Morgunblaðið - 29.03.2009, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 29.03.2009, Qupperneq 45
Minningar 45 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009 Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, LILJU MARGRÉTAR KARLESDÓTTUR, Fjallalind 10, Kópavogi. Aðalgeir G. Finnsson, Erla Hrönn Aðalgeirsdóttir, Stefán Héðinn Stefánsson, Arnar Aðalgeirsson, Sigríður Gísladóttir, Freyr Aðalgeirsson, Pálína S. Sigurðardóttir og barnabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, LÁRUSAR EGGERTSSONAR, Hlíðargerði 26, Reykjavík. Einara Þyri Einarsdóttir, Eggert Lárusson, Guðrún Sigurgeirsdóttir, Einar Þór Lárusson, Hrönn Kristjánsdóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR SIGURJÓNS FINNSSONAR, Huldugili 9, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Hornbrekku, Ólafsfirði. Lilja Sigríður Guðmundsdóttir, Baldur Snævarr Tómasson, Steinunn Oddný Guðmundsdóttir, Björgvin Sveinn Jónsson, Guðmundur Finnur Guðmundsson, Rósa Jennadóttir, Kristín Björk Guðmundsdóttir, Guðmundur Jóhannesson, Jón Birgir Guðmundsson, Þórunn Guðlaugsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þegar ég minnist ömmu minnar er það ávallt með bros á vör. Hún amma var al- gjört hörkutól. Hún tók ekki í mál ef einhver ætlaði að koma sér und- an því að fá sér að borða hjá henni, hefði hún boðið það. Ég man vel eftir því þegar mig langaði voðalega lítið í kökur með kaffinu eftir að hafa fengið læri í hádeginu. Ég held að hún amma hafi komið þrisv- ar sinnum til mín til að athuga hvort ég ætlaði ekki örugglega að fá mér og ég afþakkaði alltaf pent. En þegar hún kom í fjórða skiptið sá ég að ég varð að láta undan. Ég minnist þess heldur ekki að hafa verið svöng þá daga sem ég eyddi hjá ömmu og afa. Amma undi sér best við eldhús- borðið í Skuld. Það var sífelldur gestagangur hjá henni, sem gefur það eitt til kynna að það var sér- staklega skemmtilegt að umgangast hana og hlusta á það sem hún hafði að segja, því hún átti það til að vera ansi hreinskilin og segja skemmti- lega frá. Það eru ekki allir svo heppnir að ná því að verða 93 ára eins og amma. En ekki má gleyma því að í fjölmörg ár gekk hún niður að sjó á hverjum einasta morgni og ekki er langt síðan hún hætti því og er það án efa ein af ástæðunum fyrir því að hún náði svo háum aldri. Einnig var hún mjög lipur miðað við aldur. Hún þaut t.d. upp og niður bröttu tröppurnar ofan í kjallara eins og ekkert væri. Ég minnist þess einnig að þegar ég var unglingur sveiflaði ég fótunum fram og til baka þar sem ég stóð inni í eldhúsi, þá sagði amma: „Heldurðu að ég geti þetta ekki?“ Síðan stóð hún upp, lagði stafinn frá sér, greip í borðbríkina og sveiflaði hægri fæti langt upp í loftið og settist svo niður hlæjandi, þannig átti hún það til að koma manni á óvart. Hún amma er því ein af þeim manneskjum sem sögur eiga eftir að fara af um aldur og ævi. Hún var engin venjuleg amma. Hún gerði allt sem venjulegar ömmur gera, bakaði kökur og gaf okkur sælgæti fyrir að fara í kaup- félagið, svo ekki sé minnst á allan fjöldann af vettlingum og ullarsokk- um sem streymdu til okkar frá henni. En hún var alls ekki væmin, lá ekki á skoðunum sínum og var ekki að skafa af hlutunum eða tala undir rós. En það sem ég minnist mest er hversu gjafmild, gestrisin og dug- leg kona hún var. Hún átti alltaf nóg af flatkökum og kleinum í frystinum til að bjóða gestum og gangandi og átti það til að vakna eldsnemma á morgnana til að baka. Hún hugsaði ávallt fyrst og fremst um aðra en sjálfa sig og að öllum sem til hennar kæmu liði vel. Og þannig var það. Þegar ég var hjá ömmu í Vík var ég alltaf södd og sæl, fékk yndislega góðan mat og gat verið áhyggjulaus og haft það gott. Þannig veit ég að hún amma hefur það núna, er södd, sæl og áhyggjulaus, enda á hún það full- komlega skilið. Hildur Sunna Pálmadóttir. Ég minnist ömmu minnar fyrst og fremst sem skemmtilegrar konu. Amma í Vík sat sjaldnast auðum