Morgunblaðið - 29.11.2008, Síða 57
Krossgáta 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008
LÁRÉTT
6. „Í skóginum stóð kofi einn, sat við gluggann
_______“ (10)
9. Nóbelsverðlaunahöfundur sem fékk Pulitzer-
verðalaunin fyrir Gamla manninn og hafið. (9)
11. „Þér getið ekki þjónað Guði og _______.“ (6)
12. ________ og Tóbagó, land í Karíbahafinu. (8)
13. Herpes zoster. (7)
14. „Ein í bragga, Magga, gægist út um gluggann,
bráðum sér hún Skugga-Baldur ____ hjá.“ (6)
15. Samheiti yfir tókóferól og tókótríenól sem eyða
svokölluðum stakeindum sem geta myndast við
ýmis efnahvörf í líkamanum. (1,7)
17. Henri ________ var franskur myndlistarmaður
sem er þekktur fyrir málverk í sterkum litum. (7)
19. Zorro heitir réttu nafni Don _____ de la Vega. (5)
20. Næstfjölmennasta borg Kína en nafn hennar
merkir „Norður-höfuðborg“. (7)
21. ________ Woolf, breskur rithöfundur, gagnrýn-
andi og femínisti. (8)
22. Vél sem skilur út úrgangsefni úr líkama sjúklings.
(8)
23. Latína fyrir lámark. (7)
27. Borg nálægt Róm sem var þekkt fyrir garða sína.
Af henni fékk garður í París heiti sitt og af
franska garðinum fékk garður í Danmörku heiti
sitt. (6)
28. Málmhetta með kveikiefni til að hleypa skoti úr
byssu eða koma af stað sprengingu. (10)
31. Í Indlandi eru aðeins þrjár árstíðir: Vetur, sumar
og __________. (10)
33. Það þegar næstum sjúklegur áhugi á ákveðinni
hljómsveit greip um sig. (8)
34. Ein af þessum syndum: hroki, öfund, reiði, leti,
ágirnd, ofát og munúðlífi. (9)
35. „Fríð var í draumum fjallaþjófs farsældin _____
heiðar, þegar hann sá eitt samfellt hjarn sunnan
til Herðubreiðar.“ (Áfangar) (6)
36. Velþekktur mexíkóskur ferðamannastaður. (8)
37. Íslenskt orð komið af orðinu courtesy (8)
LÓÐRÉTT
1. Mynd sem er sett saman úr mislitum flísum sem
mynda eina heild. (6)
2. Ísraelska þingið. (7)
3. Breskur lúxusbíll. (7)
4. Turn sem sendir frá sér ljósmerki. (4)
5. „Í ________ við brjótumst inn en bara lítið tökum,“
(Ræningjavísur úr Kardimommubænum). (6)
7. Höfuðborg Jórdaníu. (5)
8. Vinkona Péturs Pan. (5)
10. Síendurtekið atriði í bókmenntum. (11)
13. Segull myndaður með því að vefja spólu úr vír og
setja straum á hana. (9)
16. Vagga lýðræðisins. (5)
18. Grafhýsi í borginni Agra sem Shah Jahan lét
byggja. (3,5)
19. Sprengiefni búið til að þrem fjórðu úr nítr-
óglýseríni. (7)
22. Önnur stærsta borgin í Connecticut, sem stendur
á norðurströnd Long Island-sunds. (3,5)
23. Höfuðborg Sómalíu. (9)
24. Sjálfstæðiskvennafélagið ______ var stofnað 15.
febrúar 1937. (4)
25. Háfættur, hálslangur og bleikur fugl. (9)
26. Þríhöfða hundur sem gætir undirheima. (8)
29. ______ fagra frá Spörtu. (6)
30. Vindur sem feykir jarðvegi. (7)
32. Afturhluti skips. (6)
ARMENAR unnu öruggan og glæsi-
legan sigur á Ólympíumótinu í Dres-
den sem lauk á mánudaginn og vörðu
titil sinn frá síðasta Ólympíumóti. Í
sveitinni tefldu: Lev Aronjan, Lev
Akopjan, Gabriel Sargissan og Tigr-
an Petrosjan og Arthes Minasjan en
sá síðastnefndi var einungis með í
einni umferð. Armenar tóku strax
forystuna og virtist sigurinn aldrei í
hættu. Það var nafni gamla heims-
meistarans, Tigran Petrsojan, sem
tryggði gullið þegar hann vann Kín-
verjann Li í lokaumferðinni. Loka-
niðurstaðan varð þessi:
1. Armenía 19 stig. 2. Ísrael 18 stig.
3. Bandaríkin 18 stig. 4. Úkraína 17
stig 5. Rússland 16 stig 6. Aserbaid-
sjan 16 stig 7. Kína 16 stig 8. Ung-
verjaland 16 stig 9. Víetnam 16 stig
10. Spánn 16 stig. Alls tóku 146 sveit-
ir þátt í mótinu.
Frammistaða íslenska karlaliðsins á
Ólympíumótinu í Dresden er sú lak-
asta sem íslenskt lið hefir náð á þess-
um vettvangi. Allir liðsmenn sveit-
arinnar, Hannes Hlífar Stefánsson,
Héðinn Steingrímsson, Henrik
Danielsson, Stefán Kristjánsson og
Þröstur Þórhallsson tefldu undir
getu. Á lokasprettinum, ef sprett
skyldi kalla, virtist „lögmál Murp-
hys“ vera allsráðandi: allt sem hugs-
anlega gat farið úrskeiðis fór úr-
skeiðis; sveitin hlaut 10 stig og
hafnaði í 64. sæti, neðst Norður-
landaþjóða. Sú staðreynd blasir við
að íslenska liðið var nær allt mótið að
tefla við miðlungslið og þaðan af lak-
ari; að tapa fyrir Paragvæ eða Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum er
óverjandi. Ekki ætla ég að halda því
fram að einhvern tímann hafi varla
þurft annað en að tylla jakkanum á
stólbakið til að ná fram sigri í slíkum
viðureignum. Hið nýja stigakerfi
þessa Ólympíumóts, þar sem naum-
ur sigur er jafngildur stórsigri, gefur
kost á ákveðinni hernaðaráætlun,
sem aftur kallar á öryggi sem var
ekki til staðar hjá liðsmönnum. Í yf-
irlýsingu liðsstjórans, Sigurbjörns
Björnssonar sem ráðinn var til starf-
ans með skömmum fyrirvara, kemur
m.a. fram:
„Undirbúningurinn var lítill sem
enginn. … Liðsandinn var ekki
nægjanlega góður og hélt liðið ekki
mikið hópinn … Menn tefldu ekki
nægjanlega vel og lögðu ekki nógu
hart að sér við undirbúning fyrir
skákirnar …“. Þátttaka Íslands hef-
ur samkvæmt þessu meira verið í
anda einhverskonar „skák-túrisma“
og fullkomins metnaðarleysis. Á um-
ræðuvettvangi skákarinnar er svo
kallað á „erlendan þjálfara“ sem á þá
væntanlega að færa mönnum skák-
getuna á kökudiski. Sannleikurinn er
sá að þekkingaröflun og þjálfunar-
tæki hafa aldrei verið auðteknari en
nú. Menn geta heldur ekki kvartað
undan skorti á tækifærum. „Átta
tíma maðurinn“ er að vísu búsettur
erlendis en fordæmi hans er þekkt:
að gera kröfur til sjálfs sín, vinna vel
og bera virðingu fyrir viðfangsefni
sínu.
Georgía vann kvennaflokkinn eftir
harða keppni við sveit Úkraínu sem
varð í 2. sæti og bandarísku sveitina
sem varð í 3. sæti. Kínverjar, sem
unnið hafa mót undanfarið, máttu
láta sér lynda áttunda sætið.
Íslenska liðið varð í 60. sæti af 100
þátttökuþjóðum og er frammistaðan
svipuð og gera mátti ráð fyrir. Lenka
Ptacnikova og Hallgerður Helga
Þorsteinsdóttir stóðu sig best, Guð-
laug Þorsteinsdóttir getur betur en
frammistaða Sigurlaugar Friðþjófs-
dóttur og Elsa Maríu Kristínardótt-
ur var nálægt því sem búast mátti
við. Kvennalið Íslands á framtíðina
fyrir sér og er það spá mín að á
næsta móti muni það bæta árangur
sinn verulega.
