Morgunblaðið - 10.03.2009, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2009
Látinn er í Stokkhólmi Hjör-leifur Björnsson bassaleik-ari, tæplega 72 ára gamall.
Trúlega eru ekki margir undir
fimmtugu sem kannast við nafn
Hjörleifs því hann hefur verið bú-
settur erlendis síðan 1963. Hann
hefur heldur aldrei viljað baða sig í
sviðsljósinu þó marga sigra hafi
hann unnið á listabrautinni og verið
akkeri fjölmargra íslenskra tónlist-
armanna er dvalið hafa í Svíþjóð.
Þótt hann kæmi heim á hverju ári
lék hann ekki oft hérlendis. Ég
minnist þess að hafa heyrt hann þrí-
vegis: Árið 1982 er hann lék á
skemmtiferðaskipi sem sigldi á
norðurslóðum. Er það gerði stuttan
stans í Reykjavík hélt hann tónleika
með sænskum félögum sínum úr
skipshljómsveitinni og íslenskum
djassleikurum; 1999 er hann lék
með íslensk/sænsku sveitinni „The
Immigrants“ á RúRek-djasshátíð-
inni með Halldór Pálsson og Erlend
Svavarsson innanborðs og 2002 er
hann hélt tónleika í Neskirkju, þar
sem vinur hans Reynir Jónasson er
organisti, með sænsku hljómsveit-
inni „Jazzin Dukes“, en sú hljóm-
sveit sérhæfði sig í verkum Duke
Ellingtons og lék gjarnan í kirkjum.
Hjörleifur var afar traustur bassa-
leikari og kunni ógrynni standarða.
Hjörleifur, eða Höddi eins oghann var jafnan nefndur, var
Akureyringur og upphaflega gít-
aristi. Hann heillaðist ungur af
djasstónlist og sat löngum stundum
með vini sínum, Sveini Óla Jónssyni
trommara, og hlustaði á Goodman,
Shearing og Parker. Hann var lag-
hentur og smíðaði sjálfur fyrsta gít-
armagnara sinn. Hann leysti oft
bassaleikarann í „hljómsveit húss-
ins“ í Alþýðuhúsinu á Akureyri af
hólmi og keypti loks af honum bass-
ann sem kallaður var Jón hrak.
Hann kom til Reykjavíkur í apríl
1956 til að leika með tríói Gunna
Sveins, sem þá var víbrafónleikari
og trommari en seinna tónskáldið
Gunnar Reynir Sveinsson. Jón Páll
var á gítar og Haukur Morthens sá
um sönginn. Þetta var mikil vinna
fyrir óvanan mann því Gunnar
hafði útsett tuttugu/þrjátíu lög fyr-
ir sveitina og Hjörleifur ekki vanur
að lesa beint af blaðinu. En það var
mikið æft og leikið næstum hvert
kvöld. Auk þessa stundaði hann
nám í bassaleik hjá Einari Waage.
1958 lék hann með hljómsveit Árna
Elfars á Nýja Röðli í Skipholti þar
sem Jón Sigurðsson blés í trompet,
Sveinn Óli sló trommurnar og
Haukur söng. 1963 heldur hann svo
til Danmerkur með Gunnari Orms-
lev og lék þar um tíma og stundaði
bassanám við konservatífið. Hann
lék lengi í Málmey, settist að í
Stokkhólmi 1970 og bjó þar til
dauðadags.
Afrekaskrá hans í Svíþjóð erlöng og litrík. Hann lék lengst-
um með vinsælustu danssveitum
Svía og var laginn við að smeygja
Íslendingum þar inn. Rúnar
Georgsson lék með honum í sveit
Bosse Sylvén þar sem Lise Lynn
söng og Þórir Baldursson lék með
honum í sveit Bruno Glenmark þar
sem Ann-Louise Hanson söng og
þeir léku m.a. undir söng ABBA í
fyrsta skipti sem sá frægi hópur
kom fram í sjónvarpi.
