Morgunblaðið - 29.03.2009, Blaðsíða 30
30 Átök á Austurvelli
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009
B
ragi Guðnason skipasmiður var einn af
mótmælendunum á Austurvelli fyrir
60 árum. Hann vann allan sinn starfs-
aldur hjá Slippfélaginu niðri við höfn-
ina og hafði unnið þar í tæpt ár þegar
dagur mótmælanna rann upp. „Ég man það var
unnið að viðgerðum á skipi sem stóð á görðunum
næst Ægisgötunni,“ segir hann.
„Á þeim tíma voru menn klukkutíma í mat og
ég fór venjulega á reiðhjóli inn á Kirkjuteig, þar
sem ég átti heima hjá foreldrum mínum. Svo heyri
ég yfir hádegisverðinum tilmæli frá ráðamönnum
í útvarpinu, þar sem fólk var beðið að mæta á
Austurvöll, og sjá til þess að Alþingi fengi vinnu-
frið. Þegar ég mætti aftur í vinnuna fóru menn að
tala um hvort við ættum ekki að fara niður á
Austurvöll og þangað hélt allur skarinn.“
Brutu niður rimla
Fyrst fór hópurinn á fund við barnaskólann í
Lækjargötu og svo á Austurvöll. „Ég stóð á milli
styttunnar og Alþingishússins. Ég man að það
kom grár jeppi með hátalara. Svo stóð þarna hóp-
ur af fólki og þetta var nokkurskonar gamlárs-
kvöld hjá mörgum strákum,“ segir Bragi bros-
andi.
„Það var yfirleitt þannig á gamlárskvöld að
menn fóru niður í miðbæ til að sprella, mig minnir
að það hafi verið sami hópurinn sem hafði sig mest
í frammi og kastaði grjótinu. Það lá hraungrjót
meðfram stígnum að styttu Jóns Sigurðssonar.
Svo man ég að trérimlar voru við vesturhliðina á
Alþingishúsinu, í girðingunni við stíginn inn að
listamannaskálaanddyrinu. Ég sá stráka brjóta
niður þessa rimla til að hafa þá sér til halds og
trausts fyrir framan þinghúsið.
Svo horfði ég á mótmælin, það var öskrað eins
og gerist og gengur. Ég fylgdist með hópi manna
ganga út úr Alþingishúsinu, þeir kölluðu þá hvít-
liða. Ég vann með manni um tíma, sem var á með-
al þeirra, og hann sagði að það hefði borið að með
þeim hætti að hann hefði hitt mann á götu sem
hefði boðið honum með í þinghúsið. Ég held það
hafi nú verið grín hjá honum. Það vissu flestir
hver tilgangurinn var. Svo fór þetta nú eins og það
fór, einhverjir fóru að henda grjóti í gluggana og
allt í einu kom lögreglan út með táragasið. Enginn
vissi hvað var um að vera, fólk hafði aldrei séð
táragas. Og það hlupu allir eins og fætur toguðu í
áttina að Pósthússtræti og Austurstræti – það var
nú ekki annað.“
– Varðst þú fyrir táragasi? „Já, það slapp eng-
inn við það, en ég varð ekki eins illa úti og margir,
sem fengu svakalega í augun.“
Óskaplegur pirringur
– Varstu ósáttur við aðgerðirnar?
„Hjá yfirvöldunum? Ég held að enginn hafi bú-
ist við því að beitt yrði táragasi, en það var óskap-
legur pirringur í stjórnvöldum og yfirmönnum og
öllu heila batteríinu. Það hafði verið voðalegt rifr-
ildi í blöðunum um undirskriftina út af Atlants-
hafsbandalaginu. Það var því margt fólk fyrir á
Austurvelli og svo bættist við fólkið af fundinum í
L
h
m
b
þ
í
Vildi að Ísla
F
Múgur manns safnaðist fyrir utan Alþingishúsið þegar tillaga
lokum kom til bardaga milli lögreglu og borgara. Á morgun er
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
S
igurður Líndal var í fjórða bekk í MR
þegar mótmælin brutust út á Aust-
urvelli fyrir 60 árum. „Ég var á átj-
ánda ári, ákaflega pólitískur og hat-
rammur andstæðingur kommúnista,“
segir Sigurður. „Ég tók þátt í málfundum og
talaði nánast á hverjum einasta fundi. Ég sank-
aði að mér bókum, fór á fundi hjá Æskulýðs-
hreyfingunni og jafnvel á námskeið hjá Sjálf-
stæðisflokknum! Ég fylgdist vel með öllu,
fundirnir voru harðir og gríðarleg æsingaskrif í
Þjóðviljanum, jafnvel látið liggja að því að inn-
ganga í Atlantshafsbandalagið yrði hindruð
með ofbeldi.
