Morgunblaðið - 29.11.2008, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 29.11.2008, Blaðsíða 35
Daglegt líf 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008 Mögnuð saga um læknamistök á hátækni- sjúkrahúsi. Hvert barn á rétt til lífs, en á fullorðinn maður rétt til að deyja ef líf hans verður óbærilegt? Bók sem vekur spurningar. Ljósmynd/www.sissi.is Skygging Hér sést vel hvernig skyggingin á augunum er. Eftir Sigurbjörgu Arnarsdóttur sibba@mbl.is Þ að er gott að fá smá sýni- kennslu í því hvernig best er að bera sig að við að líta sómasamlega út á aðventunni. Björg Alfreðsdóttir förð- unarmeistari hjá MAC farðaði fyr- irsætuna Lindu Mjöll Sindradóttur á mjög klassískan hátt og hentar þessi förðun flestum konum. „Þessi förðun er þannig að hún fer öllum konum vel. Brúnir og grá- svartir augnskuggar eru þannig litir að þeir passa við allan fatnað og augnliti.“ Þó svo að Björg hafi notað gloss sem er þannig á litinn að hann fari flestum vel er hægt að nota hvaða varalit við sem er og er rauður vara- litur t.d. mjög fallegur með svona förðun. Þá segir Björg að einnig sé hægt að dekkja meira eða minna og nota aðra liti á augun, allt eftir smekk hvers og eins. Þegar Björg er spurð um hverju konur klikki oftast á í sinni förðun, segir hún að það sé yfirleitt að blanda litunum ekki nóg saman. „Falleg förðun er alltaf vel blönduð, hvort sem það eru augnskuggarnir, kinnaliturinn eða farðinn. Mark- miðið er að reyna að má út allar harðar línur þegar litir eða mismun- andi áferðir mætast. Til að ná þessu fram er best að nota góða bursta, því þeir auðvelda þetta mjög mikið.“ Húðin Fyrst var rakakrem borið á allt andlitið. Léttur farði kom næst á eftir og hyljari undir augun. Púðri var dustað yfir farðann með bursta. Skygging Laust ljóst glitpúður var sett ofan á kinnbeinin og unnið vel inn í húðina með bursta, gott að nota hringlaga hreyfingar við þetta. Næst var skyggt undir kinn- beinin með grábrúnum kinnalit, má alveg eins nota matt sól- arpúður. Gott að byrja að skyggja út frá eyranu í átt að munni en passa að fara ekki of nálægt hon- um. Augu Ljós kremaugnskuggi var settur í þunnu lagi yfir hreint augnlokið. Hann myndar góðan grunn undir venjulegan augn- skugga. Ljós augnskuggi með sat- ínáferð var síðan settur yfir allt augnlokið og alveg upp að auga- brúnum. Í skygginguna var not- aður ljósbrúnn augnskuggi sem var settur yst á augnlokið og upp meðfram augnlokinu. Gott að blanda brúna litnum inn í þann ljósa með bursta. Grásvartur litur var svo settur yfir þann brúna og aftur blandað með burstanum. Eyeliner var svo dreginn frá augn- krók meðfram augnhárunum og aðeins dreginn upp í endann. Ör- litlu af grásvarta augnskugganum var nuddað inn í neðri augnhárin. Svartur maskari var svo notaður ásamt gerviaugnhárum. Augabrúnir Burstað var yfir þær með bursta og litað gel notað til að móta þær og gefa þeim fyllingu. Kinnalitur Bleik-ferskjulitaður kinnalitur var settur í eplin á kinn- unum og blandað inn í skygg- inguna undir kinnbeinunum. Varir Varir voru mótaðar með varalitablýanti í tón sem passaði við varir fyrirsætunnar og gloss í rauðbleikum tón settur á í lokin. Allar vörur sem Björg notaði voru frá MAC. Skref fyrir skref Auðvelt á aðventu Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is UM LEIÐ og fartölvur verða sífellt minni og nettari þá færist líka ým- isleg fartölvutækni inn í símana. Helsti hængur á því hefur verið að koma lyklaborði fyrir í síma og um leið skjá sem er það góður að hægt sé að vinna á hon- um. Ekki er gott að sjá að hægt sé að komast miklu lengra í þeim efn- um en Nokia hefur náð með E71, sem er arf- taki vinnuþjarksins E61. E71 er óneitanlega nokkuð stór, rúmlega ellefu sentimetrar á hæð og tæpir sex á breidd, enda er á honum 2,36“ skjár og fullskipað lyklaborð, þó það sé ekki fullvaxið. Skjárinn á símanum er frábær, bjartur og skýr. Of langt mál er að telja upp allt það sem prýðir þennan síma, en meðal þess sem gerir notkunina þægilega er að það er hægt að setja upp mismunandi „heimaskjái“ sem einfalt er að skipta á milli. Þannig er hægt að hafa vinnuskjá og síðan skipta yfir í heimaskjá, eða hafa vinnuskjá fyrir starf hér heima, en síðan setja upp annarskonar skjá- borð fyrir ferðalög. Þetta hljómar kannski ekki ýkja hagkvæmt, en er mjög þægilegt um leið og maður fer að nota það. E71 er Quad-band og styður grúa símastaðla, aukinheldur sem hægt er að nota þráðlaust net (ætti eiginlega að vera staðalbúnaður í símum nú til dags). Hann er líka með innbyggt GPS og Google Maps kemur einkar vel út á svo góð- um skjá. Myndavél í símanum er ekki ýkja öflug, 3,2 milljóna díla, en hún er með sjálfvirkum fókus, LED-flassi og fleiru gagnlegu þannig að hún nýtist býsna vel. Með E71 hefur Nokia tekið slaginn við Black- Berry, því ekki er hægt að setja BlackBerry-móttöku upp á honum, og fróðlegt verður að sjá hvernig sú glíma fer. Það má því líta á E71 sem beinan keppinaut BlackBerry Bold enda eru þeir áþekkir um margt. Tæknilega hefur E71 þó vinninginn og stýrikerfið er óneit- anlega talsvert nútímalegra og betra. Nútímalegur vinnuþjarkur Öflugur Stór skjár og lyklaborð ein- kenna Nokia E71.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.