Morgunblaðið - 28.03.2009, Page 28
28 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MARS 2009
Guðmundur Rúnar Guðmundsson
Verðlaun fyrir þjóðlegustu mynd ársins
Verðlaun fyrir
íþróttamynd ársins
Verðlaun fyrir
skoplegustu mynd
ársins
Verðlaun fyrir mynd í
flokknum daglegt líf
Golli
Verðlaunafréttir
2008
Morgunblaðið og mbl.is hefur á að skipa harðsnúnu
liði blaðamanna og ljósmyndara sem hafa sópað til sín
verðlaunum að undanförnu. Blaðamannafélag Íslands
verðlaunar árlega fyrir bestu blaðamennsku ársins og
Starfsfólk Morgunblaðsins
sópar að sér verðlaunum
F
ít
o
n
/
S
ÍA
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Þ
að verður tjúttað á taum-
lausum hraða á töðu-
gjaldaballinu í kvöld.“
Svo segir í Söng sveiflu-
kóngs í nýjum íslensk-
um söngleik, „Töðugjaldadansleik-
urinn – sendu mér sms“, sem
leikdeild Ungmennafélags Reyk-
dæla sýnir í félagsheimilinu Loga-
landi í Borgarfirði. Bjartmar Hann-
esson, bóndi á Norður-Reykjum og
landskunnur gamanvísnahöfundur,
samdi textann og Hafsteinn Þór-
isson, bóndi og tónlistarkennari á
Brennistöðum, gerði lögin.
Bjartmar og Hafsteinn sendu tvö
lög í dægurlagasamkeppni fyrir
nokkrum árum. Hafstein langaði til
að nýta þessi lög í leikstarfseminni
og prjóna í kringum þau. Nefndi
hann það við Bjartmar og for-
sprakka leikdeildarinnar. Þeir
Bjartmar ræddu málið í einlægni á
svokölluðum gleðifundi í lok nóv-
ember. „Hann hringdi í mig örfáum
dögum síðar og var þá kominn með
söguþráðinn,“ segir Hafsteinn.
Bjartmar samdi textana inn í sögu-
þráðinn og sendi Hafsteini jafnóðum
og hann reyndi að hnoða saman lög-
um, eins og Hafsteinn kemst sjálfur
að orði.
Eftir eins og hálfs mánaðar törn
var til orðinn söngleikur með átján
lögum, auk laga á varamannabekk.
„Við misstum bæði af bankahruninu
og jólunum, það var verra með jól-
in,“ segir Bjartmar.
Fullur hestamaður mætir
Söngleikurinn gerist á töðugjalda-
dansleik í félagsheimili á lands-
byggðinni. Höfundarnir vilja ekki
staðsetja það nánar en segja að þar
séu ýmsir karakterar og uppákomur
sem allir kannist við, sem komið hafi
á slíkar samkomur. Þar er auðvitað
húsvörður sem mikið mæðir á. For-
maður kvenfélagsins verður kyn-
ferðislega bremsulaus. Um dyra-
vörslu sér handrukkari á skilorði.
Landsþekktur sveiflukóngur
skemmtir tjúttþyrstum ballgestum.
Eins og ávallt gerist kemur hinn
dæmigerði fulli hestamaður á ballið.
Einum er hent út vegna slagsmála,
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Höfundar og bræðurnir úr Geirshlíð Jón Pétursson í hlutverki Guðmundar húsvarðar stendur með vasaklútinn á
milli Bjartmars Hannessonar og Hafsteins Þórissonar, þá Guðmundur Pétursson sem drukkni hestamaðurinn og
Pétur Pétursson sem leikur útkastarann í nýju leikverki eftir Bjartmar á Norður-Reykjum.
Bjartmar Hannesson og Hafsteinn Þórisson misstu af
bankahruninu og það sem verra var, jólunum, þegar
þeir voru að semja söngleik sem Reykdælir sýna í
Logalandi. Grunur leikur á að persónur í leiknum
eigi sér raunverulegar fyrirmyndir í sveitinni.
Í HNOTSKURN
»Töðugjaldadansleikurinn ersýndur í Logalandi. Frum-
sýnt var í gærkvöldi. Næsta sýn-
ing verður annað kvöld og fleiri
sýningar eru í næstu viku.
»Um þrjátíu manns koma aðuppfærslunni. „Við erum
með fína leikara, góða söngvara,
góða spilara og frábæra dans-
ara,“ segir textahöfundurinn.
Tjúttað á töðugjaldaballinu