Höddi sagði eitt sinn: „Í hjartanu
er djasshólfið stærst, en það fer
minna fyrir því í vinnunni.“ Þrátt
fyrir það fékk hann mörg tækifæri
til að leika með frægum bandarísk-
um djassleikurum og 1975 var hann
á mánaðartónleikaferðalagi í Evr-
ópu með einum mesta klarínettu-
leikara djassins, Buddy DeFranco,
en bassaleikari hans, Marc Rich-
mond, átti ekki heimangengt. Þar
lék Randy Jones á trommurnar,
sem seinna heimsótti Ísland með
Dave Brubeck. Buddy var uppá-
haldsklarínettuleikari Finns heitins
Eydals og fékk Höddi Buddy til að
senda Finni kort, sem að sjálfsögðu
gladdi akureyrska klarínettusnill-
inginn mjög. Af öðrum bandarísk-
um djassleikurum sem Höddi lék
með má nefna Art Farmer, Dexter
Gordon og Teddy Wilson, en með
píanómeistaranum lék hann einn á
fyrri hluta tónleikanna og kom Wil-
son ekki að tómum kofunum er
hann stakk upp á lögum. Auk þess
lék Höddi undir stjórn Thad Jones,
Kai Windings og fleiri djassmeist-
ara með Stórsveit Stokkhólms, en
mesta upplifunin var þó að leika á
bassann með sveitinni með Mel
Lewis við hlið sér á trommurnar.
1981 lék Höddi með Halldóri
Pálssyni, Jóni Páli og Pétri Östlund
á hinu fræga Jamboree djassfestí-
vali í Varsjá og þeir Jón Páll léku
oft saman í Stokkhólmi og kenndu
við sama skóla, Söndra lati, og segir
Jón Rafnsson bassaleikari að flestir
þeir bassanemendur sem komust þá
í tónlistarháskóla í Svíþjóð hafi ver-
ið nemendur Hödda. Hann lék einn-
ig með stórsveitum sem þeir Er-
lendur Svavarsson (Nacka Big
Band) og Halldór Pálsson (Royal
Big Band) stjórnuðu í Stokkhólmi
og skal nú lokið að rekja feril
Hödda, þó miklu sé sleppt.
Kannski var mest um verthversu vel Höddi reyndist öll-
um er með honum unnu og til hans
leituðu. Hann þekkti alla í tónlist-
arbransanum í Svíþjóð og allir
þekktu hann. Því gat hann hjálpað
löndum sínum jafn vel og dæmin
sanna við að koma undir sig fót-
unum á sænskri grund. „Hann var
fínn bassaleikari, fínn í hljómum
með góðan tón,“ segir Jón Páll
„naut alls staðar virðingar og var
traustur vinur.“ Hans mun lengi
minnst í sænsku jafnt sem íslensku
tónlistarlífi.
Hógværi bassameistarinn
»Höddi sagði eittsinn: „Í hjartanu er
djasshólfið stærst, en
það fer minna fyrir því í
vinnunni.“ Þrátt fyrir
það fékk hann mörg
tækifæri til að leika með
frægum bandarískum
djassleikurum.
Klárir í sveifluna Árni Elfar, Gunnar Guðjónsson, Sveinn Óli Jónsson og
Hjörleifur Björnsson í sjónvarpsstúdíói á Vellinum um 1960.
linnet@simnet.is
AF LISTUM
Vernharður Linnet
Hart í bak (Stóra sviðið)
Þrettándakvöld (Stóra sviðið)
Skoppa og Skrítla í söng-leik (Kúlan)
Eterinn (Smíðaverkstæðið)
Kardemommubærinn (Stóra sviðið)
Lau 14/3 kl. 20:00 aukas. U
Mið 18/3 kl. 20:00 U
Fös 13/3 kl. 20:00 frums. U
Fim 19/3 kl. 20:00 2.sýn. Ö
Fös 20/3 kl. 20:00 3.sýn. Ö
Lau 14/3 kl. 13:00 Ö
Lau 14/3 kl. 14.30 Ö
Mán16/3 kl. 21:00 fors. Ö
Þri 17/3 kl. 20:00 fors. Ö
Mið 25/3 kl. 20:00 aukas. Ö
Mið 1/4 kl. 20:00 aukas.
Fim 26/3 kl. 20:00 4.sýn.
