Morgunblaðið - 04.07.2009, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2009
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
KOMA þarf á sameiginlegu evr-
ópsku fjármálaeftirliti svo hags-
munatengsl komi ekki í veg fyrir að
gripið sé í taumana þegar óeðlilegir
viðskiptahættir eru viðhafðir. Þetta
er mat Evu Joly, ráðgjafa sérstaks
saksóknara í rannsókninu á banka-
hruninu. Hún segir þetta ekki ein-
ungis eiga við um lítil samfélög eins
og Ísland, heldur um allan heim.
Joly var aðalfyrirlesari á ársþingi
Evrópusamtaka kvenlögfræðinga í
Þjóðmenningarhúsinu í gær. Hún
kom í pontu eftir erindi Einars Más
Guðmundssonar og tók undir með
honum að orðræðan um markaðinn
hefði haft á sér trúarlegan blæ á síð-
ustu árum. „Hvernig gátum við trú-
að því að það væri best að hafa engar
reglur, heldur láta markaðinn sjálfan
stýra?“ spurði hún og rifjaði upp að
Alan Greenspan, fyrrverandi seðla-
bankastjóri Bandaríkjanna, hefði
viðurkennt fyrir bandaríska þinginu
að það hefði verið rangt af honum að
trúa á ósýnilega hönd markaðarins.
Bandaríkjamenn væru því nú að
reyna að setja upp reglur sem duga.
Mannréttindi þeirra
sem brjóta á þjóð
Hún sagði Evrópu klofna í sinni
afstöðu en afstaða hennar sjálfrar
var skýr. „Við þurfum sameiginlegt
regluverk til að vernda sparifjáreig-
endur og fjárfesta. Við þurfum að
hafa miðlægt eftirlitskerfi með
markaðinum.“ Þannig væri elítan í
hverju landi lítill hópur manna sem
þekktist, því þeir hefðu t.a.m. gengið
í sömu skóla.
Joly tók dæmi af óeðlilegri sölu
fyrirtækis í Frakklandi sem slapp í
gegn hjá franska fjármálaeftirlitinu
þar sem forstjóri fyrirtækisins hafði
átt vingott við forstjóra eftirlitisins.
„Þetta hefði ekki gerst ef stýringin
hefði verið evrópsk. Og við getum að-
eins ímyndað okkur hvað gerðist hér
á Íslandi þar sem tengslin eru enn
nánari. Ég held að staðan sem við
upplifum hér á Íslandi sé augljóslega
vegna þeirrar staðreyndar að hér
voru tengsl milli manna of mikil.“
Hún minnti á að hún hefði nýverið
hlotið kosningu á Evrópuþingið og
sagðist myndu beita sér fyrir slíku
sameiginlegu reglu- og eftirlitskerfi.
Yfirskrift ársþingsins er „Mann-
réttindi og efnahagskreppa“ og varð
Joly tíðrætt um hvernig peninga-
þvætti og spilling yrði til þess að
brjóta á grunnmannréttindum
stórra hópa og þjóða. Á hinn bóginn
virtist fólki ákaflega umhugað um
mannréttindi þeirra sem brjóta á
öðrum. Hún rifjaði upp þegar hún
kom fyrst til Íslands og sagði í sjón-
varpsviðtali að hún teldi það skyldu
íslenskra stjórnvalda að láta fara
fram öfluga rannsókn þannig að
hægt væri að handtaka menn og
frysta eignir þeirra. Þá þegar hefði
lögfræðingur nokkur haft við hana
samband. „Og hann taldi að ég væri
með þessu að brjóta á mannrétt-
indum þeirra sem brutu á þjóðinni.“
Staðan á Íslandi vegna mik-
illa tengsla manna á milli
Eva Joly segir þörf á sameiginlegu evrópsku eftirlitskerfi og fjármálaregluverki
Morgunblaðið/Golli
Réttlæti Góður rómur var gerður að erindi Evu Joly sem gagnrýndi m.a. siðleysið í því að örfáir hafi efnast á kostn-
að alls fjöldans. Hún sagði ofurbónusa stjórnenda bankanna vera gott merki um ranglætið undanfarin góðærisár.
