Morgunblaðið - 29.11.2008, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 29.11.2008, Qupperneq 34
34 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008 Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is Þ ótt hljótt hafi verið um starfsemi mæðrafélagsins Satt að segja hafa tugir mæðra komið á fundi þess frá því að það var stofnað í fyrra. Þetta eru mæður sem eiga börn sem beitt hafa verið kynferðislegu ofbeldi og mæð- ur sem sjálfar urðu fórnarlömb níðinga í bernsku. Sumar voru að rjúfa margra áratuga þögn. Mæðrafélagið var stofnað í nóvember í fyrra við eldhúsborðið heima hjá Gunnþórunni Jóns- dóttur í kjölfar þess að hún var beðin um að vera verndari eins forvarnarverkefna samtak- anna Blátt áfram. Mæðurnar án málsvara „Mæður hafa ekki málsvara í samfélaginu og það var mikil þörf fyrir að sameina þessa reynslu. Hingað kom hópur af konum sem glímdu við mikinn sársauka og reiði. Konunum var mikið niðri fyrir. Þegar þær fóru að hittast reglulega gátu þær smátt og smátt talað saman án þess að bresta í grát,“ segir Gunnþórunn. Markmiðið með starfsemi mæðrafélagsins er að mæður losni við óttann og kvíðann með því að deila reynslu sinni með öðrum mæðrum. Í kjölfarið geti þær farið að byggja sjálfar sig upp til þess að geta verið til staðar fyrir barnið sem beitt hefur verið ofbeldi. Nauðsyn að hlusta á börnin „Þetta er hjálparstarf og félagsskapur mæðra alls staðar að úr þjóðfélaginu sem vilja vinna á jaðrinum. Við erum ekki fræðingar. Hins vegar viljum við vinna með þeim fræð- ingum sem eru til staðar í samfélaginu og deila af reynslu okkar,“ tekur Gunnþórunn fram. Hún segir mæður ekki hafa fengið nægan stuðning í samfélaginu og jafnvel ekki innan fjölskyldna sinna. „Þær vilja rjúfa þögnina sem ríkir um þessi mál og hvetja forráðamenn barna og alla sem vinna með börnum að vera á varðbergi gagnvart kynferðislegu ofbeldi. Þær hvetja einnig alla til þess að hlusta á börnin og trúa þeim þegar þau greina frá misþyrming- unum, hvort sem þau hafa orðið fyrir þeim utan heimilis eða innan.“ Þagað til að hlífa afa eða föður Á fundum sínum hafa mæður sem beittar voru ofbeldi í bernsku greint frá því að þeirra eigin mæður hafi neitað að leggja trúnað á frá- sögn þeirra. Í öðrum tilfellum hafa mæður og barnið þeirra látið undan þrýstingi frá sjálfum níðingnum sem hefur verið nákominn ættingi. Stundum hefur verið þagað í tugi ára vegna fjölskyldum eins og skilnaðir og áfengissýki sem við ætlum einnig að fjalla um á málþinginu okkar. Við ætlum hins vegar ekki bara að ræða um það sem sundrar, heldur einnig um það sem getur sameinað og við óskum eftir því að sem flestir komi og taki þátt eða hlusti. Það eru til leiðir til þess að fólki geti liðið betur eins og starfsemi mæðrafélagsins og samtakanna Blátt áfram hefur sýnt.“ Hýsir Blátt áfram heima hjá sér Sigríður Björnsdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna Blátt áfram sem fengið hafa aðset- ur á neðri hæð heimilis Gunnþórunnar, segist í mæðrafélaginu hafa fundið það sem hún sjálf þráði mest í bernsku, þ.e. skilning á skelfingu og vanlíðan barns sem beitt hefur verið kyn- ferðislegu ofbeldi. „Ég sá stuðning mæðra við börn sín, það er að segja það sem eðlilegt er undir svona kringumstæðum.