Morgunblaðið - 29.11.2008, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.11.2008, Blaðsíða 48
48 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008 ✝ Þorvaldur Hall-dórsson fæddist í Vörum í Garði 17. ágúst 1920. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 22. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Halldór Þor- steinsson, skipstjóri og útvegsbóndi frá Melbæ í Leiru, f. 22.2. 1887, d. 3.1. 1980 og Kristjana Pálína Kristjáns- dóttir, húsfreyja frá Hellukoti á Vatnsleysuströnd, f. 2.11. 1885, d. 1.8. 1975. Systkini Þorvaldar eru: Þorsteinn Kristinn, f. 22.2. 1912, d. 19.1. 1990, Vilhjálmur Kristján, f. 5.7. 1913, d. 1.4. 1997, Gísli Jó- hann, f. 10.7. 1914, d. 20.4. 2001, Halldóra, f. 27.9. 1915, dvelur á Garðvangi í Garði, Steinunn, f. 29.10. 1916, d. 29.12. 2001, Guð- rún, f. 23.3. 1918, búsett í Reykja- vík, Elísabet Vilborg, f. 22.5. 1919, d. 4.3. 1998, Kristín, f. 22.11. 1921, búsett í Reykjavík, Marta Guðrún, f. 12.2. 1923, d. 31.3. 2001, Helga, f. 9.9. 1924, d. 9.9. 1924, Þorsteinn Nikulás, f. 10.1. 1927, d. 24.12. 1984 og Karítas Hallbera, f. 12.9. 1928, búsett í Garði. Þorvaldur kvæntist 25. desem- ber 1955 Ingibjörgu Jóhanns- dóttur, f. 24.9. 1925 og bjuggu þau allan sinn búskap í Vörum í Garði. Foreldrar hennar voru Jóhann Þorsteinsson, f. 4.9. 1897, d. 19.8. 1995 og Vilborg Guðmundsdóttir, Helga, f. 29.7. 1992, og Jóhann Ingi, f. 30.11. 1995. Þorvaldur ólst upp í foreldra- húsum í Vörum Garði. Lífsbar- áttan var hörð á þessum árum og strax og aldur og geta leyfðu vann hann ásamt systkinum sín- um við útgerð föður síns sem gerði út og átti bátinn Gunnar Há- mundarson í Garði. Þorvaldur fór til sjós 14 ára gamall með Gísla bróður sínum. Hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum árið 1941. Eftir prófið var hann land- formaður og síðar stýrimaður hjá Gísla bróður sínum. Eftir að Gísli hætti tók hann sjálfur við skip- stjórn á Gunnari Hámundarsyni árið 1948 og hóf jafnframt útgerð með föður sínum og síðar einnig Þorsteini bróður sínum. Þorvald- ur var mikill gæfu- og aflamaður til sjós. Eftir að hann hætti á sjó árið 1988 hélt hann áfram útgerð Gunnars Hámundarsonar með sonum sínum. Eftir að Þorvaldur hætti til sjós fór hann að sinna áhugamálum sínum betur. Hann var mikill áhugamaður um skógrækt sem hann stundaði bæði heima hjá sér og í sumarbústaðnum. Hann hafði gaman af því að ferðast bæði inn- anlands og utan. Hann hafði mik- inn áhuga á íþróttum, knatt- spyrnu, handbolta og brids en þá sérstaklega þeim sem börn og barnabörn hans stunduðu. Hann var mikill stuðningsmaður Knatt- spyrnufélagsins Víðis og var með- al stofnenda félagsins árið 1936. Útför Þorvaldar fer fram frá Útskálakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Aðstaða verður í Íþrótta- miðstöðinni í Garði til að fylgjast með athöfninni. f. 12.12. 1893, d. 13.6. 1977. Börn Þor- valdar og Ingibjarg- ar eru: 1) Valgerður, f. 18.10. 1955, gift Braga Guðmunds- syni, f. 10.5. 1955. Börn þeirra eru: a) Pétur, f. 28.1.1975, sambýliskona Birta Ólafsdóttir, f. 29.5. 1976. Börn þeirra eru Ólafur Jóhann, f. 12.1. 