Morgunblaðið - 29.11.2008, Síða 58

Morgunblaðið - 29.11.2008, Síða 58
Þetta gerðist … 29. nóvember 1211 Páll Jónsson biskup í Skálholti lést, um 56 ára. Hann var son- ur Jóns Loftssonar og varð biskup árið 1195. Steinkista Páls fannst árið 1954. 29. nóvember 1906 Fánasöngur Einars Benedikts- sonar, Rís þú unga Íslands merki, var fluttur í fyrsta sinn á almennum fundi í Iðn- aðarmannahúsinu í Reykjavík, við lag eftir Sigfús Einarsson. 29. nóvember 1930 Kommúnistaflokkur Íslands var stofnaður við klofning úr Alþýðuflokknum. Stefna flokksins var að sameina verkalýðsstéttina á grundvelli marxisma. Kommúnistaflokk- urinn og hluti Alþýðuflokks runnu saman í Sameining- arflokk alþýðu – Sósíal- istaflokkinn árið 1938. 29. nóvember 2000 Hilmir Snær Guðnason leikari hlaut Íslensku bjartsýnis- verðlaunin þegar þau voru veitt í fyrsta sinn. Ís- lenska álfélagið hf. stendur að verðlaununum sem eru fram- hald af Bjartsýnisverðlaunum Bröste. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. 58 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008 Orð dagsins: Þá er þeir mötuðust, tók Jesús brauð, þakkaði Guði, braut það og gaf lærisveinunum og sagði: Takið og etið, þetta er líkami minn. (Matt. 26, 26) Víkverji er svo heppinn að þráttfyrir að hafa tekið fyrsta yf- irdráttinn 18 ára, til að fara til Par- ísar með kærastanum, þá hefur hann aldrei tekið lán síðan. Sú staðreynd að Víkverji hefur heldur aldrei átt hlutabréf eða fjárfest af neinu viti gerir hann jafnvel enn heppnari. Vík- verji hafði nefnilega engu að tapa, svo að segja, hinn 6. október. Enda skuldar hann ekki krónu, ekki einu sinni á kreditkortinu. Honum finnst því sérkennilegt að vera skyndilega orðinn skuldari í gegnum Icesave. x x x Þannig hefur Víkverji að vissuleyti frekar verið áhorfandi en þátttakandi í ástandinu síðustu mán- uði, að minnsta kosti hefur hann ekki farið eins illa út úr því og sumir hafa því miður gert. Það breytir því auð- vitað ekki að Víkverji verður fyrir áhrifum, hjá því verður ekki komist. Það sem helst hrjáir Víkverja er innilokunarkennd. Honum hefur aldrei fundist hann vera jafninnilok- aður á þessu blessaða skeri, sem hann elskar þó svo heitt. Víkverji hefur alltaf litið svo á að á Íslandi búi hann við forréttindi þess að vera utan við átök heimsins, með endalausa náttúru til að njóta í friði, en um- heiminn innan seilingar. Ekki ósvip- að heimahverfi Víkverja, sem er í göngufjarlægð frá skemmtanalífi miðborgarinnar en þó hæfilega langt frá til að sleppa við skarkalann. x x x Þessari heimsmynd Víkverja er núógnað. Honum hefur aldrei fundist umheimurinn lengra í burtu og það er sárt, því Víkverji hafði séð fyrir sér mörg ævintýraleg ferðalög á næstu árum. Víkverji ferðaðist til 12 landa í ár (þangað fór allur sparn- aðurinn og mun seint teljast illa var- ið) en sýnist að nú verði hann að láta minningarnar um þau duga sér næstu 12 árin, svona þegar svartsýn- in nær tökunum á honum. Víkverji hefur hins vegar ekki mjög hátt um þessi harmkvæli sín, enda finnst hon- um varla viðeigandi að barma sér yfir að komast ekki til útlanda þegar aðr- ir hafa talsvert alvarlegri hluti að kvarta yfir. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 skólasveinn- inn, 8 laghent, 9 fjöldi, 10 tek, 11 ganga þyngslalega, 13 sleifin, 15 högni, 18 lægja, 21 legil, 22 námu, 23 áana, 24 rangla Lóðrétt | 2 brýna, 3 ör- lög, 4 myrkur, 5 snaga, 6 rekald, 7 heiðurinn, 12 stelputrippi, 14 reyfi, 15 jörð, 16 skynfæra, 17 ör- lagagyðja, 18 syllu, 19 klampans, 20 einkenni. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 háátt, 4 hafna, 7 dubba, 8 úlfúð, 9 fet, 11 sótt, 13 ásar, 14 útlát, 15 horn, 17 trog, 20 err, 22 fúsum, 23 örlát, 24 remma, 25 dunur. Lóðrétt: 1 hadds, 2 árbít, 3 traf, 4 hrút, 5 fífls, 6 auður, 10 eflir, 12 tún, 13 átt, 15 háfur, 16 rósum, 18 rolan, 19 gítar, 20 emja, 21 rödd. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Ábyrgð sagnhafa. Norður ♠ÁD ♥97542 ♦D92 ♣G64 Vestur Austur ♠G10764 ♠K8 ♥D83 ♥G106 ♦K4 ♦753 ♣1082 ♣D9753 Suður ♠9532 ♥ÁK ♦ÁG1086 ♣ÁK Suður spilar 3G. Segja má með nokkrum sanni að ut- anaðkomandi aðstæður ráði miklu um örlög þessa samnings. Út kemur smár spaði, drottningu svínað, austur drepur og hreinsar litinn. Sagnhafi svínar síð- an í tígli og spilið hrynur. Þetta er óneitanlega slæm lega, tvær mis- heppnaðar svíningar og eitruð 5-2 skipting í spaða. En þá er að huga að ábyrgð sagn- hafa. Hann gat stíflað spaðann með því að fara upp með ♠Á í byrjun. Og ekki bara í þessari legu, heldur líka hvenær sem austur á feitt tvíspil: ♠Kx, ♠Gx eða ♠10x. Eina staðan þar sem ekki má fara upp með ásinn er þegar útspilið er frá ♠KG10xx, en þá myndi vestur væntanlega koma út með gosann. Hvað með 4-3 leguna? Hún skapar engan ugg. Vörnin má fá þrjá slagi á spaða og einn á ♦K. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þótt aðrir vilji velta sér upp úr fortíðinni er ekki þar með sagt að þú þurfir að gera það líka. Láttu það ekki fara í taugarnar á þér. (20. apríl - 20. maí)  Naut Blandaðu geði við fólk í dag með því að spjalla við þína nánustu eða fara í stórt boð. Nú er ekki rétti tíminn til að setja sjálfstýringuna á. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Ekki vera harður við þig þótt þú hafir ekki kostina sem til þarf. Hug- urinn lætur eins og hann sé raunveru- lega að framkvæma eitthvað. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Nú er rétti tíminn til að huga að eignum sem þú átt í félagi við aðra. Fullt tungl ýtir undir þessa tilhneig- ingu. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú vektur athygli annarra hvað sem þú tekur þér fyrir hendur í dag. Einfaldar ráðstafanir eins og að gefa eða bara brosa bæta geð. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Óvænt tækifæri mun bjóðast þér og það ríður á miklu að þú kunnir að bregðast rétt við. Sanngirni í því sem öðru skilar mestum árangri og tryggir andrúmsloftið á vinnustaðnum. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Láttu ekki deigan síga þótt menn sýni hugmyndum þínum takmarkaðan áhuga. Leitaðu að hetjuskap í venjulegu fólki í kringum þig. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Nú er rétti dagurinn til þess að stunda rannsóknir og finna upplýs- ingarnar sem þig vantar. Ef þú lætur í ljós aðdáun á einhverjum, verður svarað í sömu mynt. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þetta er frábær dagur til fjárfestinga, sérstaklega fyrir þá sem leggja til meiri orku en peninga. Leggðu drög að því að komast í gott ferðalag. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú fyllist ánægju yfir þeirri ást sem umvefur þig dagsdaglega. Láttu ekki gagnrýni koma þér úr jafnvægi. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú hefur einbeitt þér um of að andlegri líðan þinni og um leið vanrækt líkama þinn. Ef þú veist hvar þú vilt vera að tíu, fimm eða einu ári liðnu, þá veistu hvað þú þarft að gera í dag. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Fjölskyldumálin ganga fyrir öðru í dag því að mörgu er að hyggja. Ein- beittu þér að fólki sem er jafn ákaft í að koma einhverju til leiðar eins og þú. Stjörnuspá Anna Lyck Filbert hyggst eiga huggulega stund með fjölskyldunni á fimmtugsafmælisdaginn. „Við ætlum út að borða, en síðan verður deginum eytt í jólaföndur með Skógræktarfélagi Kjalarness.“ Var Anna einmitt í skógarhöggi þegar Morgun- blaðið hringdi í hana, en verið var að ná í greinar og köngla fyrir föndrið sem verður í félagsheim- ilinu á Kjalarnesi á milli kl. 14-17 á morgun. „Það eru allir velkomnir,“ segir Anna og bætir við að ekkert kosti inn og leiðbeinendur séu á staðnum. Anna lætur sér þó ekki starfið með Skógræktar- félaginu nægja, því hún er líka ritari Björgunar- sveitarinnar Kjalar og er í hlutastarfi í slökkviliðssveit Kjalar. „Ég byrjaði frekar seint í björgunarsveitinni, ætli ég hafi ekki verið 42 ára. Upprunarlega ætlaði ég bara að hella upp á kaffi og vera til gagns, en það kemur í ljós að maður getur meira en maður heldur,“ segir Anna sem tekur þátt í öllum verkefnum nema fjallaklifri. „Þetta er verulega skemmtilegt og þarna á ég margar mínar bestu stundir.“ Einn eftirminnilegasti afmælisdagurinn var hins vegar þrítugs- afmælið. „Þá hitti ég fjölskyldu mína í Kaupmannahöfn og keypti mér hjólaskauta og rúllaði á þeim á Strikinu. Því það var draumurinn þá.“ Anna Lyck Filbert húsmóðir 50 ára Á hjólaskautum á Strikinu Sudoku Frumstig 2 8 6 6 7 5 2 4 5 6 7 3 8 5 2 2 7 5 1 3 8 1 8 3 4 8 6 2 3 2 4 7 9 4 9 5 6 9 3 4 2 1 5 4 7 9 9 3 1 8 2 1 7 5 4 1 2 6 4 6 2 9 3 5 3 2 6 9 5 2 3 4 5 7 5 2 4 6 9 6 1 2 3 5 8 7 2 9 9 8 7 4 1 4 8 1 6 4 8 4 6 2 7 9 3 1 5 7 1 9 4 3 5 6 8 2 3 5 2 6 8 1 4 7 9 2 9 4 8 6 3 1 5 7 5 6 8 7 1 2 9 3 4 1 7 3 9 5 4 2 6 8 6 2 5 1 4 8 7 9 3 4 3 1 5 9 7 8 2 6 9 8 7 3 2 6 5 4 1 4 9 6 8 7 3 1 2 5 3 7 1 2 5 4 6 8 9 8 5 2 1 9 6 7 3 4 9 6 4 7 3 1 8 5 2 2 1 3 5 6 8 4 9 7 7 8 5 4 2 9 3 6 1 5 2 8 3 1 7 9 4 6 1 3 9 6 4 2 5 7 8 6 4 7 9 8 5 2 1 3 7 2 8 3 6 1 9 4 5 6 1 9 8 4 5 2 7 3 5 4 3 7 9 2 1 8 6 4 9 7 6 2 3 5 1 8 1 8 6 9 5 4 7 3 2 2 3 5 1 7 8 4 6 9 9 6 4 2 3 7 8 5 1 8 7 2 5 1 6 3 9 4 3 5 1 4 8 9 6 2 7 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 29. nóvember, 334. dagur ársins 2008 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4. Rf3 e6 5. Be2 c5 6. Be3 Rd7 7. O-O h5 8. c4 cxd4 9. Rxd4 Bxb1 10. Hxb1 Rxe5 11. cxd5 exd5 12. Bb5+ Rd7 13. He1 Be7 14. Rf5 Kf8 15. Dxd5 Rgf6 16. Dxb7 Hb8 17. Dc6 Hc8 18. Df3 Bc5 19. Hbd1 Bxe3 20. Dxe3 Hc7 21. Dg5 Hh7 22. Bxd7 Hxd7 23. Hxd7 Dxd7 Staðan kom upp í A-flokki haust- móts Taflfélags Reykjavíkur. Annar sigurvegara mótsins, Hrafn Loftsson (2242), hafði hvítt gegn Þór Valtýssyni (2115). 24. Rxg7! Re4 25. Df5! Dd2 26. Dxe4 Kxg7 27. De5+ Kg8 28. De8+ Kg7 29. De5+ Kg8 30. De2 Dg5 31. De8+ Kg7 32. De5+ Dxe5 33. Hxe5, hvítur er nú tveim peðum yfir í hróks- endatafli og með léttunnið tafl. Fram- haldið varð: 33… Hh6 34. Ha5 Hc6 35. g3 Hc2 36. b3 h4 37. gxh4 Hc7 38. Kg2 Kg6 39. Kg3 He7 40. h5+ Kh6 41. f3 Kh7 42. Kg4 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Marta Frímannsdóttir, Lilja Mar- grét Ómarsdóttir og Hvönn Har- aldsdóttir sem eru í Grunnskól- anum á Hellu héldu hlutaveltu við Kjarval á Hellu. Þær söfnuðu rúm- um 6.875 kr. sem þær gáfu Rauða krossi Íslands. Hlutavelta Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.