Morgunblaðið - 29.11.2008, Qupperneq 49
þegar hann sá mig úti við á leið
sinni niður Varaveginn, að stoppa
og kalla til mín út um bílgluggann
„Komdu í kaffi.“ Ég lét ekki segja
mér það tvisvar. Valdi var alltaf
svo glaðsinna og hafði svo góða
nærveru. Ég man ekki eftir honum
öðruvísi en glöðum og kátum. Frá-
sagnir hans voru allar á þann veg
að hafa gaman af og létta lundina.
Hann var höfðingi heim að sækja,
vildi alltaf vera veitandi, sjaldnast
þiggjandi.
Valdi og mamma voru samrýnd
og kærleiksrík systkini og um
margt lík, bæði í útliti og háttum.
Það var gott að mega sjá örlítið af
mömmu í Valda bróður hennar eft-
ir að hún kvaddi þetta líf. Nú hef-
ur Valdi líka lokið sínu hlutverki
hér á jörð, hlutverk hans var göf-
ugt og hann skilaði því með sóma.
Hann gæti með sanni sagt:
Lát akker falla! Ég er í höfn.
Ég er með frelsara mínum.
Far vel þú æðandi dimma dröfn!
Vor Drottinn bregst eigi sínum.
Á meðan akker í æginn falla.
Ég alla vinina heyri kalla,
sem fyrri urðu hingað heim.
(Þýð.Vald. V. Snævarr.)
Ég kveð Valda móðurbróður
minn með þökk, virðingu og mikl-
um söknuði. Minning um góðan vin
mun lifa áfram með okkur sem
þekktum hann.
Góður Guð gefi þér, elsku Inga
mín og börnum þínum öllum, styrk
á sorgarstundu.
Jóhanna Amelía
Kjartansdóttir.
„Sælar elskurnar mínar“! – svo
kröftugt handtakið þannig að börn
og óvanir kveinkuðu sér og loks
faðmlagið með kossi. Einlægt bros
og falslaus framkoma. Þannig var
Þovaldur í Vörum, fyrrum skip-
stjóri og útgerðarmaður en alla tíð
gegnheill drengur. Nú er hann
horfinn úr brúnni, fyrr en flesta
grunaði.
Annarra er að rekja útgerðar-
sögu Valda í Vörum, að minnsta
kosti erum við hjónin þreklítil í þá
umræðu; bæði sjóhrædd og sjó-
veik.
Valdi var einn af tólf Varar-
systkinunum sem áttu sinn hlut í
að „gera garðinn frægan“ eins og
þar stendur. Meðfæddur eiginleiki
þeirra var dugnaður, ósérhlífni og
orðheldni og þegar við bætist ætt-
rækni og trygglyndi varð útkoman
heilsteyptur Íslendingur. Hvert
þeirra þó með sinn persónuleika
og ekki skorti hann hjá Valda. Þau
hjónin, Valdi og Inga voru höfð-
ingjar heim að sækja; lóðin stór og
snyrtileg, húsið mikið og fallegt og
gestrisni og framkoma að höfð-
ingjasið. Einn morguninn kom
sjálfur forsætisráðherrann í heim-
sókn og naut veitinga hjá Ingu
sem ljúflega runnu niður yfir tand-
urhreinum skoðunum Valda á því
hvernig bæri að nýta fiskimiðin og
hvernig væri verið að eyðileggja
uppeldisstöðvar þorsksins með
stórvirkum veiðarfærum. Hann
þekkti breytingarnar, hafandi sótt
sjóinn öll sín ár, lengst af á sínum
fallega og fengsæla Gunnari Há-
mundarsyni. Útgerðin, sem faðir
hans stofnaði árið 1911, sú elsta á
landinu, framfleytti á sínum tíma,
meira og minna, tíu fjölskyldum.
Faðir minn og tengdafaðir, hann
Bensi, reri með Valda rúmlega 30
ár og margar sögurnar af sam-
starfi þeirra höfum við fengið frá
honum. Bensi sér nú á bak sínum
besta vini og kveður með þeim
orðum er allt segja: „Valdi var
góður drengur“. Nú liggur Gunnar
Hámundarson bundinn kvótalaus í
höfn og það átti Valdi erfitt með
að horfa upp á. Oft talaði hann við
ráðamenn og lét í ljósi skoðanir
sínar um óréttlátt fiskveiðikerfi.
