Morgunblaðið - 29.03.2009, Page 51

Morgunblaðið - 29.03.2009, Page 51
Fjörkálfar New York-tríóið knáa Yeah Yeah Yeahs lagði gítarana til hliðar og greip til hljómborða á nýjustu skífunni sinni, It’s Blitz. U m tíma virtist sem önn- ur hver hljómsveit frá Bandaríkjunum væri frá New York – þar virtist gróskan vera og fjörið. Heldur hefur dregið úr því flóði, en enn eru margar eftirtekt- arverðar hljómsveitir starfandi þar í borg, til að mynda Yeah Yeah Yeahs. New York-sveitin Yeah Yeah Yeahs var meðal hljómsveita frá rokkborginni New York sem vöktu athygli fyrir nokkrum árum. Reynd- ar var það helst útlit, sviðsframkoma og klæðaburður söngkonunnar Kar- en O. sem vakti hvað mesta eftirtekt og svo mikla að menn gleymdu því stundum að Yeah Yeah Yeahs spilaði fína músík. Poppað pönk Karen Orzolek, eða bara Karen O., stofnaði Yeah Yeah Yeahs með þeim Brian Chase og Nicolas Zinner og stefnan var snemma tekin á poppað pönk. Fyrsta stuttskífan kom út haustið 2001, önnur slík haustið 2002 og svo kom loks breiðskífa í apríl 2003; Fever to Tell. Önnur plata, Show Your Bones, kom svo 2006 og nú fyrir stuttu platan It’s Blitz. Eins og getið er var Yeah Yeah Yeahs hluti af New York bylgjunni sem reis um síðustu aldamót og þó flestar hljómsveitanna sem ná nutu hylli hafi horfið sjónum manna þá lifir Yeah Yeah Yeahs og af It’s Blitz að dæma þá hefur hún enn sitthvað fram að færa. Tónlist sveitarinnar hefur breyst talsvert frá því fyrsta smáskíf- an kom út – gítarar hafa vikið að mestu fyrir tölvum og hljómborðum. Stuðið er þó það sama og forðum, ef eitthvað þá er fjörið meira á plöt- unni og undirliggjandi angist og ung- mennaspenna hefur vikið fyrir bein- skeyttri og ákveðinni keyrslu. Við það bætist svo meiri yfirvegum og inni- haldsríkari textar. Gestur á plötunni er sá frábæri söngvari Tunde Adebimpe úr TV on the Radio, en þess má og geta að upp- tökustjórn var í höndum hljómsveit- arfélaga hans David Sitek og Eng- lendingsins Nick Launay. Meira fjör! Heldur hefur dregið úr flóði hljómsveita frá New York en enn eru margar fínar sveitir starfandi þar í borg, til að mynda Yeah Yeah Yeahs, eins og heyrist á nýrri skífu hljómsveitarinnar: It’s Blitz. Menning 51FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009 Íslenski dansflokkurinn 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Transaquania - Out of the Blue (Bláa Lónið) Mið 22/4 kl. 21:00 aðeins ein sýn Hafnarfjarðarleikhúsið 555 2222 | theater@vortex.is Dubbeldusch (Hafnarfjarðarleikhúsið) Fös 3/4 kl. 20:00 síðustu sýn.ar Lau 18/4 kl. 20:00 síðustu sýn.ar Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is Stormar og styrjaldir - Sturlunga Einars Kárasonar (Söguloftið) Lau 18/4 kl. 20:00 Mán 20/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 16:00 Lau 9/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 16:00 Lau 23/5 kl. 20:00 Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið - sýningum lýkur í vor) Fös 3/4 kl. 20:00 U Lau 4/4 kl. 20:00 U Mið 8/4 kl. 20:00 U Lau 11/4 kl. 16:00 U Fös 17/4 kl. 20:00 Ö Sun 19/4 kl. 16:00 U Mið 22/4 kl. 20:00 Ö Lau 25/4 kl. 20:00 Fim 30/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00 Fim 7/5 kl. 20:00 U Fös 8/5 kl. 20:00 Fim 14/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Mið 20/5 kl. 20:00 Fös 22/5 kl. 20:00 næst síðasta sýn. Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið) Sun 29/3 110. sýn. kl. 16:00 Sun 5/4 kl. 16:00 Lau 18/4 kl. 16:00 Fös 24/4 kl. 20:00 Sun 26/4 kl. 16:00 Fös 1/5 kl. 20:00 Lau 9/5 kl. 16:00 Fös 15/5 kl. 20:00 Sun 24/5 kl. 16:00 U Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið Fréttir í tölvupósti Af frægum rokksveitum frá New York má nefna Kiss, Velvet Und- erground, Ramones, New York Dolls, Anthrax, Sonic Youth, Iggy and the Stooges, Televisi- on, Blondie og Talking Heads. Um það leyti sem Yeah Yeah Yeahs kom fram voru það Strokes, Rapture, LCD Sound- system, Interpol, Walkmen og Liars sem voru á allra vörum, en í dag eru það Vampire Weekend, Grizzly Bear, Yeasayer, Animal Collective, TV on the Radio og MGMT. New York-rokk TÓNLIST Á SUNNUDEGI Árni Matthíasson hefst á mánudag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.