“ Mæðurnar rjúfa þögnina Morgunblaðið/Ómar Hjálparstarf Þessar kraftmiklu konur standa sig vel: Anna María Halldórsdóttir, Gabríela Kristjánsdóttir, Gunnþórunn Jónsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, Jóna Hrönn Bolladóttir og Steinunn Ósk Guðmundsdóttir, við borðið þar sem mæðrafélagið var stofnað.  Mæðrafélagið Satt að segja berst gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum  Tugir mæðra sem glíma við mikinn sársauka hafa leitað stuðnings hjá félaginu  Málþing um stöðu fjölskyldna Í HNOTSKURN »Málþing til stuðnings íslenskum fjöl-skyldum verður haldið í Vídalíns- kirkju fimmtudaginn 4. desember kl. 20-22. »Fjallað verður um starfsemi mæðra-félagsins Satt að segja, áhrif skiln- aðar á börn og ábyrgð foreldra í sam- settum fjölskyldum, áhrif fátæktar á börn og fjölskyldur, áhrif áfengissýki og áhrif kynferðislegs ofbeldis. þrýstings um að hlífa frænda, afa, bróður eða jafnvel föður. „Með því að mæta á Austurvöll og borg- arafundi eru menn að segja það sem þeim ligg- ur á hjarta. Við ákváðum að færa umræðuna frá matarborðinu hennar Gunnþórunnar og það sem konunum liggur á hjarta út í sam- félagið og fjalla um þetta á málþingi um stöðu íslensku fjölskyldunnar í Vídalínskirkju. Það þarf að rjúfa þögnina,“ segir séra Jóna Hrönn Bolladóttir. „Kynferðislegt ofbeldi sem hefur verið þagg- að niður hefur áhrif á heilsufar fólks, hjóna- bandið, fjölskyldutengslin og þátttöku í at- vinnulífinu. Þetta hefur miklu meiri áhrif inn í þjóðfélagið en við gerum okkur grein fyrir. Þetta hefur áhrif á sjálfa lífshamingjuna,“ segir Jóna Hrönn. Hægt að sameina fjölskyldur Hún leggur áherslu á að engin stórfjölskylda verði söm eftir svona atburði. „Þetta sundrar Mæðrafélagið Satt að segja segir samfélagið þurfa að vakna til vitundar og aðgerða vegna kynferðislegs ofbeldis á börnum. Félagið segir marga angistarfulla forráðamenn leita réttlætis og úrræða fyrir börn sín. Í áskorun sinni til stjórnvalda leggja mæð- urnar meðal annars áherslu á að mark sé tekið á forráðamönnum barna sem beitt hafa verið kynferðislegu ofbeldi. Að foreldrar og börn fái viðeigandi stuðning og meðferðarúrræði og að börn sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi fái sálfræðiaðstoð á kostnað ríkisins í að minnsta kosti fimm ár. Jafnframt að þeir sem tilkynni eða kæri kyn- ferðisofbeldi á börnum fái leiðbeiningar um hvernig bregðast skuli við og hvert skuli leita í framhaldinu og að tryggt sé að öll gögn og allar nýjar upplýsingar í málum berist hratt og örugglega milli stofnana. Samtökin Blátt áfram, sem stofnuð voru fyr- ir fjórum árum, eru sjálfstæð félagasamtök. Tilgangur þeirra er að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum á Íslandi. Markmiðið með forvarnavinnunni er ekki síst að koma í veg fyrir vandamál á fullorðins- árum hjá þeim sem verða fyrir þessari ógæfu á barnsaldri, að því er segir á heimasíðu barnanna. Það er skoðun samtakanna að markmiðið ná- ist með fræðslu, opnari og jákvæðari um- ræðu um málefnið í samfélaginu og með breytingu á hegningarlöggjöfinni. Liður í forvarnastarfi samtakanna er nám- skeiðahald fyrir þá sem starfa með börnum. Samtökin hafa fengið styrk frá Reykjavík- urborg til þess að halda námskeið fyrir kenn- ara um hvernig greina megi merki