Morgunblaðið - 07.12.2008, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 2008
www.skalholtsutgafan.is
FÆST Í KIRKJUHÚSINU OG ÖLLUM HELSTU BÓKAVERSLUNUM
Sigurbjörn Einarsson biskup er eitt mesta sálmaskáld
íslensku þjóðarinnar á síðari tímum.
Bókin geymir heildarsafn sálma hans og ljóða.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
RÍKISSTJÓRNIN mun leggja fram tillögur við fjárlaga-
nefnd Alþingis í vikunni um mögulegan niðurskurð frá
því sem ætlað er í fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár.
Nefndarmenn í fjárlaganefnd bíða eftir tillögupakka rík-
isstjórnarinnar og ljóst er að ráðherrar takast á sín í milli
um hvar mestur sparnaður eigi að verða.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa verið reif-
aðar hugmyndir, meðal annars innan stjórnarráðsins, um
ríflega 400 milljóna króna sparnað með því að verkefni
Varnarmálastofnunar fari a.m.k. að hluta til annarra
stofnana, sem sinna eftirliti með flugi og siglingum.
Ratsjáreftirlitið yrði þá rekið samhliða almennu eft-
irliti með flugumferð og gagnatengingar Varnarmála-
stofnunar og löggæslu- og öryggisstofnana yrðu sam-
nýttar.
Yfir 800 milljónir króna í ratsjáreftirlit
Tæpur einn og hálfur milljarður er ætlaður til reksturs
Varnarmálastofnunar á næsta ári en á þessu ári var yfir
800 milljónum varið til ratsjáreftirlitsins.
Til samanburðar má nefna að ríkislögreglustjóri á að fá
tæpa 1,4 milljarða króna til síns reksturs á næsta ári
samkvæmt fjárlagafrumvarpinu.
Tillögur koma í vikunni
Næst 400 milljóna sparnaður með breytingum á Varnarmálastofnun?
Fjárlagafrumvarpið að mestu órætt og óvíst hvenær Alþingi fer í jólafrí
Í HNOTSKURN
»Þriðja umræða um fjár-lagafrumvarpið á að fara
fram eigi síðar en 15. des.
»Annarri umræðu er hinsvegar ólokið og Alþingi
fer því sennilega ekki í
jólafrí undir lok næstu viku
eins og upphaflega var ráð-
gert.
AÐ reykja hangikjöt er allnokkur kúnst svo vel
sé og hluti af okkar bændamenningu. Á flest-
um bæjum voru til sérstakir reykkofar. Kjötið
þarf að salta hæfilega og reykja verður í
ákveðinn tíma eftir því hve stór stykkin eru
sem reykja skal. Bræðurnir Úlfar og Einar á
Flúðum tóku niður jólahangikjötið í vikunni.
Þeir hafa náð góðri leikni við að reykja en þeir
segjast hafa lært það af afa sínum Einari Jóns-
syni, sem bjó í Reykjadal í Hreppum. Þeir nota
mest tað og sögðu að skilyrði væri að stinga út
úr fjárhúsunum eftir fengitíma og hlógu dátt
þegar myndasmiður smellti af. Hér er Einar
með lambatungur en stærri bitarnir eru trippa-
kjöt.
Það er allnokkur kúnst að reykja hangikjöt
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
ALLT stefnir í að Strætó bs. hefji akstur til Borgarness
og Selfoss um áramót. Bílstjórum verður þó ekki fjölgað
heldur verður aksturinn í höndum verktaka.
Að sögn Reynis Jónssonar, framkvæmdastjóra
Strætó, hefur undirbúningur staðið yfir um allnokkurt
skeið af hálfu sveitarfélaganna. „Ég á von á því að þetta
verði með svipuðum hætti og á Akranesi, þar sem þessi
þjónusta fór hægt af stað en óx hratt fiskur um hrygg.“
Reynir segir aksturinn verða í höndum verktaka sem
umrædd bæjarfélög semja við. „Við önnumst hins vegar
framkvæmd aksturssamningsins, skipuleggjum akstur-
inn og fellum hann að okkar leiðarkerfi.“ Reiknað er með
töluverðum hópi farþega á þessum nýju leiðum.