höndum. Oft gekk mikið á þegar hún hafði ákveðin verk að vinna en hún átti jafnframt sínar mýkri hlið- ar. Amma hafði sínar skoðanir á hlutunum en flíkaði þeim ekki að óþörfu. Ef hún var innt eftir áliti stóð þó sjaldnast á svari. Tilsvör Guðbjörg Jónsdóttir ✝ Guðbjörg Jóns-dóttir fæddist á Herjólfsstöðum í Álftaveri 9. desember 1915. Hún andaðist á Dvalarheimilinu Hjal- latúni 16. mars 2009. Útför Guðbjargar fór fram frá Vík- urkirkju 28. mars sl. hennar voru hnyttin og einlæg og fengu mann oft til að brosa út í annað eða skelli- hlæja. Það var fastur liður á hverju sumri að heimsækja ömmu og afa í Vík og alltaf mikið tilhlökkunar- efni. Ganga á Reyn- isfjall og fjöruferð voru ómissandi þáttur í hverri heimsókn. Í Víkinni lærði ég að meta hina miklu nátt- úrufegurð sem blasir við hvert sem litið er og þau ólíku náttúruöfl sem þar takast á. Ég velti því oft fyrir mér hvað skiltið sem geymt var í anddyrinu í Skuld þýddi í raun og veru. Á því stóð: Húsið hefur verið yfirgefið. Ég lærði um þá hættu sem stafaði af mögulegu Kötlugosi og fannst þetta allt í senn heillandi en jafnframt áhyggjuefni. Ég furð- aði mig á því hvað amma og afi virtust róleg yfir þessu öllu saman. Amma var þriggja ára þegar Katla gaus síðast og kippti sér sjaldnast upp við spár um yfirvofandi eldgos. Mér fannst skemmtileg sagan af því þegar Víkurbúar tóku þátt í æf- ingu vegna mögulegs eldgoss fyrir nokkrum árum. Við fyrstu viðvörun skyldi yfirgefa húsið, hengja skiltið góða á útidyrnar og halda svo í öruggt skjól fyrir flóðum. Sérhver íbúi átti að gera vart við sig og bíða svo þar til hættuástandi yrði aflýst. Þegar björgunarsveitarmenn komu í Skuld var ekkert skilti á útidyr- unum og amma var eitthvað að að- hafast í eldhúsinu. Aðspurð hvers vegna hún hefði ekki tekið þátt í æfingunni svaraði hún því til sem rétt var að hún hefði gert allt eins og mælt var fyrir um en væri reyndar fyrir löngu komin til baka, því ekkert hefði þýtt að vera að hanga þarna upp frá yfir engu. Þetta fannst mér lýsa ömmu minni mjög vel. Hún gerði sjaldnast mikið veður út af hlutunum. Amma naut sín best í eldhúsinu við bakstur og aðra matargerð. Það var alltaf svo mikill kraftur í henni og gjarnan mikið bakað í einu. Það leið vart sá dagur að ekki kæmu nokkrir vinir og kunningjar við í kaffi og með því í Skuld. Heimsókn- unum fylgdu gjarnan líflegar um- ræður í eldhúsinu. Skemmtilegast fannst okkur systrunum að fylgjast með ömmu fara gegnum kústaskáp- inn niður þrönga stigaopið á leið í kjallarann. Stiginn var brattur en amma bakkaði niður á ógnarhraða að manni fannst. Hún birtist jafn- skjótt aftur á leið upp stigann með fangið fullt af bakkelsi úr frystikist- unni. Þetta gerði hún alla tíð, jafn- vel eftir að hún fór að ganga með staf. Það þótti okkur alveg ótrúlegt. Síðustu árin tók heilsunni að hraka eins og gerist og gengur. Amma hafði alltaf á orði að þó skrokkurinn væri ónýtur væri kollurinn sem bet- ur fer í nokkuð góðu lagi. Þar hafði hún svo sannarlega á réttu að standa. Hún var alltaf með á nót- unum og fylgdist betur með en maður hélt. Ég þakka ömmu góða samfylgd. Blessuð sé minning hennar. Jóhanna Guðrún Pálmadóttir. Netfang joagp@hotmail.com Hver var það sem bakaði þessa dýrindis lagtertu sem prýðir þetta glæsilega veisluborð? spurði maður sem var gestkomandi á skaftfellsku heimili hér á árum áður. „Það var nú hún ég, ef mig skyldi kalla,“ svaraði húsfreyjan í afsökunartón. Þessi saga af skaftfellsku húsfreyj- unni gæti vel átt við hana ömmu okkar í Vík sem nú er fallin frá. Hún hvílir nú í friði og er vel að hvíldinni komin á tíræðisaldri. Þær eru og verða ógleymanlegar heimsóknirnar til afa og ömmu í Vík þar sem tilefnin voru marg- vísleg og margt var brallað, en þó var alltaf einn miðpunktur sem allt snerist um en það var lífið í eldhús- inu frá morgni til kvölds. Af engu hafði amma meiri áhyggjur, og hafði hún nú áhyggjur af ýmsu, en því hvort við systkinin fengjum örugglega