2002 og Bragi Valur, f. 14.2. 2006. b) Þorvaldur Hall- dór, f. 9.11. 1979, sambýliskona Berglind Skúladóttir, f. 1.2. 1981. Sonur hennar er Arnór Ingi Ingvason, f. 15.9. 1998. c) Svein- björn, f. 15.2. 1984, sambýliskona Þórunn Hannesdóttir, f. 17.3. 1985, d) Bára, f. 22.2. 1988. 2) Halldór Kristján, f. 11.2. 1957, sambýliskona Kolbrún Þórlinds- dóttir, f. 23.4. 1965. Börn þeirra eru Þorvaldur, f. 10.7. 1986, og Þóra Lind, f. 27.11. 1996. 3) Ingi- mar Jón, f. 3.7. 1959, kvæntur El- ínu Kjartansdóttur, f. 27.10. 1960. Dóttir þeirra er Lilja, f. 10.1. 1994. 4) Vilberg Jóhann, f. 7.11. 1962, kvæntur Helenu Rafnsdótt- ur, f. 11.4. 1964. Börn þeirra eru: a) Rafn Markús, f. 8.10. 1983, sam- býliskona Hildigunnur Krist- insdóttir, f. 22.10. 1983. Dóttir þeirra er Helena, f. 11.12. 2003. b) Ingibjörg Elva, f. 5.3. 1988. c) Helgi Már, f. 4.1. 1993. 5) Þorvald- ur, f. 2.9. 1965, kvæntur Mikkal- ínu Þ.K. Finnbjörnsdóttur, 17.2. 1969. Börn þeirra eru Guðbjörg Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Nú ertu kominn til foreldra þinna, systkina og vina sem farin voru á undan þér. Það er ég alveg viss um, því þú trúðir á líf eftir dauðann. Hjá okkur sem eftir lifum hefst nú öðruvísi líf því þú áttir svo stór- an þátt í okkar daglega lífi. Fallegar minningar um yndis- legan föður eru dýrmæt eign. Guð leiði þig og verndi í nýjum heim- kynnum. Elsku pabbi, takk fyrir allt. Þín dóttir Valgerður. Elsku pabbi, tengdapabbi, afi og langafi. Ég minnist þín um daga og dimmar nætur. Mig dreymir þig, svo lengi hjartað slær. Og meðan húmið hylur allt sem grætur, mín hugarrós á leiði þínu grær. Þín kærleiksbros, þau aldrei, aldrei gleymast. Þitt allt, þitt bænarmál og hvarms þíns tár. Hvert bros, hvert orð, hvert armtak þitt skal geymast. Þín ástarminning græðir lífs míns sár. (Ásmundur Jónsson.) Minning þín lifir í hjörtum okk- ar. Vilberg Jóhann og fjölskylda. Mig langar með nokkrum orðum að minnast elskulegs tengdaföður míns sem lést hinn 22. nóv. sl. Í fyrsta sinn sem við Valdi hittumst tók hann á móti mér með opin faðminn og í þau 24 ár sem við átt- um samleið hvorki lokaðist faðmur hans né bar skugga á vináttu okk- ar. Við vorum miklir vinir og gát- um rætt um allt. Maður gleymdi því iðulega hversu fullorðinn hann var orðinn, svo mikill var kraft- urinn og lífsgleðin alltaf. Og hann hugsaði ekki eins og gamall maður heldur. Eitt sinn hringdi hann frá Kan- arí og var að segja frá fólkinu í hópnum og hvað væri verið að bar- dúsa þar og segir að á morgnana safnist fólkið saman við ákveðið hótel og spili botsía og hann var spurður hvort hann tæki ekki þátt í því. Nei, þá sagðist hann nú ekki gera það, þetta væri bara fyrir gamla fólkið. Ég hef alltaf verið stolt af því að eiga hann fyrir tengdaföður því betri mann var ekki hægt að finna, örlátur og alltaf tilbúinn að hjálpa öllum og bar fjölskyldu sína á höndum sér. Hann var líka ein- stakur afi sem alltaf hafði tíma fyrir barnabörnin sín og var óþreytandi að segja sögur og sýna þeim myndir frá fyrri tíð. Sambandið milli tengdaforeldra minna var afskaplega fallegt en þau áttu samleið í 53 ár og voru alltaf eins og