í Norræna húsinu Dansk-íslenska félagið efnir til fullveldisfagnaðar í Norræna húsinu sunnudaginn 30. nóvember nk. kl. 16.00. Páll Skúlason mun skýra frá aðdraganda fullveldissáttmálans frá 1918 og styðjast við heimildir sem hann fann nýlega í Kaupmannahöfn. Vala Kristjánsson les upp. Þá verður flutt nýtt tónverk eftir Ríkarð Örn Pálsson: Smiðurinn og bakarinn. Sönghópurinn Hljómeyki annast flutninginn. Að lokum verður talað um Hermann Wessel og hvernig hann tengist íslenskum bókmenntum. Allir velkomnir. Aðgangseyrir er kr. 1.000. Dansk-íslenska félagið Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.