Morgunblaðið - 28.03.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2009
Súrmjólk
á tilboði!
Ávaxta- og karamellu-
súrmjólk á tilboði í mars.
09
-0
35
4
/
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
LÖGREGLA rannsakar meint kynferðisbrot
starfsmanns á meðferðarheimili á Norðurlandi
gegn unglingsstúlku á heimilinu. Manninum, sem
er á fertugsaldri, hefur verið vikið frá störfum
meðan málið er í rannsókn. Þessi sami starfs-
maður var sakaður um hliðstætt brot á meðferð-
arheimilinu fyrir um ári. Rannsókn á því máli
leiddi ekki til ákæru heldur var málið fellt niður á
rannsóknarstigi.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndar-
stofu, staðfesti í gær að rannsókn færi nú fram en
vildi ekki tjá sig efnislega um seinna málið þar
sem rannsókn væri á frumstigi. „Það eru starfs-
reglur Barnaverndarstofu að þegar barn greinir
frá kynferðisbroti er þegar í stað óskað eftir lög-
reglurannsókn og var það gert í báðum tilvikum
af hálfu barnaverndaryfirvalda,“ segir Bragi. Við
þær aðstæður er viðkomandi vikið frá störfum
þar til rannsókn máls er lokið.
Taldi ekki að lög stæðu til uppsagnar
Varðandi fyrra málið sagði Bragi að meðan
rannsókn fór fram hefði maðurinn tímabundið
verið leystur frá störfum. Hann hefði síðan verið
fluttur til starfa á drengjaheimili eftir að lög-
reglurannsókn leiddi ekki til ákæru. Maðurinn
starfaði þar þangað til í haust er því heimili var
lokað og fór hann þá aftur í sitt gamla starf á
meðferðarheimilinu þar sem eru bæði drengir og
stúlkur.
Í fyrra málinu var um tvær stúlkur að ræða og
greindi önnur þeirra frá kynferðisbroti, að sögn
Braga. Rekstraraðili meðferðarheimilisins taldi
ekki að lög stæðu til uppsagnar og taldi minni lík-
ur en meiri á að maðurinn hefði til sakar unnið.
Að mati rekstraraðilans væri flutningur í starfi
fullnægjandi varúðarráðstöfun.
Framburður stangaðist á
Að sögn Braga var niðurstaða fyrri rannsókn-
arinnar nokkuð afdráttarlaus, þar sem framburð-
ur stúlknanna stangaðist á og gegn eindreginni
neitun sakbornings var málið fellt niður af lög-
reglu og ákæruvaldi.
Umrætt meðferðarheimili er einkarekið en er
með þjónustusamning við Barnaverndarstofu.
Bragi segir að ákvörðun um að hafa viðkomandi
starfsmann áfram í vinnu hafi verið tekin af
rekstraraðilanum en Barnaverndarstofa hafi
fylgst með framvindu málsins. „Við treystum
okkur ekki til að gefa fyrirmæli um uppsögn
þessa starfsmanns miðað við þær upplýsingar
sem fyrir lágu,“ sagði Bragi en hann hefur dvalið
norðanlands síðustu daga til að fara yfir málið.
Meint kynferðisbrot á
meðferðarheimili rannsakað
Sami maður sakaður um kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum fyrir ári
en málið var fellt niður á rannsóknarstigi Var tímabundið leystur frá störfum
NÝIR eigendur taka við Árvakri hf.,
útgáfufélagi Morgunblaðsins, í
næstu viku. Á hluthafafundi í félag-
inu í gær var hlutafé fyrri hluthafa
skrifað niður. Þar var jafnframt tek-
in ákvörðun um að nýir hluthafar
legðu inn nýtt hlutafé, 300 milljónir
króna að markaðsvirði.
Þórsmörk ehf. átti hæsta tilboð í
Árvakur í febrúar, að loknu söluferli
sem Íslandsbanki stýrði. Félagið er í
eigu Óskars Magnússonar, lög-
manns og fjárfestis.
Óskar sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að vinna nýrra hluthafa
við yfirtöku á félaginu gengi sam-
kvæmt áætlun og hluthafafundurinn
í gær hefði verið mikilvægur áfangi í
því. Stutt væri nú í að nýir eigendur
tækju formlega við rekstri Árvak-
urs. Hluthafar með Óskari Magn-
ússyni í Árvakri verða Gísli Baldur
Garðarsson, lögmaður og stjórn-
arformaður Olís, Guðbjörg Matt-
híasdóttir, sem er með fjölskyldu
sinni aðaleigandi Ísfélags Vest-
mannaeyja hf., Gunnar B. Dungal,
fyrrverandi aðaleigandi Pennans,
Pétur H. Pálsson, framkvæmda-
stjóri útgerðar- og fiskvinnslufyrir-
tækisins Vísis hf. í Grindavík, Þor-
geir Baldursson, forstjóri Kvosar
sem er móðurfélag prentsmiðjunnar
Odda, og Þorsteinn Már Baldvins-
son, forstjóri Samherja. Þá eru
áform um að breikka hluthafahópinn
enn frekar.
