Morgunblaðið - 29.03.2009, Page 8
8 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009
Nasistar í Svíþjóð hafa staðiðað fleiri morðum og tilræðum.
Fólk af öðrum kynþáttum en hvít-
um hefur verið myrt, blaðamaður
og ungur sonur hans slösuðust al-
varlega af völdum bílsprengju og
lögreglumenn hafa slasast. Lög-
reglan hefur lagt hald á fjölda
vopna í eigu nasista í Svíþjóð.
Hampus Hellekant var félagi íhreyfingu ungra nýnasista í
Svíþjóð, Nationell Ungdom. Sú
hreyfing hefur nú runnið saman
við nýnasistahreyfinguna Svenska
motstandsrörel-
sen.
Árið 2005 fékkHampus leyfi
úr fangelsinu.
Hann var staðinn
að því að fela reipi
og annan búnað á
sjúkrahúsi í því
skyni að auðvelda öðrum fanga að
flýja þaðan. Hann fékk samt
reynslulausn tæpum tveimur árum
síðar.
Við húsleit hjá Hampusi og fé-lögum hans eftir að Björn Sö-
derberg var myrtur fannst „dauða-
listi“ með um 1.300 nöfnum. Þar á
meðal voru Leila Freivalds, þáver-
andi dómsmálaráðherra, Gudrun
Schyman sem var formaður
Vinstriflokksins og leikarinn og
kommúnistinn Sven Wollter.
Í febrúar sl. kom í ljós að flestgögn í dómsmálinu vegna
morðsins á Birni Söderberg voru
horfin úr vörslu dómstólsins. Ein-
hver hafði skorið fjölda blaðsíðna
úr möppum. Sum skjalanna er
hægt að endurnýja, önnur eru að
eilífu glötuð. Ekki er upplýst hver
var að verki eða hvenær gögnin
hurfu.
Stiklur
Eftir Ragnhildi Sverrisdóttur
rsv@mbl.is
H
vað á einn fremsti
læknaskóli Svíþjóðar
að gera, þegar upp-
götvast að í röðum
nýnema er ungur
maður, sem hlaut dóm fyrir morð og
er nú á reynslulausn? Hvað þá þegar
morðinginn er þekktur nýnasisti,
sem myrti félaga í verkalýðsfélagi á
grimmilegan hátt og hefur lýst hatri
sínu á vinstri mönnum, samkyn-
hneigðum og fólki af öðrum kynþátt-
um?
Hjá Karolinska Institutet í Gauta-
borg veltu menn lengi vöngum, þeg-
ar í ljós kom í september 2007 að ný-
neminn Karl Svensson var í raun
nýnasistinn og dæmdi morðinginn
Hampus Hellekan. Menn skiptust í
tvær fylkingar: Sumir sögðu að mað-
urinn hefði tekið út refsingu sína og
ætti að eiga möguleika á að byggja
upp líf sitt að nýju. Aðrir sögðu af og
frá að maður, sem aðhylltist þær
skoðanir sem Hampus hafði hampað
áður fyrr, gæti stundað sjúklinga af
ýmsum kynþáttum, skoðunum og
kynhneigð.
Karolinska fann engin laga-
ákvæði, sem gætu meinað Hampusi
að stunda nám við skólann. Hins veg-
ar var bent á, að lögum samkvæmt
fengi hann ekki lækningaleyfi í Sví-
þjóð með þennan dóm á bakinu.
Karolinska bauð öðrum nemum
sálfræðihjálp vegna uppákomunnar
og þáðu það ýmsir. Um skeið virtist
sem Hampus gæti haldið námi sínu
áfram, en loks í janúar 2008 fundu
skriffinnar Karolinska lausn á þess-
um vanda. Þeir ráku augun í, að á
einkunnaspjaldi Hampusar úr fram-
haldsskóla árið 1995 stóð nafnið Karl
Helge Hampus Svensson. Það nafn
hafði Hampus Hellekant tekið sér
með löglegum hætti, en hins vegar
hafði hann ekki skipt um nafn fyrr en
löngu eftir að hann tók stúdents-
prófið og hafði verið dæmdur fyrir
morð. Einkunnaspjaldið var því,
strangt til tekið, falsað. Og í byrjun
síðasta árs varð nýneminn og nýnas-
istinn Hampus að hætta náminu.
11 ára dómur
Hampus Hellekant er af auðugu
fólki kominn og alinn upp í hverfinu
Danderyd rétt utan Stokkhólms, þar
sem hinir efnameiri búa. Hann er ný-
orðinn 33 ára, en var aðeins tvítugur
þegar hann myrti Björn Söderberg.
Söderberg var virkur í versl-
unarmannafélagi í Stokkhólmi og
hafði sér það til saka unnið að upp-
lýsa að maður að nafni Robert Ves-
terlund, sem hafði verið kjörinn í
stjórn einnar deildar verkalýðs-
félagsins, væri nýnasisti. Vesterlund
var vikið úr stjórninni og vinir hans í
hreyfingu nýnasista, þar á meðal
Hampus Hellekant, undirbjuggu
hefndir. Þeir fóru þrír saman að
heimili Söderbergs í október 1999 og
skutu hann margsinnis, þar á meðal í
höfuðið.
Hampus hlaut 11 ára dóm fyrir
morðið, en var látinn laus til reynslu
í febrúar 2007. Hann sótti strax um í
læknaskóla Karolinska. Námið er af-
ar eftirsótt, en hann fékk inngöngu.
Þrátt fyrir að draumur Hampusar
um nám við Karolinska væri úr sög-
unni í byrjun síðasta árs var hann
ekki af baki dottinn. Fyrir skömmu
kom í ljós að hann hafði fengið vist í
læknadeild elsta háskóla Svíþjóðar,
hinum virðulega Uppsalaháskóla.