Fös 27/3 kl. 20:00 5.sýn. Ö
Fös 3/4 kl. 20:00 6.sýn.
Lau 21/3 kl. 13:00 Ö
Lau 21/3 kl. 14:30 Ö
Fim 19/3 kl. 21:00 fors. Ö
Fös 20/4 kl. 21:00 frums. Ö
Fim 2/4 kl. 20:00 aukas.
Fim 16/4 kl. 20:00 7.sýn.
Lau 28/3 kl. 13:00 U
Lau 28/3 kl. 14:30 Ö
Ósóttar pantanir seldar þremur dögum fyrir sýningu
Aukasýningar í sölu, sýningum lýkur í apríl
Í samstarfi við Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands
Fim 26/3 kl. 21:00
Fös 27/3 kl. 21:00
Sun 29/3 kl. 14:00 U
Sun 29/3 kl. 17:00 U
Lau 4/4 kl. 14:00 U
Lau 4/4 kl. 14:00 U
Sun 5/4 kl. 17:00 U
Sun 5/4 kl. 17:00 U
Lau 18/4 kl. 14:00 U
Lau 18/4 kl. 17:00 U
Sun 19/4 kl. 14:00 U
Lau 14/3 kl. 14:00 U
Sun 15/3 kl. 14:00 U
Sun 15/3 kl. 17:00 U
Lau 21/3 kl. 14:00 U
Lau 21/3 kl. 17:00 U
Sun 22/3 kl. 14:00 U
Sun 22/3 kl. 17:00 U
Lau 28/3 kl. 14:00 U
Lau 28/3 kl. 17:00 U
Sun 19/4 kl. 17:00 U
Lau 25/4 kl. 14:00 U
Lau 25/4 kl. 17:00 U
Sun 26/4 kl. 14:00 U
Sun 26/4 kl. 17:00 U
Þri 28/4 kl. 18:00 aukas. U
Sun 3/5 kl. 14:00 U
Sun 3/5 kl. 17:00 U
Þri 5/5 kl. 18:00 U
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Örfáar aukasýningar með bestu vinkonum barnanna
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Lau 14/3 kl. 19.00
Sun 22/3 kl. 19.00
Lau 28/3 kl. 19.00
Lau 28/3 kl. 22.00
Lau 4/4 kl. 19.00
Fös 17/4 kl 19.00
Yfir 140 uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins 2008.
Fló á skinni (Stóra sviðið)
Lau 14/3 kl. 20.00
Ath! Bannað innan 16 ára. Ekki fyrir viðkvæma. Síðasta sýning 15. mars.
.
Fös 13/3 kl. 19.00
Fös 13/3 kl. 22.00
Lau 14/3 kl. 19.00
Lau 14/3 kl. 22.00
Lau 21/3 kl. 19.00
Lau 21/3 kl. 22.00
Fös 27/3 kl. 19.00 (Stóra sviðið)
Lau 28/3 kl. 19.00
Sannleikurinn, einleikur Péturs Jóhanns (Litla sviðið)
Lau 21/3 kl. 19.00
Sun 15/3 kl. 20.00 (síð.sýn.)
Lau 28/3 kl. 22.00
Mið 1/4 kl. 20.00
Fim 2/4 kl. 20.00
Mið 11/3 kl. 20.00 5kort
Fim 12/3 kl. 20.00 6kort
Sun 15/3 kl. 20.00 7kort
Fim 19/3 kl. 20.00 8kort
Fös 20/3 kl. 20.00 9kort
Fim 26/3 kl. 20.00 10kort
Sun. 29/3 kl. 20.00
Fim. 2/4 kl. 20.00
Fös. 3/4 kl. 19.00
Lau 18/4 kl. 19.00
Sun 19/4 kl. 20.00
Milljarðamærin snýr aftur (Stóra sviðið)
Æðisgengið leikrit um græðgi, hatur og ást.
Fim 12/3 kl. 20.00
Fös 13/3 kl. 20.00
Óskar og bleikklædda konan (Litla sviðið)
Mið 11/3 kl. 20.00 3. kort
Fim 12/3 kl. 20.00 4. kort
Sun 15/3 kl. 20.00 5. kort
Fös 20/3 kl. 19.00
Fim 26/3 kl. 20.00
Fös 27/3 kl. 19.00
Sun 29/3 kl. 20.00
Sun 5/4 kl. 20.00
Fös 13/3 kl. 19:00 aukas.