nýtrúlofuð. Á milli þeirra var mikil ást og gagnkvæm virðing alla tíð og hann sagði að galdurinn væri að láta alltaf eins og maður væri í tilhugalífinu. Hann átti fallega trú sem hann var duglegur að iðka og bar áfram til barna sinna og barnabarna. Ég hef lengi kviðið þessari stundu, ekki síst vegna Halla míns sem ekki bara sér á eftir ástkær- um föður heldur líka sínum besta vini. Þeir áttu náið og gott sam- band alla tíð, deildu sama áhuga- máli og höfðu lík viðhorf í mörgu. Ég veit að það bíða hans erfiðir tímar að hafa ekki pabba sinn til að ráðfæra sig við. Það er mikill gullmoli sem við kveðjum nú í dag, lífsglaður maður með stórt hjarta sem allir báru virðingu fyrir enda mikil fyrirmynd fyrir okkur öll vegna þeirra lífsgilda sem hann til- einkaði sér. Ég sakna hans svo mikið að mig verkjar í hjartað en ég er líka svo þakklát fyrir öll árin sem við fengum að hafa hann svona hressan og glaðan og ég er líka þakklát fyrir að hann fékk að kveðja á þann hátt sem varð. Elsku Valdi minn, þakka þér fyrir vináttu okkar og allt sem þú gerðir fyrir mig og mína fjöl- skyldu. Elsku Inga mín, Gerða, Halli, Ingi, Vilberg, Valdi og fjöl- skyldur. Ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur og bið góðan guð að styrkja ykkur öll. Guð geymi minningu um yndisleg- an mann sem lifði lífinu lifandi fram á síðasta dag. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez.) Guð geymi þig, Valdi minn. Þín tengdadóttir, Kolbrún. Elsku Valdi afi, ég mun sakna þín mjög mikið. Þú varst alltaf rosalega góður afi. Þú varst svo stoltur af barnabörnunum þínum og varst alltaf að monta þig af þeim. Við vorum líka stolt að vera barnabörnin þín. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, og það var sko ekki lítið. Ég gat alltaf talað við þig um allt. Þú varst alltaf að segja mér sögur frá því þegar þú varst ungur, af þér og ömmu, af langömmu minni og langafa. Ég var mjög heppin að eiga þig sem afa og ég á mjög margar góðar minningar um þig. Ég elska þig og guð geymi þig. Takk fyrir allt. Kveðja, Þóra Lind afastelpa. Elsku afi. Það er virkilega erfitt að hugsa til þess að þú skulir vera farinn frá okkur. Það er óraun- veruleg tilhugsun að fara í heim- sókn niður að Vörum til afa og ömmu, og að þú verðir ekki þar. Þið amma sátuð alltaf í sófanum fyrir framan anddyrið, og svo þeg- ar ég opnaði dyrnar þá var alltaf tekið svo vel á móti mér. Þú sagðir alltaf: „Nei, komdu nú blessaður, Þorvaldur.“ Svo spurðir þú hvern- ig ég hefði það og hvernig mér gengi í því sem ég var að gera. Alltaf barst þú hag annarra fyrir brjósti. Það voru alltaf allir vel- komnir á heimili þitt. Þú tókst vel á móti öllum og þú komst vel fram við alla. Neikvæðni eða svartsýni var ekki til í þínum huga og þú varst alltaf tilbúinn til þess að hjálpa öllum við hvaða tilefni sem var. Þú hafðir svo sterka útgeislun sem smitaði út frá sér gleði og kærleika til allra þeirra sem voru nálægt þér. Þú varst mjög heið- arlegur og góðhjartaður maður og góð fyrirmynd allra. Þú varst ekki bara afi minn, þú varst stór hluti af mér og þú kenndir mér svo margt. Þegar mamma hringdi í mig af spítalanum