Morgunblaðið - 28.03.2009, Side 26

Morgunblaðið - 28.03.2009, Side 26
26 Daglegt lífVIÐTAL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2009 Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is S jónvarpsþátturinn Silfur Egils á tíu ára afmæli í apríl. „Ég bjóst aldrei við að vera með þáttinn svona lengi, en ég er ekkert að fara að hætta á næst- unni,“ segir Egill Helgason, um- sjónarmaður þáttarins. Fyrir skömmu fékk Egill tilboð um að taka sæti á lista Framsóknarflokks- ins fyrir næstu kosningar en af- þakkaði boðið. „Ég hugsaði mig svo- lítið um en komst að þeirri niðurstöðu að ég hefði meiri áhrif þar sem ég er, auk þess sem ég er þar í skemmtilegra hlutverki en ég væri sem óbreyttur þingmaður.“ Bloggið mjög mikilvægt Hvert finnst þér hlutverk þitt vera í þjóðmálaumræðunni sem um- sjónarmaður Silfurs Egils? „Mér finnst mjög mikilvægt að allur sannleikurinn um hrunið og árin þar á undan komi fram. Þetta er algjört aðalatriði. Ég er ekki áhugamaður um refsingar eða gapa- stokka. En ef á að vera líft í þessu landi næstu áratugina þurfum við sannleikann og engar refjar. Það er svo margt erfitt sem bíður í nánustu framtíð, atvinnuleysi og kjaraskerð- ing. Þess vegna er svo mikil þörf á hreinskilni og sannsögli – sem sár- vantaði svo í síðustu ríkisstjórn. Ég finn líka að fólk er miklu betur vak- andi nú en það var fyrir hrun. Það spyr fleiri spurninga, lætur ekki svo auðveldlega plata sig. Þetta er já- kvæða hliðin á öllum þessum ósköp- um. Það má segja að hafi orðið bylting í heilabúinu á Íslendingum. Ég hef litið á það sem eitt hlutverk mitt að gefa þessu fólki rödd. Þess vegna hef ég fækkað stjórnmálamönnum í þættinum hjá mér og farið að bjóða fleira fólki af ýmsum sviðum þjóð- lífsins, venjulegu fólki. Í gegnum þetta hef ég kynnst mörgu skemmtilegu, góðu og hugsandi fólki sem margt er að veita mér upplýsingar og hugmyndir. Ég hef líka orðið var við að þar er ekki mik- il eftirspurn eftir stjórnmálamönn- um, allir vita að svörin er ekki að finna í gamaldags flokkspólitískum þvergirðingi.“ Netið er farvegur nafnlausra skoðana og þar koma oft fram al- varlegar órökstuddar ásakanir. Hvaða áhrif hefur þetta haft? „Menn ættu ekki að gera of mikið úr því. Bloggið er mjög mikilvægur farvegur og það hefur verið í geysi- lega mikilvægu hlutverki. Ekki bara sem vettvangur skoðana, heldur líka sem upplýsingaveita. Margt af því sem síðar kemur í fréttum er upp- runnið á blogginu. Mér hefur líka sýnst að svo ótalmargt sem er sagt og maður trúir varla hafi síðar reynst vera sannleikur. Raunveru- leikinn er fyrir löngu farinn fram úr villtustu hugmyndum manns – til dæmis um spillinguna sem hér hef- ur viðgengist. En bloggið getur ver- ið hart og óvægið – og stundum mjög hratt. Tökum til dæmis Tryggva Jónsson, sem var að vinna hjá Landsbankanum. Hann kom í viðtal á mbl.is og sagðist ekki hafa unnið fyrir Baug síðan 2002. Tveim- ur mínútum síðar loga bloggheimar og segja: „Nei, þetta er ekki satt hjá manninum.“ Fólk sem vissi betur gaf sig fram. En auðvitað breytir þetta ýmsum viðmiðum í blaða- mennsku. Sumir vilja halda því fram að bloggið sé einhvers konar for- arvilpa. Sjálfur hef ég verið að skrifa á netið síðan í byrjun árs 2000. Nú hef ég þann háttinn á að ég leyfi athugasemdir við greinar sem ég skrifa, athugasemdir sem ekki endilega eru undir nafni. Þessi háttur er reyndar hafður á í mörg- um virtum fjölmiðlum, til dæmis á vef Guardian. Ég fylgist hins vegar mjög vel með þessum athugasemd- um. Eyði miskunnarlaust út rógi og því sem er of persónulega rætið. Ég get líka sett þá verstu í bann með þar til gerðum skipunum og það geri ég ef ég tel þörf á. Því held ég að mestu sóðarnir hafi forðað sér af vefnum hjá mér. Bloggið mitt hefur ekki verið uppspretta kjaftasagna fremur en Moggabloggið eða blogg- heimar almennt. Blogg getur vissu- lega verið gróðrarstía fyrir hatur og annarlega sjónarmið, en í heildina finnst mér að áhrif þess hafi verið jákvæð. Þetta er opinn og lýðræð- islegur vettvangur þar sem almenn- ingur getur haft sína rödd – og þar sem peningamenn geta til dæmis ekki ráðið hvað birtist og hvað ekki.