Morgunblaðið - 21.06.2009, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 2009
Jóhann: „Hjörtur er mjög ljúfur drengur,
listamannstýpa. Honum hefur gengið allt í
haginn, er góður námsmaður, jafnt í almennu
námi sem í tónlistinni. Ég sá fljótt að hann
var ekki líklegur til þess að ná mjög miklum
árangri í skákinni. Það vantar í hann dráps-
skyggnina, sem skákmenn þurfa að hafa í
ákveðnum mæli. Hann er mýkri týpa en ég og
ég otaði ekki skákinni sérstaklega að honum.
En hann kann að tefla, hefur teflt svolítið og
hefur gaman af því, þegar hann grípur í skák-
ina.
Hins vegar er það merkilegt að sárafá eða
engin dæmi eru þess að sterkir skákmenn eigi
börn sem verða sterkir skákmenn eða leggja
skák fyrir sig. Að mínu mati er skýringin sú
að skákmenn vilja ekki endilega sjá krakkana
sína feta í sömu fótspor. Ég veit ekki um eitt
einasta dæmi þess að stórmeistari í skák hafi
eignast barn sem hafi orðið stórmeistari í
skák. Þetta er því allt öðru vísi en til dæmis í
fótboltanum.
Ég er mjög sáttur við þetta hvað Hjört
varðar. Öll kjör skákmanna hafa versnað
mjög mikið undanfarin 20 ár eða síðan múrinn
féll. Þess vegna óska ég ekki neinum þess sér-
staklega að hann leggi skák fyrir sig sem lifi-
brauð, þó það sé vissulega hægt að lifa af
skákinni, en til þess þurfa menn að ná fram-
úrskarandi árangri. Menn þurfa eiginlega að
komast í allra fremstu röð til þess að lifa
þokkalega góðu lífi af skákinni.“
Góð lífsreynsla
„Þvælingur hans með hljómsveitinni Hjal-
talín minnir mig svolítið á þegar ég var á
ferðalagi erlendis vegna skákarinnar upp í
fimm mánuði á ári, en það sem af er þessu ári
hefur hljómsveitin verið meira erlendis en
hérlendis. Þetta er auðvitað ótrúlega
skemmtileg lífsreynsla fyrir þau, lífsreynsla
sem þau koma til með að búa lengi að. Það er
merkilegt hvað hann hefur náð að halda sér á
floti í náminu með þessu öllu saman og minnir
mig á tímann þegar ég var í skákinni og lög-
fræðinni. Ég þurfti að reyna að skipuleggja
tímann eins vel og ég gat og nota lausar
stundir í lestum, flugvélum og á hótelher-
bergjum til að glugga aðeins í námsbækurnar,
ef færi gafst.
Ég veit ekki hvort þessi ferðalög hafa eitt-
hvað að gera með genin í okkur og ég verð að
segja alveg eins og er að sá tími sem ég sakna
minnst úr fyrra starfi er þessi endalausi flæk-
ingur og ferðalög. Það var sérstaklega erfitt
sem fjölskyldumaður og því var ég alveg sátt-
ur þegar ég hætti í atvinnumennskunni, nokk-
urn veginn á toppnum.“
Hæfileikar og áhugi
„Ég tók snemma eftir því að Hjörtur hafði
greinilega hæfileika á tónlistarsviðinu. Hann
var ekki hár í loftinu þegar hann fékk hljóm-
borð til þess að glamra á og snemma fór hann
í Tónskólann hjá Eddu Borg þar sem honum
gekk mjög vel. Síðan fór hann að læra á píanó
og það gerðist einhvern veginn af sjálfu sér.