Strætó tekur upp svæðaskipt fargjald
„Ákveðnir hópar farþega hafa alltaf nýtt sér almenn-
ingssamgöngur vel, s.s. námsmenn, enda er mjög dýrt að
reka bíl á Íslandi,“ segir Reynir. „Þegar þrengir að þrýst-
ir það kannski enn meira á þessa þjónustu.“
Samfara því að hefja akstur á nýju leiðunum er gert
ráð fyrir að Strætó taki upp nýtt fyrirkomulag á gjald-
skrám sínum. Þeim verður skipt eftir fargjaldasvæðum
eða „sónum“ (zones). Verða svæðin fjögur og mun kosta
þrisvar sinnum meira að ferðast á fargjaldasvæði þrjú en
svæði eitt. Til dæmis verður höfuðborgarsvæðið innan
fargjaldasvæðis eitt, gert er ráð fyrir að Borgarnes og
Árborg falli undir svæði fjögur sé lagt upp frá Reykjavík
en Hveragerði og Akranes undir fargjaldasvæði þrjú.
Ekki eru ráðgerðar hækkanir á gjaldskránni. ben@mbl.is
Strætó hefur akstur til
Selfoss og Borgarness
Morgunblaðið/Ómar
Nýjar leiðir Stefnt er að því að Borgarnes og Selfoss
bætist við leiðakerfi Strætó bs. frá áramótum.
EINUNGIS þrjú viðunandi tilboð
bárust í átta byggingarlóðir í
Hraunsholti og Garðahrauni sem
Garðabær bauð
út á dögunum.
Tilboðum í hinar
lóðirnar var
hafnað þar sem
þau reyndust of
lág.
„Þessar lóðir
eru á fínum stöð-
um og það var
slegist um þær á
sínum tíma,“
segir Gunnar Einarsson bæjar-
stjóri.
„Hins vegar er ástandið allt ann-
að í dag svo það kom okkur
skemmtilega á óvart að losna þarna
við þrjár lóðir.“
Þegar lóðirnar voru fyrst boðnar
út í byrjun árs 2007 segir Gunnar
bæinn hafa farið þá leið að hafa lág-
marksverð byggingarréttarins á
lóðunum tvöfalda upphæð gatna-
gerðargjalda auk gatnagerðargjald-
anna sjálfra sem fari eftir stærð
lóðanna og húsanna. „Lóðir frá
einkaaðilum á öðrum stöðum í bæn-
um voru að fara á hærra verði en
það á þessum tíma. En þetta er svo
sem allt afstætt í dag.“
Lágmarks-gatnagerðargjöld eru
að hans sögn í kringum 5 milljónir,
sem þýðir að lágmarks-lóðarverð
ætti að vera um 15 milljónir. Til-
boðin sem tekið var hljóðuðu upp á
13,5 til 15,4 milljónir. Tilboðin, sem
var hafnað, voru hins vegar öll und-
ir 10 milljónum. Segir Gunnar þær
lóðir verða áfram til sölu hjá fast-
eignasölum. ben@mbl.is
Lóðatilboð
reyndust
of lág
Gunnar
Einarsson
Voru langt undir lág-
marksverði bæjarins
VINSTRI GRÆN hafa boðað til
aukaflokksráðsfundar á Grand hóteli
í Reykjavík í dag, sunnudag.
Fundurinn hefst klukkan 14 með
ávarpi Katrínar Jakobsdóttur, for-
manns flokksráðs. Því næst fer for-
maðurinn Steingrímur J. Sigfússon
yfir aðgerðaáætlun VG um efna-
hagsmál. Síðan verða almennar um-
ræður og afgreiðsla mála.
VG halda
aukafund