nóg að borða. Lagtertum í tvennum litbrigðum, kleinum, flat- kökum og jólakökum gat maður alltaf gengið að sem vísum og þess á milli var á boðstólum grjóna- grautur, lambalæri, hryggur og kjötsúpa eins og hver gat í sig látið. Á meðan á þessu stóð hafði hún ekki undan að afsaka veitingarnar og sagði oftar en ekki að þetta væri ábyggilega bölvaður óþverri en það mætti þó kannski nota þetta eitt- hvað. Á milli mála fylgdist hún með hverju fótmáli bæjarbúa og hverj- um þeim sem birtist henni fyrir sjónum út um eldhúsgluggann á Víkurbrautinni. Henni var ekkert óviðkomandi og átti það jafnt við um þorpslífið, heimsmálin og síðast en ekki síst hvað við barnabörnin vorum að fást við hverju sinni. Þorpsbúar og nærsveitafólk vöndu einnig komur sínar á Víkurbrautina og nutu þar gestrisni, félagsskapar og góðra veitinga. Amma var afar góðhjörtuð og bar mikla umhyggju fyrir sínum nánustu en var um leið mikið hörkutól bæði í orði og á borði. Tungutakið var oftar en ekki óhefl- að og langt fram eftir öllu virtist þverrandi þrek og lúin bein ekki setja henni stólinn fyrir dyrnar. Í því samhengi ber helst að nefna stigann, ef stiga skyldi kalla, sem gekk úr eldhúsinu niður í kjallara og hún hentist upp og niður oft á dag. Samverustundirnar í Víkinni eru eftirminnilegar, en við systkinin fengum þó að njóta samvista með ömmu og afa undir öðrum kring- umstæðum þegar þau heimsóttu okkur til Ameríku. Þar flökkuðu þau með okkur milli heimsborganna New York og Washington og afrek- uðu þá að fara upp í topp á Tvíbur- aturnunum sálugu og börðu Hvíta húsið augum. Það var ánægjulegt að njóta þessara stunda í stórborg- unum með þeim hjónum sem fóru helst ekki út fyrir sýslumörkin nema af illri nauðsyn. Elsku amma, við munum sakna þín sárt og geymum í hugum og hjörtum okkar yndislegar minning- ar um góðar stundir og einstaka konu sem á engan sinn líka. Um leið berum við höfuðið hátt og minnumst þín með gleði í hjarta, eins og þín væri von og vísa. Hvíl í friði, elsku amma. Kristín Björg, Helgi Ingólfur og Helga Rut. Í Víkinni hjá Rúti og Guðbjörgu vorum við sem og aðrir umvafin hlýju. Gilti það einu hvort tilefnið var að sníkja gistingu og komast á gott sveitaball eða seinna á ævinni lítið innlit áður en lagt var á svart- an sandinn. Þau áttu sitt hvort ríkið á sínu heimili. Hann á smíðaverk- stæðinu í kjallaranum, vann þar vinnu sína af rósemi og yfirvegun, völundur til allra verka. Það var yfirleitt meira fjör í kringum Guðbjörgu. Ríki hennar var eldhúsið, lyktin lifir í minning- unni, keimur af bakstri og sígar- ettum. Sagðar voru skemmtisögur, jafnframt því að húsmóðirin galdraði fram góðgerðir. Umhverfið allt var hennar. Guðbjörg og Rútur gátu verið stolt af sínu. Börnin þeirra og af- komendur allt mikið myndarfólk, ekki lítið ríkidæmi það. Rútur lést fyrir rúmum áratug. Guðbjörg hélt sinni reisn þrátt fyrir missinn. Bjó áfram í húsinu sínu, tók á móti gestum og gangandi og fór síðan í bæinn til dætranna meðan heilsan leyfði, oftar en ekki til veisluhalda. Kát og brosmild var hún umvafin elsku frá sínu fólki. Stansinn var yf- irleitt stuttur, hún vildi aftur kom- ast í Víkina sína! Þau heiðurshjón skilja eftir ljúfar minningar í hugum okkar, fyrir það erum við þakklát að leiðarlokum. Guðleif og Haraldur. Steinunn Ólína Sigurðardóttir ✝ Steinunn ÓlínaSigurðardóttir fæddist í Reykjavík 23. júlí 1912. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 15. mars 2009. Foreldrar hennar voru Þorbjörg Þórarinsdóttir, f. 15. júlí 1879, d. 15. nóvember 1926 og Sigurður Ólafsson, f. 2. júlí 1883, d. 2. mars 1921. Steinunn átti sex systkini, þau voru: Þuríður, f. 1907, d. 1998, Elísabet, f. 1909, dó sama ár, Karl, f. 1915, d. 2003, Ólafur, f. 1918, d. 2006, Þórarinn, f. 1919, d. 1988 og Sigurður Björgvin, f. 1921, d. 1964. Útför Steinunnar fór fram frá Foss- vogskapellu 23. mars, í kyrrþey. Meira: mbl.is/minningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.