Þeir þekktu sjónarmið Valda,
þessa duglega og reynda sjósókn-
ara, en litlu var hægt að breyta.
Þegar Valdi hætti á sjónum var
ekki sest í helgan stein. Þvert á
móti nægði tíminn ekki til allra
þeirra dagsverka sem vinna þurfti.
Útbjó sér aðstöðu og tók að verka
saltfisk sér til gamans eins og
hann orðaði það, ferðaðist til út-
landa, gróðursetti við sumarbústað
þeirra hjóna í Grímsnesinu og við
vitum ekki betur en hann hafi ver-
ið að kaupa sér litla trillu fyrir fá-
einum mánuðum.
Við hjónin litum inn hjá Valda
og Ingu ekki alls fyrir löngu. Ein-
lægt viðmótið, spjallið dýrmætt og
við ríkari til baka. Ekki einungis
yfir að hafa hitt þetta góða frænd-
fólk heldur leyst út, þá sem áður,
með sólþurrkuðum saltfiski frá
Valda. Já, Valdi var örlátur og
fyrstur til ef eitthvað bjátaði á.
Auglýsti það ekki en vissi hvar
þörfin var.
Elsku Inga og fjölskylda. Á
sorgarstundu sendum við og börn-
in okkar og Bensi, ykkur innileg-
ustu samúðarkveðjur. Megi Guð
blessa Þorvald í Vörum, sem stýrir
nú öruggur fleyi sínu í heimahöfn
Drottins. Farðu sæll, frændi og
vinur. Þakkir fyrir allt og allt. Guð
blessi þig og ástvini þína alla.
Kristjana og Níels Árni.
Þegar ég sest niður til að minn-
ast nafna míns og föðurbróður,
Þorvaldar Halldórssonar, eða
Valda í Vörum eins og flestir
þekkja hann, kemur fyrst upp í
hugann hans hraustlega handtak
og klapp á bakið, sem eflaust ein-
hverjum hefur þótt full-hraustlegt.
En í því mátti finna hreina ein-
lægni og trausta vináttu, sem ég
hef alltaf notið góðs af.
Valdi var mikill húmoristi og
alltaf stutt í glensið og gamansem-
ina. Ég minnist hans með brosi á
vör, þótt söknuðurinn sé mikill.
Það koma upp í hugann margar
gamansögur, skemmtileg tilsvör
og þessi léttleiki sem einkenndi
Valda.
Hann varð aldrei gamall, þótt
árunum fjölgaði, alltaf frjór í hugs-
un og tileinkaði sér nýjustu tækni,
sem fáir af hans kynslóð treysta
sér í.
Valdi eignaðist yndislega konu,
Ingibjörgu Jóhannsdóttur, og átti
með henni fimm börn. Börnin bera
öll einkenni foreldra sinna, mynd-
arleg og vel gerð í alla staði. Hann
var mjög stoltur af börnum sínum
og stórum hópi barnabarna.
Ég minnist þeirrar traustu vin-
áttu sem var á milli foreldra minna
og Valda og Ingu. Pabbi og Valdi
reru saman til sjós á Gunnari Há-
mundarsyni í gamla daga, þeir
höfðu einnig gaman af að syngja
saman. Ég man þegar þeir sungu
saman sálminn: Ég er á langferð
um lífsins haf. Nú er þeirra lang-
ferð lokið og þeir eru með frelsara
sínum.
Ég kveð með söknuði traustan
vin og þakka honum hve góður
hann var mér, Svönu eiginkonu
minni og börnunum okkar, sem öll
mátu hann mikils og sakna hans.
Guð blessi minningu hans og
styrki þig, elsku Inga, börnin þín
tengdabörn og barnabörn.
Þorvaldur Kjartansson.
Valdi í Vörum var fæddur á
fyrri hluta síðustu aldar þegar
ekki var almennt mulið undir fólk.
