Morgunblaðið - 28.03.2009, Page 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
NÝR formaður Sjálfstæðisflokksins,
sem verður kjörinn á sunnudag, fær
ekki umboð flokks síns til þess að
beita sér fyrir því að hefja aðild-
arviðræður við Evrópusambandið
verði hann starfandi í ríkisstjórn á
næsta kjörtímabili.
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur talið
að aðild að Evrópusambandinu þjóni
ekki hagsmunum íslensku þjóð-
arinnar en jafnframt talið mikilvægt
að sífellt sé í skoðun hvernig hags-
munum Íslands verði best borgið í
samstarfi Evrópuríkja. Endurnýjað
hagsmunamat hefur ekki leitt til
grundvallarbreytinga á afstöðu Sjálf-
stæðisflokksins.“ Svona hljómar inn-
gangur að ályktun landsfundar um
Evrópumál, en hún var samþykkt
með miklum meirihluta atkvæða. Áð-
ur en tillagan var borin undir atkvæði
felldi fundurinn tillögur, sem annars
vegar gerðu ráð fyrir því að formanni
flokksins væri falið að undirbúa um-
sókn um aðild að ESB og hins vegar
að tillaga Evrópunefndarinnar yrði
felld og því lýst yfir að ekki yrði sótt
um ESB-aðild.
Þjóðaratkvæðagreiðsla í lög
Í ályktuninni sem samþykkt var
segir að kostir aðildar tengist helst
gjaldmiðilsmálum og ljóst að ýmis
álitamál verði aðeins skýrð í við-
ræðum. Sterk lýðræðisleg rök mæli
engu að síður með því að þjóðin
„skeri úr um svo stórt og umdeilt
mál“. Er það skoðun flokksins að
ákveði Alþingi eða ríkisstjórn að
sækja skuli um aðild að Evrópusam-
bandinu skuli fara fram þjóð-
aratkvæðagreiðsla um þá ákvörðun.
Landsfundurinn telur að setja skuli í
almenn lög um framkvæmd þjóð-
aratkvæðagreiðslna og að hugsanleg
niðurstaða úr samningaviðræðum
verði ávallt borin undir þjóð-
aratkvæði.
Ekki á dagskrá
Í upprunalegri ályktun, sem var
síðan breytt á fundinum, var ályktað
að landsfundur samþykkti að fela for-
ystu flokksins að leita samkomulags á
Alþingi um að á næsta kjörtímabili
færi fram þjóðaratkvæðagreiðsla um
aðildarumsókn. Með því að hafna
þessu verður ekki betur séð en að
Sjálfstæðisflokkurinn sé í raun að
hafna því að Evrópumálin verði á
dagskrá næstu fjögur árin.
Ljóst er að andstæðingar aðildar
að Evrópusambandinu mættu vopn-
um búnir á landsfundinn. Ýmsir
kvöddu sér hljóðs til þess að andmæla
hugmyndum um aðild, þ.á m Kjartan
Gunnarsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri flokksins. Hæst bar
harðorða ræðu Björns Bjarnasonar,
fyrrverandi ráðherra, sem sagði að
það væri hægt að taka upp viðræður
um samstarf í gjaldmiðilsmálum án
þess að sækja um aðild. Björn gagn-
rýndi fyrrverandi ríkisstjórn, sem
hann sat sjálfur í, og þá sérstaklega
utanríkisráðherra fyrir að hafa
brugðist rangt við þegar Bretar
beittu hryðjuverkalögum gegn Ís-
lendingum. „Við ættum ekki að leggj-
ast á bónorðshné gagnvart Evrópu-
sambandinu,“ sagði Björn og vísaði til
þess að ESB hefði tekið afstöðu með
Bretum gegn Íslendingum. Hann
sagði að fyrrverandi utanrík-
isráðherra hefði reynt að „troða okk-
ur í Evrópusambandið hvað sem taut-
aði og raulaði“. Björn hækkaði
róminn til að leggja áherslu á orð sín.