Þar var hann skráður sem nýnemi á
vorönn 2009, einn af 100 sem komust
inn af 2.600 umsækjendum.
Aftur varð allt vitlaust og enn
ræða Svíar um hvort morðingjar geti
orðið læknar.
Fleiri mál hafa verið dregin fram í
dagsljósið, þar sem þykir orka tví-
mælis að menn fái að stunda lækna-
nám. Í apríl í fyrra var 24 ára lækna-
nemi í Lundi dæmdur fyrir að
nauðga 14 ára pilti. Í undirrétti var
hann dæmdur í tveggja ára fangelsi,
en sú refsing var bundin skilorði í
dómi efra dómstigs, auk þess sem
manninum var gert að leita sér lækn-
isaðstoðar.
Rektor Háskólans í Lundi reyndi
að reka manninn úr námi, en endur-
skoðunarnefnd slíkra mála sagði að
þótt maðurinn hefði framið alvar-
legan glæp teldist hann ekki ógn við
fólk eða umhverfi sitt. Þeirri ákvörð-
un var svo hnekkt af áfrýjunarnefnd,
sem heimilaði brottreksturinn. Og
læknaneminn var látinn fara.
Uppsalaháskóli segir að Hampus
Hellekant muni ekki fá að stunda
verklegt nám, sem er verulegur hluti
læknanáms og því vandséð hvernig
nemandinn ætti að geta lokið námi
sínu.
Málið er allt hið vandræðalegasta
fyrir Uppsalaháskóla. Þar hefðu
menn getað haft varann á sér og til
dæmis haft rænu á að spyrja um-
sækjandann hvar hann hafi alið
manninn þau 6½ ár, sem eyðu var að
finna í náms- og starfsferli hans, en
þeim varði hann að sjálfsögðu í fang-
elsi.
Aðrir læknanemar í Uppsalahá-
skóla eru mishrifnir af skólafélag-
anum. Sumir segja að vera hans þar
dragi mjög úr trausti á læknastétt-
inni í heild og uppnefna hann „dr.
Mengele“, en sá læknir gerði
grimmilegar tilraunir á börnum í
fangabúðum nasista í síðari heims-
styrjöldinni. Aðrir segja að fólk verði
að eiga möguleika á að greiða skuldir
sínar við samfélagið og byggja svo líf
sitt upp að nýju.
Hampus Hellekant, eða Karl
Helge Hampus Svensson, hefur ekki
veitt fjölmiðlum færi á sér.
Morðingi lærir til læknis
Þekktustu læknaskólar Svíþjóðar í vanda vegna náms nýnasista á reynslulausn
Aðrir læknanemar vilja hann ýmist burt, eða segja hann búinn að taka út refsingu sína
Nasistar Sænskir nýnasistar í göngu. Þegar þeir koma saman opinberlega
er það oftast ndir lögregluvernd af ótta við aðgerðir andstæðinga þeirra.
Þótt maður
geti stundað
læknanám
með dóm fyrir
morð á bakinu
fær hann ekki
lækningaleyfi í
Svíþjóð
Áður fyrr kváðu lög á um að menn
þyrftu að hafa óflekkað mannorð
til að verða háskólaborgarar. Núna
geta menn stundað nám við há-
skóla á Íslandi, þótt þeir hafi af-
plánað dóm fyrir afbrot.
Þórður Kristinsson, sviðsstjóri
kennslusviðs Háskóla Íslands, seg-
ir að brjóti nemendur af sér, á
meðan þeir eru í skólanum, geti
þeim verið vikið úr honum. Það
eigi jafnt við um brot á reglum
skólans og brot á almennum lög-
um. „Menn teljast saklausir uns
sekt þeirra er sönnuð, en séu þeir
dæmdir í sakamáli yrði staða
þeirra áreiðanlega skoðuð. Það er
hins vegar erfitt að fullyrða um
mál fyrirfram.“
Þórður bendir á, að Háskólinn
veiti faglega menntun heilbrigð-
isstarfsmanna. Nemendur þurfi að
lúta reglum skólans og sjúkra-
húsa, starfi þeir þar. Að námi
loknu sé það embætti landlæknis
sem veiti lækningaleyfi.
Birna Sigurbjörnsdóttir, lög-
fræðingur landlæknisembætt-
isins, segir vandséð hvernig ætti
að taka á máli manns eins og Ham-
pusar Hellekants hér á landi. Hún
vísar til ákvæða í læknalögum um
skilyrði þess að menn fái lækn-
ingaleyfi. Þar er vísað til að menn
fái ekki leyfi, hafi þeir verið sviptir
því með dómi, en hún setur þann
fyrirvara á, að aldrei hafi reynt á
beitingu greinarinnar.
Nýútskrifaður læknir, sem ósk-
aði leyfis í fyrsta sinn, félli ef til
vill undir ákvæði um að hann megi
ekki hafa kynnt sig að almennu
hirðuleysi. Skoðanir, sem almennt
þyki vafasamar, á borð við skoð-
anir nýnasista, gætu komið í veg
fyrir að menn fengju leyfi. „Þetta
er ekki einfalt mál afgreiðslu, enda
ríkir hér skoðanafrelsi og atvinnu-
frelsi. Menn geta fengið leyfið á
ný, hafi landlæknir svipt þá, en ég
þekki ekki fordæmi þess að menn
fái leyfi, hafi það verið dæmt af
þeim í sakamáli. Það hefur einfald-
lega ekki reynt á þetta hér.“
Ekki reynt á mál af þessu tagi hér