Morgunblaðið - 29.11.2008, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2008
SAMBAND spænska leikaraparsins
Penelope Cruz og Javier Bardem ku
vera komið á vonarvöl.
Ástæðan mun vera sú að Penelope
er ævareið út í Bardem fyrir að gera
hlé á árslöngu fríi þeirra frá kvik-
myndaleik til að taka þátt í gerð nýj-
ustu myndar mexókóska framleið-
andans Alejandro Gonzales Inarritu,
Biutiful. Inarritu er líklega best
þekktur fyrir að hafa framleitt Ósk-
arsverðlaunamyndina Babel en hef-
ur þar fyrir utan komið að gerð
mynda á borð við 21 Grams og Am-
ores Perros og þykir með færustu
framleiðendum heims.
En hvers vegna ætti Cruz að
kunna illa við það að kærastinn
hennar vinni fyrir salti í grautinn?
Jú, parið mun hafa gert með sér
samning eftir að tökum á Woody Al-
len-myndinni Vicky Cristina Barce-
lona lauk um að taka sér árslangt frí
og hlúa að sambandinu. Bardem
virðist hins vegar ekki hafa getað
staðist freistinguna að leika í mynd-
inni (eða einfaldlega ekki nennt að
taka sér ár í að hlúa að sambandi
þeirra) og nú hefur hann kallað yfir
sig reiði kærustunnar.
Og ef þú lesandi góður ert að velta
fyrir þér boðskap þessarar fréttar
gæti hann í stuttu máli verið þessi:
Venjulegir karlmenn fá skömm í
hattinn fyrir að vinna ekki en Holly-
wood-leikarar fyrir að vinna.
Bara ef allar konur
væru eins og Penelope
Reuters
Samstiga? Penelope Cruz, Woody Allen og Javier Bardem í Barcelona fyrr
á þessu ári fyrir frumsýningu á mynd Allens, Vicky Christina Barcelona.
TÓNLISTAR- og tískumógúllinn P.
Diddy eyddi á dögunum rúmlega 100
milljónum króna í áheyrnar-
myndband sem hann hyggst senda
framleiðendum James Bond mynd-
anna. Aðdragandinn að þessum gíf-
urlegu fjárútlátum er yfirlýsing Did-
dys um að hann hefði hug á að taka
að sér hlutverk 007 sem fyrsti svarti
Bondinn og brjóta þar með blað í
sögu kvikmyndabálksins. Mun hann
hafa flogið frá New York til Suður-
Frakklands til að taka upp mynd-
skeiðið sem sýnir hann meðal annars
í smóking stíga inn í þyrlu í fylgd
tveggja fáklæddra kvenna. Þá sýnir
annað myndskeið Diddy íklæddan
silkisloppi á lystisnekkju þar sem
hann handleikur nýtt ilmvatn sem
hann framleiðir og kallast I Am
King (Ég er kóngur). Í myndband-
inu sem ku vera að finna á YouTube
segir Diddy: „Mig langar til að lýsa
því yfir að þetta myndband er gert
með næsta James Bond hlutverk í
huga. Ég tel að ég sé best til þess
fallinn að taka að mér hlutverk
leyniþjónustumannsins í næstu
Bond-kvikmynd. Ég hef þegar land-
að hlutverki í CSI: Miami, við erum
komin með svartan forseta og nú
finnst mér tímabært að það verði
svartur Bond.“ Í sjálfu sér er fátt
sem getur komið í veg fyrir að Bond
verði leikinn af svörtum leikara. Í
það minnsta telur núverandi Bond,
Daniel Craig það: „Ég er mikill
aðdáandi Obama og hugmynda hans
og ég held að nú sé tíminn fyrir
svartan Bond. Ef við getum sent
svartan mann í Hvíta húsið er ekk-
ert því til fyrirstöðu að Bond breyti
um hörundslit. James Bond hefur
gengið í gegnum miklar breytingar á
unanförnum áratugum og mun ef-
laust gera það áfram.“
Reuters
Bond? Sean „P Diddy“ Combs á alla
vega fataskáp sem myndi henta
njósnaranum James Bond.
P. Diddy
næsti James
Bond?
Daniel Craig Furðu rólegur yfir því
að Diddy geri atlögu að starfinu.
mbl.is
smáauglýsingar