Morgunblaðið - 29.11.2008, Síða 60
60 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008
JÓLATÓNLISTARHÁTÍÐ hefst í
Hallgrímskirkju á morgun með jóla-
tónleikum Mótettukórs kirkjunnar
og Drengjakórs Hallgrímskirkju.
Það er komin hefð á það í kirkj-
unni að Mótettukórinn flytji að-
ventu- og jólatónlist með gesta-
söngvurum á
aðventu. Á tón-
leikunum á morg-
un er Drengja-
kórinn í hlutverki
gestasöngvarans,
en kór drengj-
anna starfar við
Hallgrímskirkju
undir stjórn Frið-
riks S. Krist-
inssonar.
Kórarnir
syngja bæði vel þekktar perlur svo
og minna þekkt kórverk. Mót-
ettukórinn syngur meðal annars ný-
leg jólaverk eftir Morten Lauridsen,
Eric Whitacre, Ola Gjeilo og Hreið-
ar Inga Þorsteinsson, og segir í
fréttatilkynningu frá kórnum að
þetta séu grípandi kórverk þar sem
tónskáldin leiki með margradda,
blæbrigðaríka hljóma, sem undir-
striki tign og fegurð aðventunnar.
Auk þessa syngur Mótettukórinn
jólasálma.
Drengjakórinn og karlaraddir úr
Mótettukórnum syngja einnig
þekkta sálma í útsetningum Anders
Öhrwall og David Willcocks að hætti
enskra drengjakóra og kirkjugest-
um er boðið að taka undir sönginn.
Á tónleikunum leikur Björn Stein-
ar Sólbergsson á Klais-orgel Hall-
grímskirkju, en stjórnendur eru
Friðrik S. Kristinsson og Hörður
Áskelsson.
Tónleikarnir verða sungnir þrisv-
ar sinnum, fyrst annað kvöld kl. 20,
þá á miðvikudagskvöld kl. 20 og loks
annað sunnudagskvöld kl. 17.
Hátíð í Hall-
grímskirkju
Tveir kórar syngja
Hallgrímskirkja
SPÆNSKI
skáldsagnahöf-
undurinn Juan
Marsé hreppti í
vikunni Cerv-
antes verðlaunin,
helstu bók-
menntaverðlaun
á Spáni. Í mörg-
um bóka sinna
lýsir Marsé fá-
tæku fólki og jaðarhópum á dögum
einræðisstjórnar Francos á mjög
sósíalrealískan hátt. Ein bóka Mars-
és, Si Te Dicen Que Caí eða Ef þeir
segja þér að ég hafi dottið, var fyrst
gefin út í Mexíkó, þar sem hún var
ritskoðuð og bönnuð á dögum Fran-
cos. Verðlaunaféð nemur 120 þúsund
pundum, og það verður spænski
menningarmálaráðherrann sem af-
hendir Marsé verðlaunin 23. apríl á
dánardegi stórskálds Spánverja,
Cervantes, sem verðlaunin eru
kennd við.
Cervantes
verðlaunin
til Marsés
Juan Marsé
Skrifar um fátækt
á dögum Francos
SEXTÁN félagar í Leirlist-
arfélagi Íslands opna sýningu á
gólfkertastjökum í Langholts-
kirkju á morgun. Sýningin
verður opnuð í messu kl. 11, á
fyrsta sunnudegi í aðventu.
Boðið verður upp á kaffisopa,
konfekt og piparkökur í safn-
aðarheimili kirkjunnar að
messu lokinni. Tilgangur sýn-
ingarinnar er að vekja eftirtekt
á fjölbreytileika og sköp-
unargleði og veita birtu og yl í umhverfið á þess-
um dimma árstíma. Sýningin er í samvinnu við
safnaðarnefnd Langholtskirkju og mun standa
fram að jólum. Allir eru boðnir hjartanlega vel-
komnir og aðgangur er ókeypis.
Myndlist
Leirlist í Lang-
holtskirkju
Eitt verka á
sýningunni
HJÖRDÍS Frímann
opnar málverkasýn-
ingu í Festarkletti,
efst í listagilinu á Ak-
ureyri, kl. 15 í dag.