Í HNOTSKURN
»Á síðustu 15 árum höfumvið búið til meiri auð fyrir
10 ríkustu milljónir manna
heimsins en fyrir þá tvo millj-
arða sem svelta, sagði Joly.
»50% þess auðs sem byggð-ur var upp í Bandaríkj-
unum sl. 10 ár runnu til fólks í
bankageiranum og 15% til
stjórnenda bankanna. 46 millj-
ónir Bandaríkjamanna hafa
ekki heilbrigðistryggingu.
,,OKKUR kemur þetta ekki á
óvart, við erum sjálfir með sam-
bærilegt mál í undirbúningi,“ segir
Jóhannes Ingi Kolbeinsson, fram-
kvæmdastjóri Kortaþjónustunnar,
samkeppnisaðila Valitors, en Sam-
keppnisstofnun stóð fyrir húsleit
hjá Valitor þann 1. júlí sl. vegna
gruns um meinta misnotkun á
markaðsráðandi stöðu.
Þá sagði hann að það myndi
heldur ekki koma sér á óvart ef
mál hans sem nú er í vinnslu hjá
Samkeppnisstofnun tengdist hús-
leitinni líka. Þá væri það ekki rétt
sem kæmi fram í yfirlýsingum Val-
itors, að húsleitir væru eðlilegur
þáttur í rannsókn Samkeppnis-
stofnunar.
Húsleitir væru meiriháttar mál
sem krefðust dómsúrskurðar og út
í þær væri ekki farið nema stofn-
unin teldi ríka ástæðu til. Jóhann-
es segist kannast við starfsaðferðir
Valitors og svör þeirra vegna hús-
leitarinnar.
,,Í máli sem endaði með sátt í
fyrra og reyndist vera stærsta við-
urkennda brot á samkeppnislögum
hérlendis sögðust þeir líka vera
saklausir,“ segir Jóhannes.
sigrunerna@mbl.is
„Kemur
þetta ekki
á óvart“
Húsleit hjá Valitor
ekki undrunarefni
Eftir Guðrúnu Hálfdánardóttur
guna@mbl.is
FRIÐRIK Soph-
usson lætur af
starfi forstjóra
Landsvirkjunar í
haust, en hann
hefur gegnt starf-
inu í rúm tíu ár,
frá 1. janúar 1999.
Friðrik hafði ætl-
að sér að hætta
störfum um síð-
ustu áramót en vegna aðstæðna fór
stjórn fyrirtækisins þess á leit að
hann héldi áfram störfum í allt að tvö
ár.
Að sögn Friðriks setti hann það
skilyrði, þegar hann var beðinn um
að starfa áfram hjá fyrirtækinu, að
það yrði ekki lengri tími en eitt ár.
Skýrist það af fjölskylduaðstæðum
en eiginkona hans starfar erlendis í
utanríkisþjónustunni.
Ekki liggur fyrir hver tekur við
sem forstjóri Landsvirkjunar en
starfið verður auglýst laust til um-
sóknar á sunnudaginn. Það var áður
auglýst laust til umsóknar síðasta
haust og sóttu þá 55 manns um.
Koma framkvæmdum af stað
Mikil óvissa ríkti um framtíð fyrir-
tækisins í október, þegar Friðrik var
beðinn um að halda áfram, enda
skuldir Landsvirkjunar gríðarlega
miklar.
„En nú liggur fyrir að fyrirtækið
hefur lausafé í tvö ár til að greiða af-
borganir og vexti af lánum án þess að
þurfa að taka ný lán. Það þarf að nota
þennan tíma vel til að styrkja lausa-
fjárstöðu Landsvirkjunar, sem hefur
verið lækkuð í lánshæfiseinkunn nú
nýverið vegna veikleika ríkisins. Það
þýðir að það verður erfitt að afla fjár
til nýrra verkefna. Þess vegna mun-
um við á næstu vikum vinna með rík-
isstjórninni á grundvelli stöð-
ugleikasáttmálans til að freista þess
að koma framkvæmdum af stað á
ný,“ segir Friðrik.
Hættir hjá
Landsvirkj-
un í haust
Nýti tímann til að
efla lausafjárstöðu
Friðrik Sophusson