Að hans sögn var ástæða þess að
hann var frekar lágvaxinn sú að
hann byrjaði svo snemma að bera
þungar byrðar í höndum sér við
fiskvinnslu, innan við 10 ára. Ég
fékk ekkert að stækka, sagði hann
í léttum tón án gremju: Ég var
alltaf að halda á einhverju þungu.
Valdi var ávallt léttur og hress,
jafnvel svo að hægt var að láta sér
detta í hug að hann væri ekki deg-
inum eldri en unglingur, leiftrandi
af lífi og fjöri þó fyrirgengileg
kápa gæti virst gömul og notaslit-
in. Handaband hans var sterk upp-
lifun og oft fylgdi hraustlegt klapp
á bakið. Gæfumaður á best við um
mann eins og Valda. Ég minnist
þess að þegar ég lærði iðn mína í
Eyjum var eitt sinn rætt um báta-
nöfn. Menn höfðu þá hjátrú að
ekki væri gott ef bátar hétu
löngum nöfnum, best væru þriggja
stafa nöfn. Nafnið Gunnar Há-
mundarson hafði reynst skelfilega
þar sem bátar með því nafni höfðu
annaðhvort farist eða komið eig-
endum á kaldan klaka. Lærimeist-
ari minn sagði þó eina undantekn-
ingu á þessu og nú var hlustað
með athygli. Suður með sjó í Garð-
inum er gerður út bátur með
þessu nafni sem fylgir bara gæfa
og gott gengi og það er víðfrægt.
Ég verð forsjóninni ávallt þakk-
látur fyrir að fá að kynnast þess-
um gæfumönnum.
Valdi var skipstjóri og útgerð-
armaður af Guðs náð. Hann sagði
frá sjósókn um eitt varhugaver-
ðasta hafsvæði veraldar og virtist
hissa að hafa sloppið í land á
stundum með salta kinnhesta Æg-
is á brá þegar grandsólgnar öldur
risu hæst. Allt sem Valdi kom ná-
lægt var umvafið himneskri vel-
gengni, þó oft hafi verið barist af
hörku. Vinnan var innt af hendi af
ósérhlífni með gleði og bros á vör.
86 ára gamall tók hann mig á ein-
tal og bað um að smíða fyrir sig
árabát. Hafðu hann léttan, svo ég
geti sett hann á flot einn og tekið
upp, án þess að vera upp á strák-
ana kominn (s.s. fjóra syni sína).
Ég ætla bara að vera með eitt net,
það er oft lax hérna fyrir framan,
hvíslaði hann um leið og hann leit
til hægri og vinstri eins og óþekk-
ur strákur sem þarf leyfi foreldra
sinna en ætlar ekki að afla þess.
Hér var ekki um neitt götuhorna-
hjal að ræða, bát skyldi smíða.
Þetta er eitt af þeim verkum sem
ég hef unnið af mestri ánægju. Því
fylgdi mannbót, léttleiki og gæska
með kaffi og matarhléum á heimili
þeirra hjóna. Það hefði verið fullt
gjald fyrir verkið.
Ingibjörg konan hans er allt
sem prýtt getur einn mann, saman
eiga þau glæsilega lífsgöngu og
fjöskyldu öðrum til fyrirmyndar.
Þegar menn eins og Valdi eiga í
hlut er dauðinn jafnvel réttlátur
þó við hefðum viljað hafa hann hjá
okkur aðeins lengur. Mér er þvert
um geð að kveðja Valda í Vörum,
því hann er allt um kring ljóslif-
andi og hress og þannig ætla ég að
minnast hans; sjómannsins, öðling-
sins. Eftir langa ævi sem oft getur
virst stutt þegar litið er til baka
eigum við öll eftir að fara sömu
leiðina, þangað sem við munum
dvelja mörgum sinnum lengur en
þann tíma sem við eyddum hér í
fallvöltum efnisheimi. Vonandi
þangað sem Valdi fór.
Samúðarkveðjur,
Gunnar Marel Eggertsson.
Nú er minn ágæti vinur Þor-
valdur Halldórsson allur. Ég ólst
upp við að Varafjölskyldan væri
sérstakt fólk. Mikið og gott sam-
band og vinátta ríkti á milli fjöl-
skyldnanna í Vörum og í Gerðum.
