Morgunblaðið - 29.03.2009, Side 20

Morgunblaðið - 29.03.2009, Side 20
20 Tíska MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009 Námsaðstoð í páskafríinu réttindakennarar • flestar greinar • öll skólastig Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17-19 virka daga • Álfabakka 12 Nemendaþjónustan sf. Sími 557 9233 • www.namsadstod.is Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is D anski frumkvöðullinn Peter Ingwersen, að- alhönnuður og fram- kvæmdastjóri danska tískumerkisins Noir, hefur heillað tískuheiminn upp úr háu hælaskónum með fyrirætlunum sínum um að gera samfélagsábyrgð stórfyrirtækja kynþokkafulla. Föt hans eru töff, rokkuð, tvímælalaust kynþokkafull en líka framleidd úr lífrænum efnum á siðrænan hátt. Ingwersen hélt stórskemmtilegan fyrirlestur á Norræna tískutvíær- ingnum fyrir tilstilli Fatahönn- unarfélags Íslands en fyrirlesturinn var ennfremur hluti af Hönn- unarMarsi, hönnunardögum í Reykjavík. Hann ræddi þar hvernig ætti að byggja upp vörumerki en hann hefur töluverða reynslu af því. Hann fékk vinnu hjá Levi’s eftir að hafa verið lærlingur hjá gallabuxna- fyrirtækinu og var þar í 13 ár, síðast í stöðu vörumerkjastjóra. Hann sneri aftur til heimalandsins sem framkvæmdastjóri tískuhússins DAY Birger et Mikkelsen þar sem hann var í nokkur ár áður en hann stofnaði eigið fyrirtæki. Nokkur undirbúningur var að stofnun Noir og segir Ingwersen að hann hafi mikið velt fyrir sér til- gangnum. Hann gerði sér grein fyrir því frá upphafi vegna reynslu sinnar hjá Levi’s að það er ekki það sama að byggja upp vörumerki og að byggja upp fyrirtæki. Tíðarandi umfram tísku Hann vildi að nýja fyrirtækið end- urspeglaði ákveðin gildi, sem hann stæði fyrir og líka tíðarandann. Hann tók eftir því að loftslagsbreyt- ingar voru ofarlega í huga fólks, hann sá að umhverfisvernd var ekki bara tískubóla heldur stærri bylgja komin til að vera. Hann hafði jafn- framt tekið eftir því að í eigin tísku- meðvitaða vinahópi var ekki lengur nóg að ganga í réttu tískumerkj- unum heldur þurfti líka að vera sam- félagslega ábyrgur. Hann ákvað að sameina þetta tvennt í einum pakka. Áherslan er á tísku sem er ekki bara á yfirborðinu. Föt snúast ekki aðeins um að vernda gegn vondum veðrum heldur hjálpa þau fólki að sýna sinn innri mann og persónu- leika. Noir höfðar bæði til tísku- og samfélagsvitundar neytandans, neyslan þarf að hafa einhverja merkingu. Þegar Ingwersen fór að leita að lífrænum efnum með sjálfbærni að leiðarljósi til að nota í tískulínu sína rakst hann á vegg. Hann heimsótti stóra efnamarkaði á Ítalíu og þar vissi enginn hvað hann var að tala um. Eftirspurnin var þá ekki til stað- ar. Þau lífrænu efni sem til voru uppfylltu ekki kröfur Noir og það þurfti mikið að meðhöndla þau svo Ingwersen og samstarfsfólk yrðu sátt. Fötin frá Noir eru nefnilega langan veg frá jarðarlitum hampd- rögtum og hippamussum. Ingwer- sen orðaði það svo að efnin hefðu verið svo þykk og gróf að það hefði frekar verið hægt að reykja þau! Framleiðir lífræna bómull Þetta leiddi til þess að Noir réðst í lífræna framleiðslu á eigin bómull í Afríku. Ingwersen sendi bréf til tólf ríkja í Afríku sunnan Sahara en fékk svar frá einu og úr varð að fram- leiðsla var hafin í Úganda. Til þessa stofnaði Ingwersen annað fyrirtæki, Illuminati II, sem í framtíðinni getur einnig selt textíl til fleiri fyrirtækja. Nokkuð langan tíma hefur tekið að koma framleiðslunni af stað og eftir mikla byrjunarörðugleika verður líf- ræn bómull frá Illuminati II notuð í næstu vor- og sumarlínu Noir. Noir var formlega stofnað 1. febr- úar 2006. Aðeins hálfum mánuði síð- ar var Ingwersen búinn að fá við- brögð víða úr tískuheiminum, margir áhrifamikir einstaklingar voru tilbúnir að hjálpa og styðja við þessa hugmynd. Fötin voru ekki enn tilbúin en ljóst var að hann hefði hitt naglann á höfuðið og tekist að fanga tíðarandann. Fyrsta árið veitti hann þúsund viðtöl, og ekki mikið minna árið á eftir. Hann segist hafa verið ánægður með fötin en greinilegt sé að þarna hafi eitthvað stærra verið á ferðinni en „bara tíska“. Tískuheim- urinn tók Noir fagnandi. Ingwersen hefur sannað að hægt er að blanda saman lúxus og ábyrgum aðferðum við framleiðslu tískufatnaðar. Að fyr- irlestrinum loknum gafst blaðinu tæki- færi til að ræða við Ingwersen um framtíðarsýn hans. Hvernig spáir hann að þróunin verði? Siðareglur og siðræn neysla „Það sem ég hef séð svart á hvítu eru nýjar rannsóknir frá Danmörku og Bretlandi sem sýna að sala á lífrænum vörum hefur aukist, þrátt fyrir þrengingar. Það er vegna þess að fólk vill frekar halda virðingunni og sálarheill þegar annað er á niðurleið. Þetta virðist líka vera vegna þess að börnin á heimilinu ýta undir bæði siðræna og lífræna neyslu því þau hafa verið alin upp á þann hátt. Þetta eru helstu niðurstöður þessara rannsókna,“ útskýrir hann. Fyrir tíu árum voru mun- aðarvörur og sjálfbærni engan veg- inn samhæfanleg hugtök en Ingwer- sen segir það breytt. „Franska stórfyrirtækið LVMH hefur sett sér kröftugar siðareglur og ítalski risinn PPR er að byrja á sömu braut. Ég tel að á næstu fimm til tíu árum verði þetta reglan og fyrirtæki sem setji sér ekki slík viðmið verði á leið út. Að sama skapi munu ný fyrirtæki telja það sjálfsagðan hlut að hlíta slíkum siðareglum.“ Meðfylgjandi myndir eru frá haust- og vetrartískusýningu Noir fyrir veturinn 2009-10. Hérlendis má nálgast vörur frá Noir í verslun IQ við Skólavörðustíg og hægt er að kynna sér merkið nánar á vefnum noir.dk. Peter Ingwersen einsetti sér að gera samfélagsábyrgð stórfyrirtækja kynþokkafulla. Hann sameinar hið siðræna og stællega í fatalínu sinni sem hann kallar Noir. Ingwer- sen heimsótti landið og kynnti hvernig hann byggði upp þetta vaxandi vörumerki. Gala Flott fyrir þá sem þora að vera öðruvísi á rauða dreglinum. Gegnsætt Svart getur verið mjög kynþokkafullt. Fágað Háu hanskarnir setja glæsilegan svip. Rokkað Topp- urinn er fal- lega tekinn saman. Kynþokkafull samfélagsábyrgð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.