Morgunblaðið - 04.07.2009, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 4. J Ú L Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
179. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«TÓNLISTARHÁTÍÐ
HJALTALÍN STÓÐ SIG
VEL Á HRÓARSKELDU
«MAGNÚS EIRÍKSSON
Blúsarinn sér ekki
eftir neinu
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
HS Orka vill selja Grindvíkingum hvern hektara á
landi sínu í Svartsengi á nær þrisvar sinnum
hærra verði í dag en bænum bauðst að kaupa það á
í desember síðastliðnum. Grindavíkurbær sagði
sig í gær frá samvinnu um svæðisskipulag á
Reykjanesi og heimildir Morgunblaðsins herma
að það tengist með beinum hætti þeim viðskiptum
sem nú eiga sér stað með eignarhluti í HS Orku og
landsvæðum sem tilheyra fyrirtækinu. Miklar
pólitískar deilur geisa nú á Suðurnesjum vegna
þessara viðskipta.
HS Orka bauð Grindavíkurbæ að kaupa 150
hektara af landsvæði og auðlindir í Svartsengi á
hektara en kaupverðið að sama skapi hækkað í 447
milljónir króna. Það þýðir að hektaraverðið fór úr
2,6 milljónum í desember í 7,1 milljón nú. Grind-
víkingum var síðan boðið að ganga inn í þetta sam-
komulag ef þeir vildu eignast landsvæðið.
Raunvirði fyrirhugaðra kaupa GGE á hlut
Reykjanesbæjar í HS Orku er háð þróun álverðs á
næstu sjö árum og munurinn gæti hlaupið á millj-
örðum króna. Þá hefur Morgunblaðið heimildir
fyrir því að samkvæmt nýjasta verðmati sem unn-
ið hefur verið á virði HS Veitna sé Reykjanesbær
að greiða rúmum 2,8 milljörðum króna of mikið
fyrir þriðjungshlut GGE í fyrirtækinu.
Grindavík fer í hart
Grindavík hefur sagt sig úr samvinnu um skipulag á Reykjanesi Hektaraverð
við Svartsengi hækkaði nær þrefalt Álverð stjórnar kaupverði Geysis Green
Þróun álverðs stjórnar kaupverði | 19
385 milljónir króna gegn staðgreiðslu í desember
2008. Grindvíkingar gerðu þeim þá gagntilboð
sem var hafnað. Síðan þá hafa verið viðræður í
gangi, eða allt þar til tilkynnt var að Reykjanes-
bær ætlaði að kaupa umrætt landsvæði í miklum
viðskiptum milli sín og Geysis Green Energy
(GGE) með hluti í HS Orku og HS Veitum. Svarts-
engissvæðið hafði hins vegar minnkað niður í 63
Illdeilur á Suðurnesjum
150 ha kostuðu 385 milljónir
65 ha kosta nú 447 milljónir
Myndasögur og hreyfimyndir –
manga og anime – eru ekki einungis
barnaefni í Japan. Að baki liggur
löng hefð og ríkulegur arfur. Les-
bókin ræddi við japanska listamenn.
LESBÓK
Hefð japanskra
hreyfimynda
Jo Nesbø er margverðlaunaður
glæpasagnahöfundur sem hvarf frá
hefðbundnum starfsferli í banka til
að skrifa um sérvitra andhetju í
baráttu við undirheimana.
Norskur rokkari
gerist rithöfundur
SJALDAN blómstrar ástin meir en á sumrin þegar sólin
skín og náttúran kallar. Þetta ástfangna par naut sum-
arhitans í Nauthólsvíkinni í gær og þau voru ófeimin
við að láta vel hvort að öðru í flæðarmálinu.
Eitthvað urðu þeir þó skrýtnir á svipinn strákarnir í
pottinum fyrir aftan þegar kossinn varð sem dýpstur
enda komu þeir á ströndina í allt öðrum erindagjörðum,
en enginn skyldi efast um að þeir læri á endanum að
meta slík blíðuhót sjálfir. Svo er bara að sjá hvort sum-
arástin endist út veturinn.