Þjóðin segi sína skoðun
Bjarni Benediktsson alþing-
ismaður sem hefur lýst yfir framboði
til formanns sagði að aðeins einn
flokkur á landinu hefði aðild á dag-
skrá, Samfylkingin, og að hún hefði
einangrað sig í Evrópumálum. „Fyrr
eða síðar er það [þó] lýðræðislegt að
þjóðin fái að segja sína skoðun í mál-
inu,“ sagði Bjarni, að því er virðist til
þess að leggja áherslu á að mögu-
leikanum yrði haldið opnum.
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
Alcoa Fjarðaáls, bað landsfund-
argesti að hugleiða að tvö af verð-
mætustu fyrirtækjum landsins, Mar-
el og Össur, væru hugsanlega á leið
úr landi. Með orðum sínum vildi Tóm-
as leggja áherslu á að landsfund-
argestir horfðu á aðild með opnum
huga. Ragnhildur Helgadóttir, fyrr-
verandi alþingismaður og ráðherra,
sagði að svo virtist sem afstaða
margra fundarmanna mótaðist af
hræðslu. „Þessa óskaplegu hræðslu
við aðildarviðræður skil ég ekki,“
sagði hún. Landsfundarfulltrúar sem
rætt var við kváðust ekki telja að
þessi niðurstaða fæli í sér stefnuleysi
í Evrópumálum heldur væri til þess
fallin að sætta andstæð sjónarmið
innan flokksins.
Mættu vopnum búnir
Endurnýjað hagsmunamat hefur ekki leitt til grundvallarbreytinga á afstöðu
Sjálfstæðisflokksins til ESB Sjálfstæðismenn hafna aðild, en samt ekki
Morgunblaðið/Heiddi
KONUR í Sjálf-
stæðisflokknum
sem Morg-
unblaðið hefur
rætt við hafa
áhyggjur af sinni
stöðu í flokknum
og er þar tvennt
nefnt til sög-
unnar. Annars
vegar döpur nið-
urstaða úr próf-
kjöri flokksins í Reykjavík og hins
vegar áhyggjur yfir því að sá sem
bíði ósigur í formannskjöri lýsi yf-
ir framboði til varaformanns nái
hann góðu fylgi í formanninn, en
kjör varaformanns er strax að
loknu kjöri formanns á morgun.
Er talið að slíkt geti ógnað stöðu
Þorgerðar Katrínar Gunn-
arsdóttur.
Kristján Þór Júlíusson alþing-
ismaður, sem er í framboði til for-
manns, leitaði í síðustu viku eftir
stuðningi einstakra þingmanna
Sjálfstæðisflokksins í embætti
varaformanns, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins. Hann úti-
lokaði jafnframt ekki að fara í
varaformannsslag ef hann biði
ósigur í kjöri til formanns í samtali
við Viðskiptablaðið á fimmtudag.
„Ég hef nú einfaldlega ekki leitt
hugann að því,“ sagði Kristján.
Kristján Þór bauð sig fram í
embætti varaformanns á lands-
fundi árið 2005 og beið þar ósigur
fyrir Þorgerði Katrínu.
Séra Halldór Gunnarsson, sókn-
arprestur í Holti, óskaði á lands-
fundi eftir fleiri framboðum í emb-
ætti varaformanns svo hægt yrði
að kjósa um það embætti.
Sagði Halldór að ef ekkert ann-
að framboð kæmi fram myndi
hann sjálfur bjóða sig fram en tók
fram að slíkt framboð yrði ekki í
alvöru eins og hann sagði.
thorbjorn@mbl.is
Áhyggjur af
stöðu kvenna
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
HART var tekist
á í starfshópi
landsfundar um
tillögur Evrópu-
nefndar Sjálf-
stæðisflokksins á
fimmtudags-
kvöldið. Sveinn
Andri Sveinsson,
hæstarétt-
arlögmaður og
landsfund-
arfulltrúi, segir að stuðningsmenn
aðildar hafi mætt harðri andstöðu í
nefndinni. Sveinn Andri segir að
umræðan hafi verið hálfundarleg á
köflum og lagði einn fundarmanna
til að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að
beita sér fyrir því að þjóðin tæki
upp „íslenskan dal.“ Sveinn er sjálf-
ur hlynntur aðild að ESB.