Nýir hluthafar taka við Árvakri
Morgunblaðið/ÞÖK
Hlutafjáraukning
samþykkt á fundi
ÍSLENSKI þorskurinn, ein verðmætasta útflutnings-
afurð landsins til áratuga, hefur átt erfitt uppdráttar á
mörkuðum undanfarin misseri. Þessir tveir hér að ofan
í Grindavík biðu þess að verða ferjaðir á heimsmarkað
þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið hjá.
Verð á þorski hefur lækkað umtalsvert að und-
anförnu og þá hefur einnig gætt sölutregðu á mörk-
uðum, þannig að birgðir hafa safnast upp. Í sunnudags-
blaði Morgunblaðsins verður ítarlega fjallað um stöðu
sjávarútvegsins, skuldir hans og markaðsaðstæður. Þá
verður einnig horft til framtíðarinnar og nýjum tæki-
færum gefinn gaumur.
Moegunblaðið/RAX
Þorskhausar í Grindavík bíða
þess að komast á heimsmarkað
HÉÐINN Steingrímsson stórmeist-
ari er í 2.-7. sæti með 3½ vinning að
lokinni fjórðu umferð Reykjavík-
urskákmótsins, sem fram fór í gær-
kvöldi í Listasafni Reykjavíkur.
Enski stórmeistarinn Stuart Con-
quest er efstur á mótinu með fullt
hús vinninga.
Stórmeistararnir Hannes Hlífar
Stefánsson og Henrik Danielsen og
alþjóðlegu meistararnir Stefán
Kristjánsson og Björn Þorfinnsson
koma næstir íslenskra keppenda
með þrjá vinninga ásamt Þorsteini
Þorsteinssyni sem vann ítalska al-
þjóðlega meistarann Luca Shytaj í
gær. Það voru ekki einu óvæntu úr-
slitin því Hjörvar Steinn Grétarsson
gerði jafntefli við bandaríska stór-
meistarann Vinay Bhat og Róbert
Lagerman gerði jafntefli við slóvak-
íska stórmeistarann Stefan Macak.
Sverrir Þorgeirsson gerði jafntefli
við alþjóðlega meistarann Jón Vikt-
or Gunnarsson.
Héðinn í
2.-7. sæti
með 3½
Stuart Conquest
efstur með fullt hús
Morgunblaðið/Ómar
Skák Héðinn Steingrímsson er efst-
ur Íslendinga á Reykjavíkur-
skákmótinu eftir fjórar umferðir.
KONUR á lands-
fundi Sjálfstæð-
isflokksins sem
Morgunblaðið
hefur rætt við
segjast vera
áhyggjufullar yf-
ir stöðu kvenna í
flokknum.
Er þar nefnt
að sá sem bíði ósigur í kjöri til
formanns kunni að lýsa yfir fram-
boði til varaformanns en varafor-
mannskjör er strax að loknu for-
mannskjöri á morgun. Kristján
Þór Júlíusson hefur ekki útilokað
framboð til varaformanns og leit-
aði til einstakra þingmanna
flokksins í síðustu viku með stuðn-
ing í huga í það embætti, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins. | 16
Eru hræddar um
stöðu Þorgerðar
RÚMLEGA tvöfalt fleiri umsóknir
hafa borist um sumarstörf á vegum
Nordjobb það sem af er þessu ári en
allt síðasta ár. Norræna félagið
annast umsóknir fyrir Nordjobb og
er þjónustan ætluð ungmennum í
leit að sumarvinnu á Norður-
löndum.
Búist er við miklu atvinnuleysi
meðal ungmenna í sumar en um
þessar mundir stendur Nordjobb
fyrir átaki fyrir ungt fólk með
meiraprófsréttindi og verður kynn-
ingarfundur haldinn í húsnæði
Vinnumálastofnunar föstudaginn 3.
apríl. Þá er hægt að leggja inn raf-
ræna umsókn á heimasíðunni nor-
djobb.net. jmv@mbl.is
Ungmenni vilja til
Norðurlandanna
GRÍMSVÖTN eru í áttunda sæti á
lista Discovery Channel yfir 10
merkilegustu eldfjöll allra tíma.
Magnús Tumi Guðmundsson jarð-
eðlisfræðingur segir það verð-
skuldað. „Ég er stoltur fyrir hönd
okkar eldfjalla. Ég tel sæti Gríms-
vatna og Gjálpar alveg verðskuldað
á þessum lista,“ sagði Magnús í við-
tali við mbl.is.
Í fyrsta sæti eru Síberíuhraun-
slétturnar. Þar gaus fyrir 250 millj-
ónum ára og þá varð mesta eyðing
lífs sem vitað er um í jarðsögunni. Í
öðru sæti á listanum er Tambora í
Indónesíu, Ólympusfjall á Mars er í
þriðja sæti, Santorini í fjórða sæti
og Ra Patera á Júpíter í fimmta
sæti. Krakatau á Indónesíu er í
sjötta sæti og Mauna Kea á Hawaii í
sjöunda sæti.
Grímsvötn í
áttunda sæti