um miðja nótt, þá vissi ég strax hvað biði mín þegar ég myndi svara. Eftir að símtalinu lauk stóð ég grafkyrr í myrkrinu í langan tíma með símann í hend- inni. Það hafði aldrei hvarflað að mér að þessi ferð þín á sjúkra- húsið ætti eftir að enda svona. Al- veg síðan ég man eftir mér, hef ég verið stoltur af því að vera alnafni afa í Vörum. Oft þegar ég kom heim til ykkar ömmu og það voru gestir hjá ykkur, þá gleymi ég aldrei hvernig þú kynntir mig fyrir þeim. Þú tókst utan um öxlina á mér og sagðir svo með áherslu: „Þetta er sko Þorvaldur Halldórs- son.“ Það sáu allir hversu stoltur þú varst að geta kynnt þá fyrir al- nafna þínum. Svona kynningu fékk ég í hvert skipti. En þó svo að ég muni ekki fá svona kynningu aftur frá þér, þá veistu það, afi minn, að í hvert skipti sem ég þarf að kynna mig í framtíðinni, þá hugsa ég til þín og get stoltur sagt: „Ég heiti Þorvaldur Halldórsson.“ Elsku afi, þó að ég eigi eftir að sakna þín mikið, þá er ég gríð- arlega þakklátur fyrir að hafa kynnst þér svona vel. Það voru forréttindi að hafa átt jafn ynd- islegan og góðan mann eins og þig fyrir afa. Besta afa sem nokkur getur hugsað sér. Hvíl í friði, elsku Valdi afi. Þinn sonarsonur, Þorvaldur Halldórsson. Elsku afi í Vörum. Kátur, sterk- ur, gestrisinn, lífsglaður, orkumik- ill, hlýr, hamingjusamur og traust- ur eru allt orð sem koma upp í hugann þegar ég hugsa um þig. Hugurinn svo miklu yngri en lík- aminn og krafturinn óþrjótandi fram á hinstu stund. Það fór alltaf um mig góður straumur þegar ég kom niður í Varir til ömmu og afa. Spjall í eldhúsinu yfir sterku Ríó- kaffi, amma á þönum um allt hús og afi við eldhúsborðið. Alltaf svo áhugasamur, spurði frétta eða sagði frá áformum sínum varðandi báta eða framkvæmdum uppi í heiði. Nærvera hans, jákvæðni og góðmennska er nokkuð sem ég mun búa að alla tíð. Ég er heppinn að hafa átt þig sem afa og að hafa kynnst þér svona vel. Þú kenndir mér listina að vera góð manneskja og eftir þínum ráðum mun ég fara alla tíð. Þinn, Sveinbjörn. Elsku afi, þá er komið að kveðjustundinni. Það er erfitt að finna orð sem lýsa því hvað mér þykir vænt um þig og hvað ég er þakklátur fyrir allt sem þú hefur kennt mér og allt það sem ég hef upplifað með þér. Takk fyrir, afi minn. Þú ert stórmenni sem hefur skil- ið eftir þig stór spor hér á jörð með vinnusemi þinni, gleði og ein- stakri hjartahlýju og góðmennsku. Þú hefur gert mörgum svo gott og skilur eftir þig stóra og góða fjöl- skyldu og einstakt orðspor. Þú hefur svo sannarlega bætt heim- inn. Takk fyrir hvað þú hefur verið mér, Birtu, strákunum mínum, pabba, mömmu og systkinum mik- ið fordæmi og einstaklega góður vinur. Ég mun hafa þín gildi að leiðarljósi og hvetja strákana mína, eins og þú hefur ávallt hvatt mig, með gleði, ást og umhyggju. Núna munum við ekki hittast jafn oft, en ég mun hugsa til þín eins og áður, á hverjum degi þegar ég fer að sofa. Alveg eins og við tveir höfum alltaf gert hvor fyrir annan. Þinn afastrákur Pétur og fjölskylda. Þegar ég sest niður og hugsa um hann afa minn, þá er svo margt sem kemur upp í hugann. Allar mínar minningar um hann eru góðar, og