Fös 13/3 kl. 22:00 aukas.
Rachel Corrie (Litla sviðið)
Fim 19/3 kl 20.00 frums
Fös 20/3 kl. 22.00 2kort
Sun 22/3 kl. 16.00 3kort
Mið 25/3 kl. 20.00
Fös 27/3 kl. 20.00
Lau 4/4 kl. 20.00
Rústað – aðeins fjórar sýningar eftir!
Í samstarfi við Ímagyn
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
■ Fimmtudagur 12. mars kl. 19.30
Elfa Rún og Bringuier
Stjórnandi: Lionel Bringuier
Einleikari: Elfa Rún Kristinsdóttir
Esa-Pekka Salonen: Helix
Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 4
Sergej Prókofíev: Fiðlukonsert nr. 2
Elfa Rún hefur unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga.
Á tónleikunum flytur hún fiðlukonsert nr. 2 eftir Prókofíev,
sem er einn lagrænasti og vinsælasti fiðlukonsert 20.
aldarinnar. Hljómsveitarstjóri er hinn bráðungi og efnilegi
Lionel Bringuier, aðstoðarstjórnandi Esa-Pekka Salonen í
Los Angeles.
Örfá sæti laus.
■ 19. mars kl. 19.30
Atli Heimir sjötugur - afmælistónleikar
Stjórnandi: Baldur Brönnimann
Einleikari: Melkorka Ólafsdóttir
Atli Heimir Sveinsson: Hreinn Gallerí SÚM
Atli Heimir Sveinsson: Flautukonsert
Atli Heimir Sveinsson: Sinfónía nr. 6 (frumflutningur)
Fúlar á móti
Fim 12/3 kl. 20:00 9.kortas Fös 20/3 kl. 19:00 Sýning Lau 28/3 kl. 19:00 Syning
Fös 13/3 kl. 19:00 10.kort Lau 21/3 kl. 19:00 Sýning Lau 28/3 kl. 21:30 syning
Fös 13/3 kl. 21:30 Aukas Lau 21/3 kl. 21:30 Aukas Fös 3/4 kl. 20:00 Syning
Sun 15/3 kl. 20:00 11.kort Fim 26/3 kl. 20:00 Aukas
Fim 19/3 kl. 20:00 Sýning Fös 27/3 kl. 20:00 Sýning
Tenórinn
Lau 14/3 kl. 20:00 Gestas
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
LEIKLISTARSAMBAND Íslands
opnar í kvöld kl. 20 í Nýlistasafninu
fundaröð undir yfirskriftinni Á
hverfanda hveli – ábyrgð lista-
mannsins. Fjalla fundirnir, sem
verða alls fimm, um hlutverk sviðs-
listamannsins í umróti dagsins í dag.
Fundakvöldin verða á þriðjudögum.
Fulltrúum fjögurra fagfélaga innan
sviðslista hefur verið falið að sjá um
eitt kvöld hverjum en fimmta kvöld-
ið verður tileinkað hlutverki lista-
manna í endurreisn Íslands.
Frummælendur í kvöld eru þau
Friðgeir Einarsson leikhús-
listamaður, Ragnheiður Skúladóttir,
framkvæmdastjóri LOKAL, alþjóða
leiklistarhátíðarinnar í Reykjavík og
Steinunn Knútsdóttir leik-
húslistakona.
Munu þau ræða um hvernig
starfsumhverfi sviðslistamanna hef-
ur breyst síðastliðna mánuði og
skoða hvort og hvernig leikhúsið eigi
að svara því ástandi sem nú ríkir í
samfélaginu. Umsjónarmaður fund-
araðarinnar er Kristín Eysteins-
dóttir leikstjóri. Sama kvöld verða
frumfluttir stuttir leiklestrar eftir
Kristínu Ómarsdóttur leikskáld.
Ber listin ábyrgð?
Í umrótinu Kristín Eysteinsdóttir er
umsjónarmaður fundaraðarinnar.