Halldór og Kristjana ræktuðu það
samband framan af, en síðan mörg
barna þeirra. Þannig var Valdi
einn af uppáhaldsvinum foreldra
minna Björns og Auðar. Þar ríkti
traust og virðing.
Ég var ungur þegar leiðir okkar
Valda lágu saman. Það gerðist
nánast af sjálfu sér, enda aldir upp
í Garðinum. Þótt aldursmunur
okkar væri allnokkur fannst mér
Valdi ætíð ræða við mig sem jafn-
ingja. Ég dáðist að þessum ósér-
hlífna skipstjóra á Gunnari Há-
mundarsyni sem ásamt
fjölskyldunni rak útgerð og fisk-
vinnslu í Vörum. Hann sagði mér
fyrir skömmu að fyrirtækið væri
elsta útgerðarfyrirtæki landsins.
Það var pólitíkin sem leiddi okk-
ar ekki síður saman, bæði lands-
málin og sveitarstjórnarmál. Valdi
var harður sjálfstæðismaður. Ólaf-
ur Thors var hans maður. Hann
var manna duglegastur að sækja
fundi og þeir voru fáir stjórnmála-
mennirnir sem sluppu við einka-
viðtöl með Þorvaldi eftir að al-
mennum fundi lauk. Hann gaf sig
allan í þátttöku og fylgni við hreyf-
ingu sjálfstæðismanna hér í
byggðarlaginu sem bauð fram und-
ir merkjum sjálfstæðismanna og
annarra frjálslyndra kjósenda.
Hann tók mörg kjörtímabil sæti á
framboðslistum H-listans. Ofar-
lega vildi hann ekki vera, en vera
með. Valdi gat miðlað mörgum
hollum ráðum til þeirra sem yngri
voru og gerði það svikalaust.
Lengi var hann í heiðurssæti
framboðslistans. Alla tíð lét hann
sig hrepps- og bæjarmálefni miklu
skipta og ábendingar hans voru
dýrmætar enda hertur af reynslu
til lands og sjávar.
Annað sem leiddi okkur Valda
saman var fótboltinn og félagið
okkar Víðir sem stofnað var 1936.
Honum var annt um þann fé-
lagsskap og taldi að iþróttir
styddu og efldu m.a bindindis-
starfsemina. Afkomendur hans og
skyldmenni hafa hér einnig lagt
drjúgt til málanna og einnig leikið
með félaginu.
Hann var einstakur áhugamaður
um framgang knattspyrnunnar
hér og eftir því tekið ef Valda og
Ingu, konu hans,vantaði á leik. Þar
hitti ég þau oft og áttum við þar
oft gott spjall og síðast á knatt-
spyrnuleik á Viðisvellinum nú í
haust.
Já, Ingu og Valda varð fjöl-
skylda mín svo heppin að eignast
að vinafólki. Alla tíð var viðmót
þeirra í okkar garð vinsamlegt,
leiðandi og traust. Alltaf var jafn
gott að koma og þiggja veitingar á
heimili þeirra og fá fræðandi frá-
sögn í leiðinni. Aldrei bar þar
skugga á. Þau hjón fóru um árabil
til sólarlanda er vetur sótti að. Þar
hittumst við nokkrum sinnum og
þær samverustundir eru okkur
Eddu dýrmætar og minnisstæðar.
Að lokum vottum við Ingu og
hinni stóru fjölskyldu djúpa samúð
okkar.
Þorvaldi eru færðar þakkir fyrir
mikla ræktarsemi og vinsemd.
Sem gamall oddviti leyfi ég mér að
þakka þessum aldna höfðingja fyr-
ir framlag hans til þess byggð-
arlags sem hann átti ríkan þátt í
að móta.
Blessuð sé minning Þorvaldar
Halldórssonar.
Finnbogi Björnsson.