Vildi taka upp
íslenskan dal
Sveinn Andri
Sveinsson
SJÁLFSTÆÐISMENN báðust í gær afsök-
unar á þeim mistökum sem gerð voru í lands-
stjórninni. Í ályktun landsfundar um endur-
reisn atvinnulífsins, sem samþykkt var í gær
með miklum meirihluta atkvæða, kemur fram
að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið í ríkisstjórn
á uppgangstímanum og beri því ójákvæmilega
mikla ábyrgð. „Sjálfstæðisflokkurinn axlar
þessa ábyrgð og biðst afsökunar á því sem mið-
ur fór en hann átti að gera betur.“
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri
endurreisnarnefndar Sjálfstæðisflokksins, var
harðorður þegar hann kynnti drög að ályktun
og gagnrýndi meðal annars háa stýrivexti
Seðlabankans. Mun minni umræður sköpuðust
um ályktun um endurreisnina heldur en um
Evrópumálin. Í ályktun um endurreisnina er
farið um víðan völl en þar er m.a lögð áhersla á
nýja hugsun í heilbrigðis- og menntamálum
með aukna áherslu á einkarekstur eða „útvist-
un verkefna“.
Í ályktuninni kveður við kunnuglegan tón
þar sem segir að störfum verði ekki fjölgað
með skattahækkunum og árangur náist ekki
með ríkisforsjá og höftum. Í þeim hluta álykt-
unarinnar er snýr að atvinnulífi og fjölskyldum
segir að úrræði þurfi að vera í boði fyrir þá sem
eiga í erfiðleikum með að standa í skilum með
lán. Hugað verði að höfuðstólslækkun lána og
greiðsluaðlögun. Höfuðstólslækkun lána er
hugmynd sem Tryggvi Þór Herbertsson, fram-
bjóðandi flokksins í Norðausturkjördæmi, hef-
ur viðrað að undanförnu, en hann leggur til
20% niðurfellingu lána. thorbjorn@mbl.is
Vilja niðurfellingu lána
Sjálfstæðismenn báðust afsökunar á mistökum í landsstjórninni Álykta
með höfuðstólslækkun lána Aukinn einkarekstur í heilbrigðisþjónustu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsfundur Sjálfstæðismenn leggja áherslu
á nýja hugsun í heilbrigðismálum.
Í HNOTSKURN
»Sjálfstæðismenn vilja efla skatta ogsamkeppniseftirlit og „viðskipta-
legum loftfimleikum“ er hafnað.
»Lækka þarf vexti og afnema bergjaldeyrishöft. Endurreisn banka-
kerfisins með erlendri eignaraðild og
áherslu á heilbrigðan rekstur er æski-
leg að mati flokksmanna.
»Þá vill flokkurinn að fjármagnverði sett í kynningu á Íslandi og að
utanríkisþjónustan einbeiti sér að því
að bæta ímynd landsins erlendis.
Hvorki Geir H. Haarde, formaður
Sjálfstæðisflokksins, né Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir varafor-
maður létu til sín taka í umræðum
á landsfundi um Evrópumál í gær.
Þorgerður Katrín sagði á við-
skiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands
hinn 12. mars sl. að nauðsynlegt
væri að nýjum formanni Sjálfstæð-
isflokksins yrði veitt umboð á
landsfundi til að hefja aðild-
arviðræður við Evrópusambandið.
Hún sagði þá að Sjálfstæðisflokk-
urinn hefði til þessa talið hags-
munum sínum betur borgið utan
ESB. Nú væru aðstæður allt aðrar.
„Við verðum að
fá skýr svör,“
sagði Þorgerð-
ur. Hún sagði
að tvíþætt
vandamál
myndi leysast
með aðild að
ESB: „Peninga-
málastefnan og
gjaldmiðillinn
og ekki síður orðspor okkar og við-
skiptavildin. Getum við verið ein
eða er betra fyrir okkur að vera í
samstarfi við aðrar þjóðir?“ sagði
Þorgerður.
Leiðtogar flokksins tóku ekki til máls
Geir H. Haarde