mér líður vel að hugsa um þennan góða mann, sem ég var svo heppin að fá að kynnast svona vel. Hann hrósaði öllum í bak og fyrir, og sagði jafnvel ókunnugum hvað honum þætti þau vera yndisleg og falleg. Hann var alltaf svo lífsglaður og fullur af krafti að ég trúi þessu ekki enn. En líkaminn brást þó svo að hug- urinn væri miklu yngri. Mikið rosalega er erfitt að horfa á eftir honum Valda afa mínum, sem allir dáðu og elskuðu. Hann var svo hreykinn af fólkinu í kringum sig og hann hvatti alla áfram. Þegar ég sagði honum að ég ætlaði að fara í hjúkrunarfræði, þá varð hann heldur betur ánægð- ur og sagði mér margar sögur um yndislegar hjúkrunarkonur sem höfðu annast hann, og hann var í engum vafa um að ég myndi verða góð í þessu starfi. Svona stuðn- ingur er ekki sjálfgefinn og mun hann hjálpa mér mikið. Afi minn var alveg einstakur maður og mun minningin um hann alltaf lifa með mér. Hans stóru, sterku hendur og hans innilega, mikla faðmlag er mér ofarlega í huga. Einnig mun ég sakna þess að sjá hann í glugganum sínum að lesa með stóru gleraugun, þegar ég hleyp yfir túnið í heimsókn til ömmu og afa. En ég trúi því að hann sé ennþá með okkur, bara í annarri mynd. Svo að ég er í eng- um vafa um að það verði áfram notalegt að koma í Varirnar. Hvíldu í friði, elsku afi. Þín verður sárt saknað. Bára Bragadóttir. Vinur minn og mágur, Þorvaldur Halldórsson, er farinn, síðastur 5 bræðra. Upp í hugann kemur, hvað það var stór, ungur og hress hópur fyrstu jólin mín í Vörum ár- ið 1938, enda sagði sr. Eiríkur: „Það er messufært.“ Dóra spilaði á orgelið og allir sungu með, það átti að skíra 2 nýja fjölskyldumeðlimi. Þetta varð að fögrum jólasið í nokkra áratugi, við þetta ólst Valdi upp, mikla vinnu, kirkjurækni og reglusemi. Þau voru samhent Kristjana og Halldór með sinn stóra hóp. Valdi fann sér góða konu, Ingi- björgu Jóhannsdóttur, þau voru samhent um að eignast gott heim- ili fyrir sig og börnin, þau voru góð heim að sækja, það fylgdi Valda björt gleði í gegnum tíðina og hann var alltaf kátur og hlýr. Ég þakka fyrir langa og góða samfylgd, innilegar samúðarkveðj- ur til Ingu og fjölskyldunnar allr- ar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Steinunn Sigurðardóttir. Það var sárt að frétta andlát míns kæra móðurbróður, Valda í Vörum. Á kveðjustund minnist ég alls þess góða sem ég nam og lærði af kynnum mínum við hann og Ingu konu hans. Ég hef búið í nágrenni við þau hjónin alla tíð og minningarnar eru margar og góð- ar. Ung að árum fékk ég að vinna við hlið Valda á reitunum þar sem saltfiskurinn var breiddur til þerr- is og læra af honum réttu hand- brögðin. Það voru forréttindi að fá að taka þátt í störfum fullorðna fólksins og um leið gott veganesti út í lífið. Að fá að fara með Valda á bátnum hans, Gunnari Hámund- arsyni, frá bryggjunni í Garði til Keflavíkur, var mikil upplifun fyrir okkur krakkana. Hlýjar móttökur skipstjórans og skipverjanna þar um borð, man ég enn. Heimili Valda og Ingu hefur alltaf verið mér opið og þangað er gott að koma. Hann átti það til, Þorvaldur Halldórsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.