Sýningin ber nafnið
Heimkoman og vísar
til þess að Hjördís er
nýlega flutt á heima-
slóðir á Akureyri. Hjördís vinnur með akrýl á
striga og pappír og nýtir jafnan litaskalann til hins
ýtrasta. Hjördís, sem hingað til hefur verið þekkt
fyrir fígúratívar ævintýramyndir, hefur nú söðlað
um og sýnir málverk þar sem persónurnar hafa
brugðið sér af bæ. Sýningin stendur til sunnudags-
ins 7. desember. Opið er um helgar frá 13 til 18 og
virka daga frá 16 til 18, eða eftir samkomulagi.
Myndlist
Heimkoma Hjör-
dísar á Akureyri
Eitt verka Hjördísar
HJARTANS hörpustrengir er
yfirskrift aðventutónleika kóra
Margrétar J. Pálmadóttur sem
haldnir verða í Langholts-
kirkju í dag. Fyrri tónleikarnir
hefjast kl. 14 en þeir síðari kl.
16.30. Á tónleikunum koma
fram rúmlega 200 söngkonur á
öllum aldri úr Stúlknakór
Reykjavíkur og kvennakór-
unum Gospelsystrum Reykja-
víkur og Vox feminae og munu
þær flytja margar af okkar fallegustu aðventu- og
jólaperlum. Einsöngvari með kórunum er Sigrún
Hjálmtýsdóttir en stjórnandi tónleikanna er Mar-
grét J. Pálmadóttir. Miðaverð er 3.000 kr. og
miðasala er við innganginn.
Tónlist
Rúmlega 200 söng-
konur á tónleikum
Sigrún
Hjálmtýsdóttir
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
Í DAG koma Gunnar Guðbjörnsson,
tenór, og Auður Gunnarsdóttir,
sópran, fram með Jónasi Ingimund-
arsyni á tónleikum í Salnum, sem
eru kynntir sem „kaflaskipti í lífi
söngvara“. Bæði eiga að baki glæst-
an feril, en hafa unnið að því að
breyta áherslum raddar sinnar.
„Við erum búin að vera í eins-
konar mútum,“ segir Auður og hlær.
„Á okkar stað í ferlinu verða oft
breytingar og maður fer meira með
röddina inn í fullorðinsfagið. Við
höfum bæði verið mjög lýrísk en er-
um nú að takast á við meiri drama-
tík.“
Auður bjó og starfaði sem söngv-
ari í Þýskalandi um fimmtán ára
skeið en kom heim fyrir þremur ár-
um og eignaðist barn skömmu síðar.
Hún segir að nú sé að koma tími til
að láta heyra í sér að nýju.
„Ég vinn hörðum höndum í rödd-
inni, er að syngja Verdi og Puccini
og þeirra konur. Ég þreytti eig-
inlega krókafrumraun í Íslensku óp-
erunni á dögunum, þegar ég söng
Santuzzu í Cavelleria Rusticana.
Það er ekki beina brautin inn í þetta
– frekar má kalla það heljarstökk.“
Hún segir röddina hafa þyngst og
að tónninn sé þykkari.
„Ég söng áður lýrískar konur,
sem eru saklausar og góðar. San-
tuzza er allt önnur týpa; afbrýðisemi
og ástir eru sterkari. Miklar tilfinn-
ingar í spilinu. Það tekur allt öðru-
vísi á, líkamlega og raddlega.
Tilfinningaskalinn er stærri og
dýpri í þessum dramatískari sópr-
anhlutverkum.“
Leita sér hjálpar
Gunnar er hér á landi í stuttu
stoppi á milli sýninga í Þýskalandi
þar sem hann tekst á við hið nýja
svið raddar sinnar. Um þessar
mundir syngur hann í Freischütz
eftir Weber í óperunni í Freiburg,
en að undanförnu hafa verkefni hans
mestmegnis tengst Wagner.
„Það er aðeins lengra síðan mín
kaflaskipti voru en hjá Auði,“ segir
Gunnar. „En á þessum tónleikum
sýni ég nýja hlið á mér. Það er kom-
ið yfir ár síðan ég söng mitt fyrsta
hlutverk í þessu nýja fagi, en þetta
verður fyrsta tækifæri fólks hér til
að heyra mig syngja Wagner og til
dæmis dúett úr Ótelló, sem má segja
að sé djúpa laugin í þessu fagi.“
Gunnar segir að það hafi ekki
gerst yfir nótt, að áherslur hans í
söngnum færðust í meiri dramatík.
