Morgunblaðið - 29.03.2009, Page 60

Morgunblaðið - 29.03.2009, Page 60
SUNNUDAGUR 29. MARS 88. DAGUR ÁRSINS 2009 Heitast 0°C | Kaldast -6 °C  Vaxandi NA og N átt, fyrst NV til með snjókomu fyrir norðan en éljum syðra. »10 SKOÐANIR» Staksteinar: Frjáls kornrækt Forystugreinar: Réttur þess sem ráðist er á | Uppskerutími lögreglu Reykjavíkurbréf: Endurreisn og Evrópumál Ljósvaki: Enginn vill hrækja … Öllum er tekið opnum örmum Séð í gegnum fegrunaraðgerðir Lífgað upp á básinn ATVINNA » TÓNLIST» Músíktilraunir: Það sem var og verður. »52,54 Heldur hefur dregið úr flóði framsæk- inna hljómsveita frá New York. Yeah Yeah Yeahs halda uppi merkinu. »51 TÓNLIST» Ennþá fjör í New York FÓLK» Macy lofar kynþokka eiginkonunnar. »55 FÓLK» Mamman gripin með úr og hundamat. »56 Ný plata Hildar I. Guðnadóttur hefur fengið glimrandi dóma erlendis. „Undraverð tónlist,“ segir Boomkat. »53 Bilið milli nótnanna TÓNLIST» reykjavíkreykjavík 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. „Þetta er rétt að byrja“ 2. Meint kynferðisbrot … rannsakað 3. Tekjuháir færa sig um set 4. Stórfelld kannabisræktun stöðvuð Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is EDWIN Roald Rögnvaldsson golf- vallahönnuður hefur lagt til að gerð- ur verði golfvöllur í Viðey með hand- afli og hestum. Völlurinn yrði óður til bestu golfvalla heims sem byggðir voru um og eftir aldamótin 1900 og Edwin er sannfærður um að hann myndi laða til landsins fjölda kylf- inga. „Ef rétt er að málum staðið gæti þetta verkefni vakið heims- athygli,“ segir hann. Hugmyndir um golfvöll í Viðey eru ekki nýjar af nálinni en ekki hef- ur í annan tíma verið lagt til að hann yrði gerður með þessum hætti. „Það er samdóma álit margra að þessar „takmarkanir“, þ.e. að geta ekki not- að stórvirkar vinnuvélar, hjálpuðu mönnum áður fyrr að hugsa sjálf- stætt – sníða hjá viðmiðum og „reglum“ sem gera lítið annað en að steypa alla golfvelli í sama mót. Þetta er líklega ein helsta skýringin á því að langflestir bestu golfvellir heims eru gerðir fyrir heimskrepp- una sem skall á 1929. Kannski er það nostalgía en munurinn á þessum eldri völlum og þeim sem nýrri eru felst að stórum hluta í smáatrið- unum, t.d. við flatir,“ segir Edwin. Ekki endilega átján holur Hann vill líka brjótast út úr níu eða átján holu forminu. „Ég tel að á 21. öldinni muni þessi þróun hvort sem er eiga sér stað. Sú rótgróna hugsun að fullvaxta golfvöllur þurfi að vera 18 holur, en ekki 15 eða 19 eða allt hvaðeina, hefur stundum al- varlega takmarkandi áhrif á þau gæði sem hugsanlega hefðu getað náðst. Ákveðið landsvæði gæti t.d. boðið upp á 17 heimsklassa golf- holur, en af því að völlurinn „varð“ að vera 18 holur, þá þurfti að henda einni þeirra út, eða jafnvel fleirum, og gera tvær síðri í staðinn. Í Viðey gæfi þetta okkur sveigjanleika til að tengja sem flest tilbúin golf- brautastæði frá náttúrunnar hendi, sneiða hjá varpsvæðum og vinna hugmyndina í sátt við samfélagið.“ Hugmynd Edwins er að hrófla sem allra minnst við landinu í eynni, t.d. mætti ganga út frá því að yrði golfvöllurinn einhvern tíma aflagð- ur, af einhverjum sökum, þá sæjust svo til engin ummerki um hann. Framkvæmdin yrði mannaflsfrek. Gerir hann ráð fyrir á annað hundr- að störfum í hálft ár hið minnsta. „Hugmyndin er fyrst og síðast til- komin til að skapa fólki atvinnu nú þegar mikið liggur við og hér erum við að tala um verkefni sem gæti vakið heimsathygli fyrir það einmitt að það yrði mannaflsfrekt. Við gæt- um slegið margar flugur – eða holur – í einu höggi,“ segir Edwin. Nánar um málið á videygolf.com. Golfvöllur með handafli í Viðey Morgunblaðið/RAX Atvinnusköpun „Hugmyndin er fyrst og síðast tilkomin til að skapa fólki atvinnu nú þegar mikið liggur við og hér erum við að tala um verkefni sem gæti vakið heimsathygli,“ segir Edwin Roald Rögnvaldsson golfvallahönnuður. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is LÖGREGLUMENN á Hvolsvelli bera mikinn kvíðboga fyrir því að sól- arhringsþjónusta sjúkraflutninga á Hvolsvelli verði aflögð. Með því muni öryggisstig innan Rangárvallasýslu minnka mikið. Sveinn K. Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli, hefur skrifað Ögmundi Jónassyni heilbrigð- isráðherra og lýst áhyggjum lög- reglumannanna af því að sjúkraflutn- ingum utan dagvinnu verði þjónað frá Selfossi. Sveinn bendir á að nærri 100 km eru frá Selfossi að Steinum undir Eyjafjöllum. „Að senda sjúkrabíl frá Selfossi austur undir Eyjafjöll, í Landeyjar, Fljótshlíð, Landmanna- laugar, Veiðivötn og Þórsmörk er augljóslega afar slæmur kostur, þar sem vegalengdir eru gríðarlegar og oft á tíðum mikil umferð. Ég tel ekki forsvaranlegt að bæta 50 km forgangsakstri inn í umferðina með tilheyrandi hættuástandi fyrir aðra vegfarendur,“ skrifar Sveinn. Hann bendir á að mikil náttúruvá sé yfirvofandi innan umdæmisins, t.d. vegna gosa í Kötlu, Eyjafjallajökli eða Heklu. Þá sé Bakkafjara, einn stærsti vinnustaður sýslunnar, í a.m.k. 80 km fjarlægð frá Selfossi. Þar starfi nú þegar 100 manns og eigi eftir að fjölga. „Ég tel að með þessari þjón- ustuskerðingu sé verið að veikja allar almannavarnaáætlanir, þar sem nátt- úruhamfarir og stórslys eru ekki stillt inn á að gerast á dagvinnutíma, en rétt er að benda á að náttúruhamfarir geta og hafa snert bæði Árnes- og Rangárvallasýslu á sama tíma.“ Hann telur líklegt að breytingin kalli á fleiri útköll þyrlu LHG til að sinna bráðum veikindum og slysum. Óttast skert öryggi verði stórslys eða náttúruvá Sjúkraflutningar frá Selfossi slæmur kostur, að mati lögreglu Í HNOTSKURN »Sjúkraflutningar í Árnes-og Rangárvallasýslu voru sameinaðir í lok febrúar og sjúkraflutningamönnum í hlutastarfi sagt upp. »Sjúkrabíll verður ekki tiltaks á Hvolsvelli utan dag- vinnutíma en þjóna á öllu svæðinu frá Selfossi. Þar verða tveir sjúkrabílar. BÚAST má við ófærð á norð- anverðu landinu í dag, sunnudag, vegna hvassviðris og ofankomu samkvæmt Veðurstofunni. Spáð er minnkandi frosti en brunakuldi var inn til landsins í fyrrinótt. Þannig mældist -19,8°C við Mývatn, -20,4°C á Reykjum í Fnjóskadal og -21,9°C í Svartárkoti í Bárðardal. Morgunblaðið/Ómar Frost Veturinn gefur ekkert eftir. Hörkufrost víða á Fróni Skoðanir fólksins ’Gagnrýni á gildandi uppgjörs-reglur skaðabótalaga hefur m.a.beinst að því að reglurnar komi illa útfyrir tiltekna hópa tjónþola, einkum þásem hafa ekki tekjusögu fyrir slys, svo sem börn og námsmenn. HELGA JÓNSDÓTTIR ’Hjá ríki og sveitarfélögum er hinsvegar kreppa eins og annars stað-ar og áhersla lögð á sparnað og nið-urskurð. Það hljómar ef til vill eins ogöfugmæli að tala um aukin fjárframlög til velferðarmála nú þegar ríkið er skuldsett og reksturinn í höndum AGS. ÞÓRHILDUR G. EGILSDÓTTIR ’Atvinnuleysi getur verið mjögkostnaðarsamt fyrir þjóðfélagiðtil lengri tíma litið. Eitt mikilvægastaatvinnuátakið er því að verja störf ávegum hins opinbera. Velferðarmál eru atvinnumál og atvinnumál eru vel- ferðarmál. HALLA GUNNARSDÓTTIR ’Frekari mótmæli gera engumgott, þau hafa ekkert jákvættfram að færa til lausnar. Það er kom-inn tími til þess að sérhags-munamenn, sem taka sig fram fyrir sameiginlegan þjóðarhag, verði ekki látnir ráða framvindu Lýðveldisins Ís- lands. ÞORSTEINN HÁKONARSON ’Fólk sem er að kaupa sína fyrstuíbúð, hefur stærstu vandamálinvegna verðtryggðra og gengistryggðralána en væntanlega væri fólk ekki aðfreistast til að taka gengistryggð lán ef ekki væri verðtrygginguna að varast hins vegar. HJÁLMAR MAGNÚSSON ’Persónuleg ráðgjöf við börn þarfað vera aðgengileg og trygg efgæta á öryggis þeirra og sinna barna-vernd. Skólarnir eru þeir staðir semhenta best til að bregðast við vá eins og þeirri sem við stöndum öll frammi fyrir fjárhagslega – og sálarlega. GUÐRÚN H. SEDERHOLM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.