“ Gjarn á að halda mínu striki Er sá tími liðinn að hefðbundnir fjölmiðlar eins og RÚV og Morg- unblaðið hafi vald yfir því hvaða mál komast upp á yfirborðið? „Þeir hafa ekki lengur þetta mikla dagskrárvald. En það er ekki þar með sagt að þeir séu ekki mik- ilvægir. Mér finnst Morgunblaðið sjaldan hafa verið betra en eftir hrunið, og þar má sérstaklega nefna að viðskiptadeild blaðsins hefur staðið sig frábærlega í að fletta ofan af alls kyns tortólumálum og nú síð- ast í merkri úttekt á einkavæðingu bankanna. Þar staðfestust reyndar hlutir sem ég tel mig hafa verið að segja í mörg ár, oft við litlar und- irtektir. Þetta olli því að Geir Haarde baðst afsökunar á einka- væðingunni við setningu lands- fundar Sjálfstæðisflokksins. Mogginn missti eiganda sinn og það reyndist hafa feikigóð áhrif. Ritstjórnin, sem vissi ekki hvort blaðið myndi lifa deginum lengur, virðist hafa fyllst metnaði, blaðið varð gagnrýnna og forvitnara. Bloggið kemur aldrei í staðinn fyrir þessa stóru fjölmiðla eins og Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Þeir hafa afl til að kafa ofan í mál, en um leið eru þeir merkilegar menningarstofnanir með langa sögu og hefð. Þetta hef ég fundið sterk- lega eftir að ég byrjaði að vinna á RÚV. Bara það að vita af hinu risa- stóra safni stofnunarinnar, með röddum þeirra sem á undan komu og myndum af þeim fyllir mann lotningu. Eins er það með gagna- og ljósmyndasafn Morgunblaðsins. Þetta eru ómetanleg menning- arverðmæti. En það er ekki lengur ein miðja, nú geta allir haft sína rödd og stundum er ekki laust við að margir séu að æpa í einu. Mín rödd hefur verið hávær, kannski af því ég er fyrirferðarmikill og búinn að ýta mikið frá mér í lífinu.“ Hafa háttsettir menn haft sam- band við þig og kvartað undan skrif- um þínum eða áherslum þínum í Silfri Egils? „Þeir hafa eiginlega aldrei sam- band við mig. Ég verð undrandi þegar ég heyri fólkið í Kastljósi eða á fréttastofunni kvarta undan því að aðstoðarmenn áhrifamanna eða ráð- herrar séu að hringja í það. Mér er til dæmis sagt að útrásarvíkingarnir og þeirra fólk hafi sífellt verið að hringja á fréttastofur landsins og kvarta ef þeim þótti fréttaflutningur af sér ekki nógu jákvæður. Oft var mikil frekja í þessum samskiptum. Þó hefði gagnrýnin á íslenska fjár- málaheiminn mátt vera miklu öfl- ugri, þá hefði kannski mátt forða okkur frá einhverju af þessum ósköpum. En ég er svona frekar gjarn á að halda mínu striki. Ég hef aldrei farið eftir neinum formúlum um hvernig maður á að vera í sjón- varpi, geri þetta bara eftir mínu eig- in höfði og minni bestu samvisku. En auðvitað fer ég í taugarnar á mörgum og geri til dæmis ekki ráð fyrir því að ég sé hátt á vinsælda- lista þeirra sem stjórnuðu íslenska fjármálaundrinu. Ég er stundum spurður hvort mér hafi verið hótað eða eitthvað svoleiðis. Svarið er nei. Og eitt af því sem heldur mér gangandi er hvað ég fæ hlýtt viðmót þegar ég kem út á meðal fólks, á Laugavegi eða í stórmarkaði. Þá kemst ég varla afturábak eða áfram því það eru svo margir sem þurfa að tala við mig. Yfirleitt er það allt á góðum og jákvæðum nótum.“ Jóhanna í tísku Þú ert varla ofarlega á lista margra stjórnmálamanna. „Traust á stjórnmálamönnum er náttúrlega í algjöru lágmarki núna, maður getur jafnvel notað orðið al- kul. Einhver stærstu afglöp Íslands- sögunnar eru að ekki skyldi brugð- ist miklu fyrr við þegar allt var að komast á heljarþröm hérna snemma á síðasta ári. Stjórnmálamennirnir kusu að bíða og sjá, þeir vonuðu að þetta myndi bara reddast. Það er al- gjörlega óboðlegt. Þess vegna má segja að síðasta ríkisstjórn sé ein sú versta sem hefur setið á Íslandi. Sökum þessa og sökum þess hversu náin tengsl voru milli flokkanna og ólígarkanna – líkt og birtist til dæmis í einkavæðingunni – treystir fólk ekki stjórnmálamönnum. Ég hef talað um að það hafi verið einhvers konar blóðskamm- arsamband milli stjórnmála og við- skiptalífs. Sjáðu til dæmis Við- skiptaráð sem montar sig af því E g i l l H e l g a s o n Sannleika og engar refjar Morgunblaðið/Kristinn Sjónvarpsmaðurinn „Það má segja að hafi orðið bylting í heilabúinu á Íslendingum. Ég hef litið á það sem eitt hlut- verk mitt að gefa þessu fólki rödd. Þess vegna hef ég fækkað stjórnmálamönnum í þættinum hjá mér. “

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.