Dagur náði stórmeistaraáfanga
í Ungverjalandi
Á öðrum stað á sama tíma í Hark-
any í Ungverjalandi létu þeir Dagur
Arngrímsson og Guðmundur Kjart-
ansson ekki deigan síga á öflugu
opnu móti sem lauk um síðustu helgi.
Dagur hlaut 7 vinninga af 9 mögu-
legum og varð í 2.-3. sæti og náði
áfanga að stórmeistaratitli. Kúb-
verski stórmeistarinn Fidel Corrales
Jiminez sigraði, hlaut 7½ vinning.
Guðmundur Kjartansson náði öðum
áfanga sínum að alþjóðlegum meist-
aratitli, hlaut 6 vinninga og varð í 9.-
23. sæti. Þeir Bragi Þorfinnsson og
Jón Viktor Gunnarsson tóku einnig
þátt í mótinu. Keppendur voru alls
121. Þessir fjórir héldu svo rakleiðis
til Belgrad þar sem þeir tefla nú á
öðru móti ásamt Snorra G. Bergs-
syni.
Friðrik teflir í Prag
Aðdáendur Friðriks Ólafssonar
eiga góða daga í vændum því í gær
hófst keppni fjögurra stórmeistara
sem gerðu garðinn frægan á árum
áður gegn úrvalsliði kvenna. Í liði
með Friðrik eru fyrrverandi heims-
meistari Anatolí Karpov, Vlastimil
Hort og Wolfgang Uhlmann.
Kvennaliðið er skipað öflugum en lítt
þekktum tékkneskum meisturum:
Viktorije Cmilyte, Anna Ušenina,
Kateøina Nemcová og Jana Jacková.
Tefld verður tvöföld umferð.
Gullið til Armeníu
og Georgíu
Morgunblaðið/Ómar
Stórmeistaraáfangi Dagur Arngrímsson hlaut 7 vinninga af 9 mögulegum
í Ungverjalandi og varð í 2. sæti.
SKÁK
Dresden, Þýskalandi
Ólympíuskákmótið
12. – 25. nóvember 2008
helol@simnet.is
Bridsfélagið Muninn og Brids-
félag Suðurnesja
Mánudaginn 24. nóvember hófst 4
kvölda tvímenningur þar sem 3
bestu kvöldin verða látin ráða, sem
þýðir það að þeir sem misstu af
fyrsta kvöldinu geta komið inn
næsta mánudag.
Og á þessu fyrsta kvöldi mættu 14
pör og hvetjum við þá sem komust
ekki síðasta mánudag til að láta sjá
sig mæst og þá aðila sem eru stakir
að koma einnig eða hringja tíman-
lega í stjórnarmenn til að finna ein-
hvern til að mynda parið.
En staða efstu para eftir fyrsta
kvöldið er þessi:
Garðar Garðarss. – Gunnl. Sævarsson 63.0%
Birgir Þorvaldss. – Magnús Þórðars. 60.5%
Þorgeir Halldórss. – Garðar Garðarss.
56.8%
Kristján Pálsson – Reynir Jónss. 54.9%
Birkir Jónsson – Karl Einarss. 51.9 %
Og enn og aftur hvetjum við alla til
að láta sjá sig næstkomandi mánu-
dag, 1. desember, í Félagsheimili
okkar að Mánagrund til að spila eða
bara fá sér kaffi og horfa á. Spilarar
eru beðnir að mæta ekki seinna en
19:00 og byrjað verður að spila 19:15.
Síðastliðinn föstudag, 21. nóvem-
ber, var spilaður eins kvölds tví-
menningur. Og þar sem þátttaka
hefur verið undir væntingum verður
næsta spilakvöld á föstudegi það síð-
asta að sinni.
Efstu pör:
Eyþór Jónsson – Grethe Iversen 57
Gunnl. Sævarss. – Garðar Garðarss. 57
Karl Einarsson – Guðni Sigurðss. 53
Spilaður verður eins kvölds tví-
menningur næsta föstudagskvöld
Spilað er í Félagsheimili okkar að
Mánagrund kl.19:30.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson | norir@mbl.is