Ég hef enga trú á því að pína börn til þess að
gera hluti sem þau hafa ekki áhuga á. Það
hefur bara öfug áhrif og hann stjórnaði þessu
alveg sjálfur. Samt er því ekki að neita að upp
úr tvítugu fór ég að fá áhuga á sígildri tónlist
og óperum þannig að klassísk tónlist hefur
verið spiluð á heimilinu frá því hann var pínu-
lítill. Ég vona að eitthvað af því hafi síast inn í
hann. Hins vegar eru systkinin afar ólík að
Hjaltalín. Þetta hefur haft mikið að segja og
svo fékk Hjörtur mjög gott tónlistaruppeldi
hjá Þorgerði Ingólfsdóttur í kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð. Ég held að það sé ein-
staklega góður skóli fyrir hvern sem er að
fara í kórinn hjá henni vegna þess að hún
krefst svo mikils aga og ástundunar. Enda
hefur kórfólkið iðulega verið besta námsfólkið
í skólanum. Þetta er eins og með skákina að
yfirfærslugildið á nám og störf og annað er
mjög mikið.“
Sumt gengur ekki upp
„Hjörtur er líkur mér að mörgu leyti. Hann
er mátulega kærulaus og hefur ekki mjög
miklar áhyggjur af hlutunum, stressar sig
ekki mjög mikið. Það held ég að sé nauðsyn-
legur eiginleiki í tónlist og skák. Ég hef séð
mjög marga góða skákmenn sem hafa eig-
inlega aldrei náð að sýna sitt rétta andlit
vegna þess að þeir höfðu ekki taugarnar sem
þarf til að ná langt í skákinni. Hjörtur á ekki
til sviðsskrekk og það er mjög góður eig-
inleiki.
Ég held að það sé óhætt að segja að upp-
eldið á Hirti hafi gengið vel og samskipti hans
við afa sinn á Selfossi hafa komið sér vel. Hins
vegar eru nokkrir hlutir sem hafa misfarist og
pirra einkum móður hans en ýmsir praktískir
hlutir liggja ekki vel fyrir honum. Í því sam-
bandi má nefna atriði eins og að muna eftir að
setja smjörið inn í ísskápinn og skilja fötin sín
ekki eftir um allt hús. Ég held að ástæðan sé
sú að hann er þessi dæmigerða listamanns-
týpa sem flýtur áfram án þess að horfa mikið í
kringum sig. Sem betur fer hefur hann ekki
erft stríðnina frá mér en hann er með gott
skopskyn og hvers manns hugljúfi.“
Listamannstýpa sem flýtur áfram
þessu leyti og Sigurlaug Guðrún, systir hans,
lifir og hrærist í fótbolta. Hún spilaði á þver-
flautu og þegar hún missti áhugann á því
þrýstum við ekki á hana til þess að halda
áfram. Fótboltaáhugi hennar hefur heldur
ekkert með mig að gera og reyndar er nokkuð
ljóst að ég fór í skákina vegna þess hvað ég
var ofboðslega lélegur í fótbolta, örugglega lé-
legasti fótboltamaður sem uppi hefur verið á
Íslandi. En það er svolítið af tónlistarfólki í
ættum okkar Jónínu, þó foreldrar okkar hafi
ekki spilað á hljóðfæri.
Það kæmi mér ekki á óvart þó Hjörtur
legði tónlistina fyrir sig á einhvern hátt, en ég
hef alltaf hvatt hann til þess að ná sér í góða
almenna menntun. Það var það sem góðir
menn ráðlögðu mér á sínum tíma og ég sé svo
sannarlega ekki eftir því að hafa fylgt þeim
ráðum. Ég hafði góðar fyrirmyndir eins og
Friðrik Ólafsson, sem er lögfræðingur og
starfaði við fagið eftir að skákferlinum lauk.
Ég held líka að þeir sem leggi fyrir sig starf,
þar sem tekjur eru óvissar, finni fyrir betri
líðan og finni sig betur hafi þeir aðra menntun
á bak við sig. Þegar komu upp erfið augnablik
og hlutirnir gengu ekki upp hjá mér í skákinni
gat ég alltaf huggað mig við það að ég hafði
lögfræðina. Þetta þurfa allir að hafa í huga.
Ég held að það eigi alveg að geta gengið
hjá Hirti að samræma háskólanámið og tón-
listina, enda hef ég tekið eftir því að ungt fólk
í tónlist er yfirleitt jafnframt góðir náms-
menn. Þetta fólk þarf að tileinka sér aga og
skipulag og þessi atriði nýtast því vel í námi.
Það nær að nýta tímann betur en flestir aðrir.
Hjörtur og Guðmundur Óskar Guðmundsson,
vinur hans, stofnuðu ásamt öðrum Svitaband-
ið í Ölduselsskóla og þeir spila líka saman í
!"
"#$ %&'&
(' $)* )*## + ,## )*)*
Íbúðalánasjóður veitir lán til endurbóta á húsnæði að innan og utan.
Meðal annars eru veitt lán til lóðarframkvæmda og viðbóta við
húsnæði. Lán geta numið allt að 80% af framkvæmdakostnaði.
Hámarkslán eru 20 milljónir og lánstími 5 til 40 ár. Sömu vextir eru
á þessum lánum og almennum lánum Íbúðalánasjóðs.