SJÓÐHEITAR SUMARÁSTIR
Morgunblaðið/RAX
Hrunið hefur sett á svið marga
hversdagsharmleiki en fjölmiðlar
hafa brugðist í vali sínu á því hverja
skuli setja upp, segir í fjölmiðla-
pistli Ásgeirs H. Ingólfssonar.
Hrunið og hvers-
dagsharmleikirnir
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
LAG Emilíönu Torrini, „Jungle Drum“, er komið í
efsta sæti þýska vinsældalistans. Lagið hefur ver-
ið á listanum í nokkrar vikur, og komst svo loks á
toppinn í lok þessarar viku. Neðar á listanum eru
flytjendur á borð við Lady Gaga, A-Ha og
Beyonce Knowles.
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem íslenskt lag
kemst í efsta sæti þýska vinsældalistans, og raun-
ar í fyrsta skipti sem íslenskt lag kemst í efsta
sæti eins af helstu vinsældalistum heims.
Rekja má vinsældir lagsins í Þýskalandi til þess
að það hljómaði í raunveruleikaþættinum Germa-
ny’s Next Top Model fyrir skömmu.
„Ég frétti nú bara af þessari velgengni í síðustu
viku, við erum ekki einu sinni búin að fara til
Þýskalands,“ segir Emilíana sem er á miklu tón-
leikaferðalagi um Evrópu um þessar mundir. | 44
Vinsælust í Þýskalandi
Morgunblaðið/hag
Brýtur blað Emilíana Torrini slær í gegn.
SKRIFAÐ var í gærkvöldi undir
samning á milli Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja og ríkissjóðs.
Gildistími samningsins er til 30. nóv-
ember 2010. Í honum felst m.a. leið-
rétting á lægstu launum auk þess sem
persónu- og orlofsuppbót hækka.
Í gær var einnig skrifað undir
kjarasamninga milli Starfsgreina-
sambands Íslands og ríkissjóðs.
Helsta breytingin er sú að mán-
aðarlaun fyrir dagvinnu allt að 180
þúsund kr. hækka frá og með mán-
aðamótum um 6.750 kr og um sömu
upphæð aftur 1. nóvember. Félögum
sambandanna verða kynntir samn-
ingarnir á næstunni. una@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Kjarasamningar BSRB og
SGS undirritaðir í gær
Handsal Gunnar Björnsson og Árni
Stefán Jónsson við samningslok.
STEFNT er að róttækum breyt-
ingum á tekjustofnum háskólanna í
landinu, með það að markmiði að
jafna tekjustofna einkaskóla og rík-
isrekinna skóla. Bæði form há-
skólarekstrar hafa fengið jöfn
framlög úr ríkissjóði, en einkaskól-
arnir hafa að auki getað innheimt
skólagjöld.
Rýnihópur á vegum mennta-
málaráðherra hefur ýmis atriði há-
skóla- og vísindastarfs til skoðunar
og mun hann skila niðurstöðum til
menntamálaráðherra 15. ágúst
samkvæmt skipunarbréfi. Hópur-
inn á meðal annars að taka mið af
tillögum sem komið hafa fram í
skýrslum um háskólastarfið. »6
Skoða róttækar breytingar
á starfi íslenskra háskóla
MAÐUR var handtekinn í Leifs-
stöð um síðustu helgi með 350
grömm af kókaíni í fórum sínum.
Efninu reyndi hann að smygla inn-
vortis, í meltingarvegi sínum, í
hvorki meira né minna en 38
pakkningum sem hann hafði gleypt.
Að sögn Gunnars Schram, yf-
irlögregluþjóns hjá lögreglunni á
Suðurnesjum, fannst efnið við
reglubundið eftirlit tollgæslunnar á
flugvellinum. Málið er enn í rann-
sókn og hefur maðurinn, sem er af
erlendu bergi brotinn, setið í gæslu-
varðhaldi síðan hann var handtek-
inn og situr enn. onundur@mbl.is
Gleypti 38 pakkningar af
kókaíni og reyndi að smygla