Elsku afi minn. Ég á eftir að
sakna þín svo mikið. Ég þekki
ekkert annað en að þú sért heima í
Vörum hjá ömmu. Og ef þú ert
ekki heima þá ertu á einhverju
flakki að gera hluti sem gamalt
fólk gerir oftast ekki. Þú fórst svo
mikið upp í bústað og ef veðrið var
ekki nógu gott þá fórstu bara heim
og þegar veðrið lagaðist þá keyrðir
þú austur aftur. Og stundum
varstu tekinn fyrir of hraðan akst-
ur, ýmist fyrir sunnan eða á leið-
inni austur. Það eru ekki nema
nokkrir dagar síðan þú rifjaðir það
upp þegar þú varst að spyrna á
Garðveginum við einhverja stráka.
Svo fórstu einu sinni hringveginn
á þremur dögum og amma sat og
prjónaði lopapeysur allan tímann.
Það var líka alltaf svo gaman að
hitta þig. Það var ekkert mikið
verið að velta fortíðinni fyrir sér,
þó þú hafir verið búinn að kveðja
marga í gegnum árin. Yfirleitt tal-
aðir þú mest um nútíðina og hvað
þyrfti að gera næst. Og ekkert var
of erfitt. Þú keyptir fartölvu svo
þú gætir horft á DVD á ferðalög-
um og kunnir á allar myndavélar
og allar fjarstýringar. Þú hugsaðir
svo vel um alla og varst tilbúinn að
gera hvað sem er fyrir hvern sem
er. Einu sinni, þegar þú varst bú-
inn að borga manninum sem seldi
þér bústaðinn, laumaðir þú að hon-
um aukapeningi og sagðir honum
að bjóða konunni sinni nú út að
borða eitthvað gott.
Það eru svo margar minningar
um þig. Þú á gamla pikkanum,
sem enginn veit ennþá hvernig þú
komst eiginlega í gegnum skoðun,
sjálfsagt einhver harðfiskur flækt-
ur í málið, líkt og með lögguna
sem sleppti því að sekta þig á
Hellisheiðinni. Svo varstu búinn að
kaupa þér nýjan pallbíll og þú
varst svo ánægður með hann. Svo
ánægður að þú keyrðir ömmu um
allt í honum og jeppinn stóð bara
inni í bílskúr. Ég labbaði svo oft til
þín yfir túnið, alltaf kaffi á könn-
unni, þú alltaf eins, alltaf hress, og
oftar en ekki amma að steikja ofan
í þig fisk. Þú virtist nefnilega
borða allt, bara ef hægt var að
steikja það á pönnu. Svo varstu
svo mikill reglumaður að á Kanarí
þurftum við að kalla sangríuna
ávaxtadjús svo þú myndir smakka.
Einhvern tímann fóruð þið amma í
ferð með eldri borgurum, þar sem
þú varst einna elstur í hópnum, og
þegar þið komuð heim sagðir þú
að það hefði ekki verið neitt sér-
stakt í ferðinni af því að það var
svo mikið af gömlu fólki með. Þú
spurðir mig alltaf hvernig gengi í
skólanum og síðar hvernig gengi í
vinnunni, þú varst svo áhugasamur
um allar tækninýjungar enda vild-
ir þú njóta þeirra sjálfur sem þú
svo gerðir. Það var aldrei neitt of
seint í þínum huga.
Þú varðst aldrei gamall, samt
áttir þú 88 ára afmæli í ágúst. Þú
varst heilbrigður fram að þinni
síðustu stundu og skildir við eins
og ungur maður. Ég mun aldrei
gleyma þeirri nótt sem þú dóst, afi
minn.
Þú sem kysstir og faðmaðir alla,
svo yndislegur, svo elskulegur, öll-
um þótti vænt um þig. Þú sem
hafðir svo gaman af lífinu. Það
finnst öllum afi sinn einstakur en
það breytir því ekki, afi minn, að
þú varst einstakur.
Ég er svo stoltur af öllu því sem
þú gerðir, afi minn.
Ég sakna þín svo mikið.
Ég mun aldrei gleyma þér.
Þorvaldur Halldór Bragason.
Fleiri minningargreinar um Þor-
vald Halldórsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Minningar 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi.
Minningargreinar
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
LEGSTEINAR OG FYLGIHLUTIR
Við hönnum legsteininn
að þínum óskum.
Komdu við eða kíktu á heima-
síðuna og skoðaðu úrvalið.
15% lækkun
á innfluttum legsteinum.