Morgunblaðið - 29.03.2009, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 29.03.2009, Qupperneq 54
54 MenningTÓNLIST MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. MARS 2009 Sýning á Stóra sviði Borgarleikhússins sunnudaginn 29. mars kl. 15.00 og 22.45. Sýningin tekur rúmar 10 mínútur í flutningi. Aðgangur er ókeypis. Eftir sýningu er söfnun og rennur allt söfnunarfé óskipt til læknishjálpar á Gaza. Einnig er hægt að leggja inn á reikning: 0137-05-060043, kt. 190577-3769 ÁSTA SIGHVATS ÓLAFSDÓTTIR BERGUR ÞÓR INGÓLFSSON HARPA ARNARDÓTTIR ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR JÓHANNA JÓNAS ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR PÁLL SIGÞÓR PÁLSSON MARÍA ELLINGSEN SÓLVEIG ARNARSDÓTTIR SÓLVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR UNNUR ÖSP STEFÁNSDÓTTIR Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið í Galleríi Fold á Rauðarárstíg, virka daga 10–18, laugardaga kl. 11–16 og sunnudaga kl. 14–16 Listmunauppboð Næsta listmunauppboð Gallerís Foldar verður haldið 6. apríl Erum að taka á móti verkum Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu Af gefnu tilefni tökum við fram að við vitum ekki annað en að söluþóknun sé lægst hjá okkur. Ennfremur að við höfum aldrei selt fölsuð verk eða afhent falsaðar eigendasögur. Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is Síðustu tvö kvöld hafa hljómsveitir víða að att kappi samaní hljómsveitakeppni Músíktilrauna í Íslensku óperunni ogenn skal keppt; í kvöld glíma ellefu sveitir til viðbótar umtvö sæti í úrslitum. Áheyrendur kjósa eina sveit áfram eins og jafnan og dómnefnd velur líka eina. Í kvöld keppir önnur kvennasveit tilraunanna að þessu sinni, en sveitirnar koma víða að, þrjár úr Reykjavík og tvær úr Kópavogi og svo sveitir úr Hafnarfirði, Garðabæ, Skagafirði, af Akranesi, úr Árborg og Reykjanesbæ. Keppt er í Íslensku óperunni og hefst fjörið kl. 19 stundvíslega. Stelpur rokka Pönksveitin Pungsig Pönksveitin Pungsig pönkar fyr- ir hönd Skagamanna að þessu sinni. Liðsmenn hennar eru trommuleikarinn Baldur Þórð- arson, bassaleikarinn Kristján Gauti Karlsson, sem syngur líka, og gítarleikarinn Tómas Guð- mundsson. Þeir eru allir um tví- tugt. Reason to Believe Félagarnir í Reason to Believe eru úr Reykjanesbæ og spila jað- arrokk. Þeir heita Andri Már Þor- steinsson, sem spilar á trommur, Valgarður Thomas Davíðsson, sem spilar á bassa, Kristjón Freyr Guð- mundsson og Bjarki Már Viðarsson, sem spila báðir á gítara og syngja. Þeir eru allir átján ára nema Val- garður sem er tuttugu og eins árs. Spelgur Kópavogsdúettinn Spelgur spilar framúrstefnulegt austur-evrópskt rafpopp með rómantísku ívafi. Liðs- menn eru Stefanía Eysteinsdóttir trompetleikari og Katrín Helga Andrésdóttir gítarleikari, sem eru báðar sextán ára. Jackrabbitslim’s Úr Árborg kemur rokksveitin Jackrabbitslim’s sem er ríflega árs- gömul en treður þó upp á sviði í fyrsta sinn í kvöld. Sveitarmenn eru Arnar Freyr Guðmundsson trommuleikari, Jökull Baldursson bassaleikari, Kjartan Thor Ólafsson gítarleikari, Daníel Arnór Snorra- son gítarleikari og söngvari og Axel Arnþór Þrastarson söngvari. Þeir eru allir á sautjánda árinu. In Samsara Kvartettinn In Samsara er úr Reykjavík og spilar blöndu af rokki og metal. Liðsmenn eru Heimir Þór Kjartansson, sem spil- ar á bassa og rymur, Vignir Al- bert Hallgrímsson, sem spilar á gítar og syngur, Héðinn Sveinn Baldursson Briem, sem spilar á gítar og Ingvar Haraldsson, sem spilar á trommur. Þeir eru allir nítján ára nema Valgarður sem er tvítugur. Four of a Kind Liðsmenn Four of a Kind eru þeir Atli Björn Gústafsson trommuleikari, Bjarki Þór Loga- son gítarleikari og söngvari, Vikt- or Böðvarsson bassaleikari og söngvari og Magnús Gylfi Hilm- arsson bassaleikari. Þeir félagar eru á aldrinum 18 til 21 árs og segjast spila einhverskonar rokk. Frank-Fürth Skagfirðingarnir Grímur Rúnar Lárusson, söngvari, Alex Már Sig- urbjörnsson, bassaleikari, Hafsteinn Logi Sigurðarson, trommuleikari, Jón Þór Þorvaldsson, gítarleikari, og Reynir Snær Magnússon, gít- arleikari, spila saman undir nafninu Frank-Fürth. Þeir eru sextán til sautján ára gamlir. Wistaria Hafnfirska þungarokksveitin Wist- aria er ríflega ársgömul og hefur spil- að víða. Hana skipa Steinar Ólafsson sem syngur og öskrar, Sigurbjörn Gauti Rafnsson og Davíð Valdimar Valsson spila á gítara, Sindri Thorla- cius spilar á trommur og Arnar Ást- valdsson á bassa. Liðsmenn Wistaria eru allir á nítjánda árinu. Bróðir Svartúlfs Bræður Svartúlfs eru þeir Helgi Sæmundur Guðmundsson, sem leik- ur á hljómborð og syngur bakradd- ir, Jón Atli Magnússon sem spilar á bassa, Arnar Freyr Frostason, sem syngur og rappar, Andri Þorleifs- son, sem leikur á trommur, og Sig- fús Arnar Benediktsson sem leikur á gítar. Meðalaldur sveitarmanna er rúm tuttugu ár. þeir eru úr Skaga- firðinum og spila nýbylgjukenndan bræðing af rokki og rappi. Egill Orðljótur Egill Friðrik Ólafsson rappar undir nafninu Egill Orðljótur. Hann er sextán ára gamall Garðbæingur en þó uppalinn í Fossvoginum. Spiral Groove Spiral Groove skipa Hörður Arn- arson söngvari, Þórir Benedikt Björnsson gítarleikari, Magnús Snorri Bjarnason hljómborðsleik- ari, Kristján Oddur Guðmundsson bassaleikari og Arnar Freyr Að- alsteinsson trommuleikari. Hörður, Þórir Benedikt og Magnús Snorri eru átján ára en Kristján Oddur og Arnar Freyr eru sautján. Þeir eru reykvíkingar og spila blúsað rokk. Spiral Groove tók einnig þátt í síð- ustu tilraunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.