Morgunblaðið - 04.07.2009, Síða 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2009
Það er
Meira Frelsi
0 kr. innan kerfis um helgar í sumar
800 7000 • siminn.is
Fylltu á Frelsið í gegnum Mitt Frelsi og hringdu
svo eða sendu SMS innan kerfis um helgar
í mánuð á eftir án þess að borga krónu.
Þú talar auðvitað áfram við vini þína
innan eða utan kerfis – við fjölgum bara
vinunum um helgar.**
NETIÐ Í SÍMAN
UM
FYLGIR FRELS
INU!
Ef þú átt Frels
isnúmer ferðu
á
netið í símanu
m í sumar fyr
ir
0 kr. aukalega
.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
HEILMIKIÐ hagræði verður að því að sameina
fjóra vinnustaði í einu stóru verkstæðishúsi sem
Kaupfélag Skagfirðinga hefur byggt á Sauðár-
króki og ný tækifæri skapast. Mesta breytingin
er líklega fyrir bifvélavirkjana sem voru í ónýtu
húsnæði en hafa nú vinnuað-
stöðu sem alveg eins gæti hýst
læknastofur eða hvaða þjón-
ustufyrirtæki sem er, bara ef
útidyrnar væru færri og minni.
„Við getum veitt fjölbreytta
viðhaldsþjónustu á einum stað.
Hér er ein móttaka fyrir öll
verkstæðin og ein verslun.
Með þessu næst hagræðing og
einnig teljum við að mögu-
leikar séu á samnýtingu starfs-
fólks með því að færa menn á
milli eftir því hvernig verkefni koma inn. Það ger-
ir okkur kleift að takast á við stærri verk,“ segir
Marteinn Jónsson, framkvæmdastjóri verkstæð-
issviðs Kaupfélags Skagfirðinga. Þá má ekki
gleyma aðbúnaði starfsfólks sem nú fær fyrsta
flokks starfsaðstöðu.
Kraftarnir sameinaðir
Bygging verkstæðishússins sem hlotið hefur
nafnið Kjarninn hefur tekið um tuttugu mánuði.
Það er ekki hefðbundin verkstæðisbygging vegna
þeirra mörgu fyrirtækja sem þarna sameina
krafta sína. Frekar má líkja þessu við iðngarða
með sameiginlegri aðstöðu.
Enn er unnið að flutningum fyrirtækja í Kjarn-
ann en þegar allt verður komið á sinn stað verða
þar vélaverkstæði, rafmagnsverkstæði, fólks-
bílaverkstæði, dekkjaverkstæði, vörubílaverk-
stæði, sprautuverkstæði, tölvuþjónusta, gagna-
hýsing og verslun með bíla- og tölvuhluti. KS er
eigandi eða hluthafi í öllum þessum fyrirtækjum
sem sum eru rekin undir merkjum KS en önnur í
sérstökum félögum, eins og til dæmis rafmagns-
verkstæðið Tengill ehf.
Verkefnin hafa aukist með bættri aðstöðu.
Þannig er viðhaldi vöruflutningabíla Vörumiðl-
unar nú meira sinnt heimafyrir en áður var hægt.
Sama er að segja um togarana. Marteinn telur að
hægt verði að taka stærri verkefni á því sviði með
öflugri verkstæðum. Vonast hann til þess að í
framtíðinni komi viðlegukantur framan við
Kjarnann. Þar verði þá hægt að gera við allt
nema botn togaranna því engin er skipalyftan.
Meira gert við
Marteinn er vongóður um reksturinn. „Það
ætti að vera því varla hafa verið fluttir inn nýir
bílar síðasta árið. Við höfum líka séð breytingar í
viðhorfum fólks. Komið er með hluti til viðgerðar
sem áður var hent,“ segir Marteinn.
Kjarni á Króknum
Fjögur verkstæði og þjónustufyrirtæki flytja
sig í Kjarna KS Viðhald flyst heim og mögu-
leikar skapast til að takast á við stærri verkefni
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fólksbílaverkstæði Bifvélavirkjar KS eru fluttir úr húsi sem nú verður rifið og í skurð-
stofuumhverfi í Kjarnanum. Það vantar bara að skipta bláu sloppunum út fyrir hvíta.
Marteinn
Jónsson
Í HNOTSKURN
»Nýbygging Kjarnans er um 3500 fer-metrar að stærð. Hún er byggð við hús-
næði Vélaverkstæðis KS og með því eru
húsakynnin 4400 fermetrar.
»Á verkstæðum og í þjónustufyrir-tækjum starfa um sjötíu manns.
»Kjarninn er á hafnarsvæðinu á Sauð-árkróki, á lóð sem upphaflega var út-
hlutað undir vatnsverksmiðju. Sökklar
verksmiðjunnar hafa staðið þarna í áratugi
og ekki verið nein prýði fyrir bæinn.