Morgunblaðið - 28.03.2009, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 2 8. M A R S 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
85. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
segðu
smápestum
stríð á hendur!
Fæst í apótekum og
heilsubúðum um land allt.
«DAGLEGTLÍF
VORU AÐ SEMJA SÖNG-
LEIK OG MISSTU AF ÖLLU
«PETERJENSEN
FULLUR AF VEST-
NORRÆNNI ANDAGIFT
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, fráfarandi
formaður Samfylkingarinnar, sagði eina
stærstu yfirsjón sína hafa verið að gera ekki
afdráttarlausari kröfur um breytingar á
heilla í væntanlegu forystuhlutverki sínu og
þeirri erfiðu vegferð sem hún tækist á hendur.
Á landsfundinum var samþykkt að Íslands-
hreyfingin yrði hluti af Samfylkingunni. | 12
stjórnkerfinu í samstarfi við Sjálfstæðisflokk-
inn. Samfylkingin hefði ekki fylgt eigin sann-
færingu um nauðsynlegar umbætur nógu fast
eftir. Hún óskaði Jóhönnu Sigurðardóttur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ingibjörg Sólrún þakkaði fyrir sig í setningarræðu landsfundar
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson og
Magnús Halldórsson
FORSVARSMENN Føroya Bank
hafa áhuga á eignum SPRON og
starfsemi hér á landi, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins.
Skilanefnd SPRON vonast til að
bindandi tilboð liggi fyrir á mánu-
dag í tilteknar eignir sparisjóðsins,
að sögn Hlyns Jónssonar, for-
manns skilanefndarinnar.
Skilanefndin átti í gær viðræður
við nokkra þeirra sem nefndin
ræddi við í fyrradag, en sextán að-
ilar höfðu lýst yfir áhuga á að
kaupa einstakar einingar sem til-
heyrðu SPRON.
„Það er mikill áhugi á eignum
SPRON,“ sagði Hlynur í gær, „og
það verða frekari viðræður í dag til
að fá betri mynd af þessu. Okkur
þykir þetta líta vel út. Við vonumst
til að bindandi tilboð liggi fyrir á
mánudag, með fyrirvara um áreið-
anleikakönnun og samþykki
stjórnvalda.“
Hlynur vildi ekki tjá sig um
hverja skilanefndin ræddi við í gær
eða hve margir þeir voru. Skv.
heimildum Morgunblaðsins munu
þeir hafa verið fimm.
Samkvæmt ársreikningi fær-
eyska bankans fyrir 2008 námu
heildareignir í árslok um 10,1 millj-
arði danskra króna, jafnvirði um
218 milljarða ísl. kr. miðað við nú-
verandi gengi. Í ljósi þess að bank-
inn gerir upp í dönskum krónum
gætu falist umtalsverð tækifæri
fyrir hann í að kaupa eignir hér á
landi þar sem gengi íslensku krón-
unnar er veikt um þessar mundir.
Færeyingar sýna áhuga
Føroya Bank hefur áhuga á eignum SPRON og starfsemi hér á landi
Heildareignir Føroya Bank námu um 218 milljörðum króna í árslok 2008
Í HNOTSKURN
» Hagnaður Føroya Bankí fyrra nam um 860
milljónum danskra króna,
eða sem svarar um 19 millj-
örðum íslenskra króna.
» Skilanefnd SPRON von-ast til þess að bindandi
tilboð í tilteknar eignir
sparisjóðsins liggi fyrir á
mánudag.
Svipaður | 4
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu lagði
hald á 300 kannabisplöntur í nýlegu einbýlis-
húsi í Hafnarfirði í gærdag. Ekki var búið í
húsinu og var það því eingöngu notað undir
kannabisræktun. Ræktunin var vel falin á
neðri hæð hússins sem er rúmlega fokhelt.
Tveir menn eru í haldi lögreglu og verða yf-
irheyrðir í dag.
Eru ræktunarstaðir kortlagðir úr lofti?
Engin tilviljun ræður því að lögreglan hefur
upprætt á þriðja tug ræktunarstaða. Margar
kenningar eru uppi, meðal annars hvort lög-
reglan hafi kortlagt staðina úr lofti með hjálp
hitamyndavéla. Sölumaður slíkra myndavéla
segir slíkt vel gerlegt. | 8
Engir íbúar en
mikil ræktun
300 plöntur í einbýlishúsi
Morgunblaðið/Júlíus
Plöntur Kannabisplantan var ræktuð í
stórum stíl í einbýlishúsinu í Hafnarfirði.
LEIKUR KR og
Íslandsmeistara-
liðs Keflavíkur í
undanúrslitum Ís-
landsmóts karla í
körfuknattleik fer í
sögubækurnar.
Úrslitin réðust
ekki fyrr en í
fjórðu framleng-
ingu og er þetta að-
eins í annað sinn
sem slíkt gerist.
KR skoraði 129 stig
gegn 124 stigum
Keflavíkur. „Ég hef aldrei tekið þátt í svona
spennuleik. Tvær framlengingar er það mesta
á mínum ferli fram til þessa en ég get fullyrt
að þessi leikur var betri skemmtun en „Idolið“
á Stöð 2,“ sagði Jón Arnór Stefánsson, leik-
maður KR, í leikslok. Í dag eigast við Grinda-
vík og Snæfell og með sigri getur Grindavík
tryggt sér sæti í úrslitum gegn KR. | Íþróttir
Meistararnir
féllu úr leik
Jón Arnór
Stefánsson
STÓR sending af húsgögnum var
stöðvuð af tollinum í kringum síð-
ustu áramót. Vörurnar fylltu tvo og
hálfan flutningagám. Í sendingunni
voru eftirlíkingar af þekktum hús-
gögnum frægra hönnuða. Aðallega
var um að ræða stóla og sófa en einn-
ig lampa. Þetta er langstærsta send-
ing af falsvöru sem hefur verið stöðv-
uð við innflutning hingað.
Nýlega var 5,3 tonnum af hús-
gögnum úr sendingunni eytt að
kröfu rétthafa að hönnuninni sem
smíðað var eftir. Helgi Þór Þor-
steinsson hdl. sagði að sendingin
hefði verið stöðvuð vegna ábending-
ar frá rétthafa.
Hörður D. Harðarson yfirtollvörð-
ur segir að tollgæslan sé orðin ár-
vökulli en áður gagnvart hugverka-
fölsunum. Tollgæsla víða um heim
hafi áhyggjur af fölsuðum neytenda-
vörum sem geti verið lífshættulegar.
Eyjólfur Pálsson í EPAL segir
ánægjulegt að sjá að tollurinn vinni
sína vinnu á þessu sviði. | 18
Falshúsgögn stöðvuð
Nýlega voru 5,3 tonn af eftirlíkingum
ýmissa frægra húsgagna eyðilögð
Ljósmynd/Helgi Þór Þorsteinsson
Eyðing Eftirlíkingunum var fargað.