Þá var það sem blöð lýðræðisins, Morgun-
blaðið, Vísir og Tíminn, létu að því að liggja að
það væri allt að því líklegt að störf þingsins
yrðu hindruð með ofbeldi. Því var neitað
vinstra megin, en auðvitað voru æsingamenn
innan um, líka meðal sjálfstæðismanna. Ég
held að forystumenn hvorra tveggja hafi viljað
forðast átök.“
Í aðdraganda inngöngunnar fréttist af lið-
safnaði í Sjálfstæðishúsinu. „Mér skilst á því
sem skrifað hefur verið síðar, að undirbúningur
hafi byrjað í febrúar. Lykilmenn áttu að draga
að sér fylgismenn, hver átti að hringja í tvo,
sem áttu aftur að hringja í tvo. Ég man ekki til
að ég hafi verið til kvaddur, ég fór bara af
sjálfum mér. En hvernig sem því líður, þá var
ég kominn á vettvang 29. mars, þegar málið
var tekið fyrir og ólætin byrjuðu. Ég var í
Sjálfstæðishúsinu og um kvöldið gerðist það, að
húsið var grýtt og grjótið flaug langt inn í litla
salinn. Svo fór að ákveðið var að við færum út,
við vorum mörg, gengum arm í arm og ýttum
mótmælendum frá. Og það voru engin slags-
mál. Ég man eftir einum manni, sem öskraði
og var ógurlega reiður, vildi komast inn fyrir.
Við hleyptum honum bara í gegn og hann stóð
eins og illa gerður hlutur fyrir aftan keðjuna
og vissi ekkert hvað hann átti af sér að gera.“
Grjót, egg, drasl og torf
Daginn eftir var skólahald meira og minna í
upplausn. „Við fórum eftir löngu frímínútur,“
segir Sigurður. „Pálmi Hannesson vildi hafa
aga í skólanum, en sá að ekkert þýddi að
streitast á móti þessu. Ég man að fylking lög-
reglumanna með kylfur raðaði sér fyrir utan
alþingishúsið. Svo fóru menn inn í Sjálfstæð-
ishúsið, annars vegar hvítliðar og hins vegar
Við fórum efti
Lesa má um mótmælin á Austurvelli í
Dagbók lögreglunnar í Reykjavík árið
1949, sem geymd er á Borgarskjala-
safninu. Það er fróðleg lesning og
birtast hér kaflar úr henni, en ekki
er leyfilegt að birta nöfn þeirra sem
í hlut eiga.
29. mars
Drengir safna rusli úr öskutunnum
Kl. 22.15 var óskað eftir aðstoð lög-
reglunnar vegna unglingsdrengja er
væru að safna rusli úr öskutunnum í
Shellportinu. Lögregluþjónar fóru að
sinna þessu, en er þeir komu á staðinn
voru drengir þessir horfnir með feng
sinn inn í mannþröng þá er var fyrir ut-
an Alþingishúsið.
Skýrsla
Lögregluþjónn gefur skýrslu um
grun um rúðubrot í Alþingishúsinu er
meint var að X á Seltjarnarnesi væri
valdur að.
30. mars
Engir af verði
Kl. 13 fóru engir af verði og af lög-
regluþjónum þeim, sem mættu í morg-
un af vöktum, vegna funda á Alþingi
varðandi þátttöku Íslands í Atlantshafs-
bandalaginu.
Austurvöllur
Kl. 13.15 var tilkynnt að krakkar
væru komnir upp á fótstall styttu Jóns
Sigurðssonar á Austurvelli. Lög-
regluþjónn rak krakka þessa niður.
Baðhúsið
Kl. 14.30 var tilkynnt frá Baðhúsinu
að krakkar væru farnir að rífa niður
trégirðingar þar og mundi eiga að nota
það í barefli. Lögregluþjónar fóru á
staðinn. Var búið að rífa þarna all-
marga rimla og náðu þeir talsverðu af
unglingsstrákunum.
Meiðsli
Klukkan um 14.40-45 komu þrír
menn á stöðina er hlotið höfðu meiðsli á
höfði. Einn hafði fengið stein í höfuðið
og tveir sögðust hafa verið barðir með
kylfu. Gert var að meiðslum tveggja á
stöðinni en einn var fluttur á Landspít-
alann. Hafði hann töluverðan skurð á
höfði, er sauma þurfti saman.
Beiðni um lækni í Alþingishúsið
Kl. 15.50 hringdi dómsmálaráðherra
Bjarni Benediktsson og bað lögregluna
að senda lækni í Alþingishúsið vegna
særðra manna. Náð var í Ólaf Þor-
steinsson lækni og fór hann þangað.
Óeirðir og skrílslæti
Kl. um 15.00 eða liðlega það hófust
alvarlegar óspektir og skrílslæti framan
við Alþingishúsið og þar í grennd, en
þar hafði safnast saman mikill fjöldi
fólks.
Varð lögreglan að beita kylfum og
táragasi til að dreifa mannfjöldanum og
var búið að hreinsa til að mestu eftir
um það bil klukkustund.