um ofbeldi og hvernig styðja eigi börnin. Vilja vekja samfélagið til aðgerða Eftir Atla Vigfússon Þingeyjarsveit | „Ég er mjög ánægð hérna í sveitinni og sérstaklega ánægð með nýja leikskólann,“ seg- ir Sigrún María Olsen og undir þetta tekur Ásta Hrönn Hersteins- dóttir en þær stöllur tóku að sér leikskóladeildina sem stofnuð var í Bárðardal í haust. Leikskóladeild þessi hefur verið nefnd Bárðargil og er staðsett í Kiðagili þar sem áður var barnaskólinn sem nú er aflagður. Þær Sigrún og Ásta eru báðar frá Akureyri og fengu ágætt húsnæði í dalnum og líkar vinnan vel í þessum litla leikskóla. „Við erum með opið alla daga frá kl. 8-16 og hér eru 6 börn en ekki öll í heilsdagsvistun,“ segir Sigrún en segir ennfremur að e.t.v. sé von á sjöunda barninu í skólann eftir áramót. Þær Ásta Hrönn og Sigrún María eru báða sammála um það að þetta sé mjög skemmtilegt og öðru vísi starfsaðstæður heldur en í stóru leikskólunum í þéttbýlinu. Oft sé skipt upp í hópa og þá eru bara 2-3 börn á hvern starfsmann og það gefur bæði barni og kenn- ara mikla möguleika. Mörg góð gildi í Bárðargili Leikskóladeildin Bárðargil er starfrækt undir stjórn Stóru- tjarnaskóla og gilda sömu reglur þar og í leikskólanum Tjarn- arskjóli í Ljósavatnsskarði. Í sam- verustundum er sérstök áhersla á hlustun, lestur, söng og hljóðfæra- leik. Í umhyggju læra börnin að vera góð hvert við annað og annan hvern föstudag eru uppákomur af ýmsu tagi. Þá er mikil áhersla lögð á gönguferðir og útivist. Mikil ánægja er í Bárðardal með nýju leikskóladeildina en starfsemi sem þessi hefur legið niðri, m.a. vegna fækkunar fólks og barnfæðar. Nú virðist hafa ræst úr og er þó nokkuð af ungum börnum. Tvö barnanna koma úr Svartárkoti og væri mjög langt fyrir þau að fara í leikskólann Tjarnarból og þess vegna er fólk mjög ánægt með það fyr- irkomulag sem kom með leikskól- anum Bárðargili. Sex börn í nýja leikskólanum í Bárðardal Morgunblaðið/Atli Vigfússon Kátir krakkar Ásta Hrönn Hersteinsdóttir og Sigrún María Olsen með leik- skólabörnunum í Bárðargili. F.v. Gísli Berg Hlinason, Arndís Björk Tryggvadóttir, Katrín Ösp Magnúsdóttir og Róbert Már Andrason. Tvö börn voru fjarverandi. Í HNOTSKURN »Börn úr utanverðum Bárð-ardal eru í leikskólanum Tjarnarskjóli í Ljósavatns- skarði. »Mjög langt er að fara úrinnanverðum Bárðardal út í Ljósavatnsskarð með börnin í leikskóla og því fannst fólki fengur í því að fá leik- skóladeild nær sér til þess að þurfa ekki að aka mjög langan veg með litlu börnin. Davíð Hjálmar Haraldsson rýndií mótmæli tveggja berrassaðra kvenna á Lækjartorgi, sem vildu fremur vera berholda en að klæðast loðfeldum. Honum varð að orði: Kona hljóp um kuldablá, klæddist eigin skinni. Vörtu hafði væna á vinstri rasskinninni. Björn Ingólfsson orti að bragði: Ungfrúnum var ekkert kalt, allvel þoldu næðinginn. Vildu sýna á sér allt utan blessuð loðskinnin. Þá Hallmundur Kristinsson: Eigin sjón mér illa brást. Af því beið ég hnekki. Þessa vörtu sem þú sást sá ég bara ekki! Loks Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum: Fá að líta fagurt skinn fannst nú Davíð gaman. Var nú ekki væni minn vartan stærri að framan? VÍSNAHORN pebl@mbl.is Af berholda mótmælum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.