„Þetta er eitthvað sem maður leit-
ar sér hjálpar við, hjá færu fólki. Ég
fór í nýtt söngnám til að breyta
þessu. Þetta eru umtalsvert meiri
líkamleg átök en í lýríkinni. Maður
þurfti að finna leið til að gera það án
þess að skaða sig.
Mín kreppa var fyrir tveimur ár-
um, þegar ég ákvað að fara þennan
veg. Ég er að skríða út úr kreppunni
þegar aðrir eru að lenda í henni!“
Þau Gunnar og Auður eru spennt
fyrir því að syngja á tónleikunum og
leyfa fólki að heyra hvernig radd-
irnar hljóma núna.
„Þetta er allt himnesk tónlist –
sýnishorn af því sem er í farvatninu
hjá okkur,“ segir Auður.
Voru í einskonar mútum
Sögvararnir Auður Gunnarsdóttir og Gunnar Guðbjörnsson bjóða fólki að
heyra nýjar og dramatískari raddir „Tilfinningaskalinn er stærri og dýpri“
Morgunblaðið/Kristinn
Nýr raddheimur Jónas Ingimundarson leikur með þeim Auði Gunnarsdóttur og Gunnari Guðbjörnssyni í Salnum í
dag. „Þetta eru umtalsvert meiri líkamleg átök en í lýríkinni,“ segir Gunnar um nýjar raddáherslur sínar.
Í HNOTSKURN
» Óperusöngpar á nýrribraut, er yfirskrift söng-
tónleika Gunnars Guðbjörns-
sonar og Auðar Gunn-
arsdóttur í Salnum klukkan
17.00 í dag. Með þeim leikur
Jónas Ingimundarson.
» Á efnisskránni eru tíusönglög eftir Richard
Strauss og dúettar úr óperum
eftir Wagner, Smetana, Verdi
og Bizet.
„ÉG vildi endilega spila þessi verk aftur, hér
heima,“ segir Ari Þór Vilhjálmsson, en hann kem-
ur fram ásamt Gerrit Schuil píanóleikara, í dag
klukkan 17.00 í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Víd-
alínskirkju í miðbæ Garðabæjar.
„Þessir tónleikar eru hluti af tónleikaröð Vídal-
ínskirkju, sem Gerrit stjórnar. Hann bauð mér að
koma fram með sér.
Efnisskráin er hérumbil sú sama og ég lék þeg-
ar ég útskrifaðist úr meistaranámi við North-
western University í Chicago í Bandaríkjunum í
júní,“ segir hann.
Tónleikaröðin er í samstarfi við Garðabæ og
menningarmálanefnd bæjarins. Gerrit er listrænn
stjórnandi tónleikanna.
Á efnisskránni eru Sónata í Es-dús eftir Moz-
art, Poemé eftir Chausson og loks „Kreutzer“-
sónata Beethovens.
„Jú, mig hafði lengi langað til að spila þessa
sónötu Beethovens,“ segir Ari. „Þetta er stykki
sem allir þurfa að spreyta sig á – og ein af uppá-
halds sónötunum mínum. Það sama má segja um
Poemé. Ég hef hinsvegar ekki spilað þessa Moz-
art-sónötu áður, ég hef verið að læra hana.“
Ari Þór er í Sinfóníuhljómsveit Íslands og kenn-
ir við Tónlistarskólann í Reykjavík og Listahá-
skóla Íslands. Hann segist frekar upptekinn, sem
sé gott, en það sé nauðsynlegt að fá svona tæki-
færi til að koma fram. „Ég reyni að skipuleggja
tíma minn þannig að ég komi fram af og til, til að
halda mér við, þroska og þróa. Það gerist bara
með því að spila,“ segir hann. efi@mbl.is
Vildi leika verkin hér á landi
Morgunblaðið/Kristinn
Ari og Gerrit „Ég reyni að skipuleggja tíma minn
þannig að ég komi fram af og til,“ segir Ari.
Ari Þór Vilhjálmsson leikur með Gerrit Schuil á tónleikum í Kirkjuhvoli í dag
Við erum komin með
svartan forseta og nú
finnst mér tímabært að það
verði svartur Bond … 65
»
Í umfjöllun um nýja þýsk-íslenska
orðabók forlagsins Opnu í blaðinu í
gær, kom ekki fram að Iðnú útgáfan
gaf út þýsk-íslenska orðabók árið
2004.
Þýsk-íslensk