Morgunblaðið - 04.07.2009, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2009
Traustur valkostur
í húsnæðismálum
www.veggfodur.is
Kringlunni • Simi 568 1822 og Smáralind • sími 564 1822
www.polarnopyret.is
Útsalan
í fullum
gangi!
Síðar ermar 7.900 kr.
Sumarpils 5.900 kr.
toppur 4.500 kr.
Bæjarlind 6 sími 554 7030
Opið í dag 10-15
Útsala
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Útsalan er hafin
Allar vörur með
20-70% afslætti
Laugaveg 53 • sími 552 3737
Opið í dag laugardag 10-17
Fyrir einstaka hönnun á be hefur ReSound
hlotið tvenn nýsköpunarverðlaun. be eru
fyrstu tækin sem byggja á innfelldri, opinni
tækni. Þau eru hulin í eyrunum og gefa
eðlilega heyrn án þess að loka hlustunum.
Fyrsta sinnar tegundar
Hljóðneminn er í skjóli í ytra eyranu sem
fangar hljóðið fyrir hann og kemur í veg
fyrir vindgnauð.
2. Hljóðnemi
1.Einstök hönnun
3. Sérstaklega þægileg lögun
be by ReSound falla vel og eðlilega í hlustirnar
svo þau eru sérstaklega þægileg.
4. Rafhlöðulok
Auðvelt er að skipta um rafhlöðu.5. Hljóðnemasnúra
Snúran er mjúk og fylgir formi eyrans hún gerir
það að verkum að be leggst tryggilega í eyrað
og er algjörlega hulið.
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur - heyrn.isHeyrnarþjónustan
Tímapantanir 534 9600
be by ReSound er í raun ósýnileg í eyrunum.
Mjódd, sími 557 5900
Útsalan er hafin
Verið velkomnar
BJÖRGUNARSVEITARMENN og
konur í rauðum peysum standa
vaktina á hálendinu fjórða sumarið í
röð. Þau nýta sumarfríið sitt í að
gæta, aðstoða og leiðbeina misvel
búnum ferðamönnum um hættur há-
lendisins.
Búast má við mikilli umferð á há-
lendinu um helgina enda búið að
opna allar helstu leiðir.
Kristinn Ólafsson framkvæmda-
stjóri Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar segir björgunarsveitarfólkið
vel undirbúið undir mikla umferð og
fólksfjölda á hálendinu.
„Stór hluti þjóðarinnar virðist
ætla að ferðast um landið sitt í sum-
ar. Strax í fyrrasumar urðum við vör
við mikla aukningu á ferðum Íslend-
inga um hálendið.“
Smábílar haldi sig á þjóðvegum
Margur glansandi fínn slyddu-
jeppinn sem hingað til hefur ein-
ungis ekið um malbikaðar götur
borgarinnar fer væntanlega í sína
fyrstu hálendisferð í sumar. „Það
þarf ekki að hafa stóráhyggjur af
skemmdum eða rispum ef fólk fer
varlega, segir Kristinn og hlær við.
„Annars eru Íslendingar allajafna
meðvitaðir um hættur hálendisins
og vel útbúnir.“ En óhöppin gerast
og óbrúaðar ár eru varasamar og
veðrasviptingar geta verið öfgafull-
ar á hálendinu.“ Hann segir verk-
efnin á hálendinu ærin. „Við aðstoð-
um fólk við ýmislegt, eins og
sprungin dekk, bilanir, að ekki sé
minnst á að draga bíla upp úr ám,
sandi og bleytu. Einnig leggjum við
áherslu á fræðslu t.d. um akstur yfir
vatnsföll, útbúnað, klæðnað, veður
o.fl.“
Hann segir nokkuð algengt að
hitta útlenska ferðamenn á pínu-
litlum bílum á leið upp á hálendi-
.„Við stoppum slíka bíla og bendum
ferðalöngunum á að þeir komist ekki
langt á þessu faratæki og geti lent í
hinum verstu hremmingum ef þeir
haldi áfram för.“ Kristinn varar fólk
líka eindregið við því að fara með
óbreytta tjald- og húsvagna og felli-
hýsi inn á hálendið. Betra sé að
planta vagninum á tjaldstæði í jaðri
hálendisins og fara í dagsferðir.
Geta brugðið skjótt við
Kristinn segir tilganginn með há-
lendisvaktinni að fækka slysum,
veita aðstoð og upplýsingar en ekki
hvað síst að vera til staðar ef eitt-
hver vá er fyrir dyrum eða slys
verða. Hörmungaratburðir eiga sér
stundum stað á hálendinu; fólk slas-
ast á göngu eða týnist, bílum er velt,
og straumþungar ár ná stundum að
hrifsa völdin af bílstjórum. Með því
að staðsetja björgunarsveitir inni á
hálendinu er hægt að bregðast
skjótt við. „Björgunarsveitirnar
verða með aðsetur í gámahúsum í
Öskju, Nýjadal, Landmannalaugum
og á Hveravöllum fram yfir versl-
unarmannahelgi.
Á vaktinni Björgunarsveitakona leiðbeinir ferðalöngum á hálendinu.
Hálendisvakt-
in í rauðu
Björgunarsveitarfólk fræðir og að-
stoðar ferðamenn á hálendinu í sumar
Vakt allan sólarhringinn
Fréttir í
tölvupósti