Miklu grjóti var kastað á þinghúsið
og margar rúður brotnar og einnig var
mold og eggjum kastað.
Nokkrir lögregluþjónar meiddust í
átökum þessum, en hvað mikið eða
margir af þeim, sem lögreglan átti í
höggi við og aðrir hafa meiðst er ekki
vitað að sinni.
Um einstök atriði í átökum þessum
er stöðvarmanni ekki svo kunnugt að
mega verði um þetta sagt í bili.
Bomba lendir inn í bifreið
Kl. 16.50 hringdi á stöðina X starfs-
maður hjá Sjóvátryggingarfélaginu og
tilkynnti að þegar verið var að kasta
gasbombunum hefði ein lent inn í bif-
reið sína, sem stóð í Tryggvagötu. Eitt-
hvað hafði brunnið í framsæti bifreið-
arinnar. Lögregluþjónar komu á
staðinn.
Óknytti, fangelsun
Lögregluþjónn gefur skýrslu um
óknytti, grjótkast og fangelsun X er
settur var í klefa nr. 2.
Óknytti, fangelsun
Lögregluþjónn gefur skýrslu um
grjótkast og óknytti og fangelsun X er
settur var í klefa númer 4.
Meiðsli og skýrsla
Lögregluþjónn gefur skýrslu varð-
andi meiðsli á höfði, er hann hlaut í
óeirðum þeim, er urðu við þinghúsið í
dag, ennfremur um meiðsli er gamall
maður hlaut á sama stað og skipti.
Reiðhjóli fleygt á glugga
á þinghúsinu
Kl. um 16.30 kom á stöðina X og til-
kynnti að hann hefði séð mann koma út
úr bifreið við Alþingishúsið og kasta
reiðhjóli þar á einn gluggann. Gerðar
voru ráðstafanir til að leita að bifreið
þessari en bar ekki árangur strax. Bif-
reiðarstjóri náðist seinna.
Skýrsla, rúðubrot o.fl.
Lögregluþjónn gefur skýrslu varð-
andi atburð þann er maður kom út úr
bifreið og kastaði reiðhjóli í einn glugga
þinghússins.
Um kl. 19.40 var komið með bifreiða-
stjórann á umræddri bifreið á stöðina.
Skýrði hann þar frá að farþegi í bif-
reið sinni hefði kastað hjólinu á
gluggann, en kvaðst ekki þekkja mann
þennan.
Fulltrúi lögreglustjórans mun taka
biðreiðarstjórann til frekari yfirheyrslu.
Meiðsli á lögregluþjónum
Eftirtaldir lögreglumenn munu hafa
meiðst í átökunum í dag: X frá rann-
sóknarlögreglu fékk stein í höfuðið og
mun hafa meiðst mikið, e.t.v. brotnað
höfuðkúpa. Y mun sennilega hafa
kjálkabrotnað. Z hefur meiðst allmikið
á mjöðm og V fékk stóran skurð á höf-
uð.
Grjótkast á Alþingihúsið
Lögregluþjónn gefur skýrslu um
grjótkast á glugga Alþingishússins, er
vera mundi af völdum X.
Breski sendiherrabústaðurinn
Kl. 23.00 var hringt frá Höfða, bústað
breska sendiherrans, og tilkynnt að
skothríð heyrðist þar í grennd. Lög-
regluþjónar fóru á staðinn og komust
að raun um að þetta stafaði frá við-
gerðastöð strætisvagnanna á Kirkju-
sandi – sprengingar í aflvélum.
Óspektir og skemmdarverk
Kl. um 22.30 söfnuðust óróaseggir
saman í miðbænum og reyndu að koma
af stað uppþoti og frömdu skemmd-
arverk, brutu rúður á lögreglustöðinni
og víðar, köstuðu dínamitsprengjum
o.fl.
Lögreglan dreifði fólkinu með tára-
gasi og handtók nokkra óróaseggi. Stóð
þessi viðureign lögreglumanna við skríl-
inn fram undir kl. 01.
31. mars
Skýrsla. Óeirðir og árás
Lögregluþjónnn gefur skýrslu um X.
Hann var með óspektir við Alþing-
ishúsið í gærdag og réðist á lög-
regluþjóninn er skýrsluna gefur.
2. apríl
Skýrsla
Lögregluþjónn gefur skýrslu um
óspektir og grjótkast X, sem átti sér
stað við Alþingishúsið.
Skýrsla
Lögregluþjónn gefur skýrslu varð-
andi sölu á gasgrímum í versluninni
Kaup og sala á Bergstaðastíg 1.
Skýrsla
Lögregluþjónn gefur skýrslu varð-
andi bifreiðina sem notuð var sem
bækistöð fyrir hátalara er gefnar voru
æsandi tilkynningar í til fólks er safn-
ast hafði saman fyrir framan Alþing-
ishúsið við Austurvöll.
Reiðhjóli kastað
í þinghúsið