Morgunblaðið - 04.07.2009, Síða 18
18 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2009
ÍRSKIR dagar standa yfir á Akra-
nesi um þessa helgi. Fjölbreytt fjöl-
skyldudagskrá er í boði alla
helgina, þar á meðal flestir þeirra
hefðbundnu dagskrárliða sem verið
hafa undanfarin ár, m.a. lopapeysu-
ball, götugrill og kvöldvaka í mið-
bænum, tískusýning og markaðs-
stemning. Þáttakendur á
markaðnum hafa aldrei verið fleiri,
eða liðlega 70 talsins.
Morgunblaðið/Júlíus
Vinsælt Margir voru á Írskum dög-
um á Akranesi í fyrra.
Írskir dagar
FJÓRÐUNGSMÓT hestamanna á
Kaldármelum á Snæfellsnesi stend-
ur nú yfir. Að mótinu standa hesta-
mannafélöginn fimm á Vesturlandi,
þ.e. Dreyri, Faxi, Glaður, Snæfell-
ingur og Skuggi.
Mótið hófst á miðvikudaginn og
stendur fram á sunnudag. Áætlaður
fjöldi gesta er um 2.500 - 3.000.
Fjöldi hrossa sem keppa er um 350
og hefur mótið stækkað verulega
síðan það var síðast haldið 2005.
Hestamannamót
Í DAG fer fram opnun skógreitsins
að Ásabrekku í Ásahreppi, þar sem
hann verður formlega tekinn inn í
verkefnið „Opinn skógur“.
Markmiðið með verkefninu „Op-
inn skógur“ er að opna fjölmörg
skógræktarsvæði í eigu og umsjón
skógræktafélaga og gera þau að-
gengileg almenningi. Tíu svæði
hafa hingað til verið opnuð.
Opinn skógur
Á MORGUN, sunnudag, kl. 14 verð-
ur haldin útiguðsþjónusta í Arna-
bæli. Þar mun sóknarprestur leiða
guðsþjónustu
ásamt Kirkjukór
Hveragerðis og
Kotstrandar-
sóknar undir
stjórn Jörg E.
Sondermann
organista.
Arnarbæli var
fornfrægt höfuð-
ból, þar var
kirkjustaður og prestsetur um ald-
ir, fram yfir 1940. Kirkjan við
Arnabæli var aflögð árið 1909 og
sóknin sameinuð Reykjasókn. Sama
ár var ný kirkja byggð á Kotströnd
fyrir hina nýju sameiginlegu sókn
og verður því kirkjan aldargömul á
þessu ári.
Útiguðsþjónusta
í Arnarbæli
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
MAGNÚS Hartmann Gíslason, sendifulltrúi
Rauða kross Íslands, er nýfarinn til borgarinnar
Kandahar í suðausturhluta Afganistans. Þar
mun Magnús, sem er rafmagnsverkfræðingur,
starfa ásamt tuttugu manna teymi á vegum Al-
þjóða Rauða krossins, við að endurnýja raflagn-
ir í stóru sjúkrahúsi. Magnús mætir þó ekki með
neinn tækjabúnað heldur aðeins hugvitið.
„Ég vinn verkið ekki sjálfur því aðalatriðið er
að heimamenn læri hvernig á að fara að,“ segir
Magnús. Þannig má draga úr kostnaði og
byggja upp tækniþekkingu á staðnum. Mun erf-
iðara er fyrir sjúkrahús að halda við búnaði þeg-
ar öll uppbyggingarvinna hefur verið unnin af
aðkomumönnum. Á sjúkrahúsinu sem hér um
ræðir eru 300 rúm og jafnframt eina vel búna
skurðstofan í landshlutanum.
Magnús er enginn nýgræðingur á sviði hjálp-
arstarfs. Hann hefur tvisvar sinnum farið til Ka-
búl, höfuðborgar Afganistans, árin 2003 og 2004,
til sambærilegra verkefna. Síðastliðið ár hefur
Magnús verið á viðbragðslista hjá Veraldarvakt-
inni, sem heldur skrá yfir fólk sem býður sig
fram til sjálfboðastarfa með skömmum fyrir-
vara. Nú var hann boðaður með tveggja vikna
fyrirvara. Kandahar er um hundrað kílómetra
frá átakasvæðum og öryggisástand þar er talið
fremur gott.
„Auðvitað er samt hættuástand. Rauði kross-
inn reynir að passa vel upp á sitt fólk og maður
fer varlega. Fjölskyldan er svolítið smeyk, eins
og gengur. En maður velur ekki verkefnin sjálf-
ur, núna vantar fólk í Afganistan og þá fer mað-
ur þangað,“ segir Magnús að lokum.
Nýjar raflagnir í Kandahar
Boðaður með tveggja vikna fyrirvara til uppbyggingarstarfa á sjúkrahúsi
Magnús Gíslason heldur í þriðja sinn til Afganistans með hugvitið að vopni
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Til Afganistans Hjálparstarfið heillar Magnús.
Í HNOTSKURN
»Með Magnúsi mun starfa tuttugumanna teymi , að mestu leyti fólk úr
heilbrigðisgeiranum, alls staðar að úr
heiminum. Verkefnið mun standa yfir í
allt að sex mánuði.
»Verkefnið felur m.a. í sér að fara yfirteikningar, bjóða út verk til verktaka
og að hafa eftirlit með þeim.
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
HALLDÓR Baldursson, skopmynda-
teiknari hjá Morgunblaðinu, mun í lok
sumars opna sýningu á verkum sínum
í menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Sýndar verða skopmyndir hans frá
síðustu þremur árum en á milli upp-
runalegu vatnslitamyndanna verða
veggskreytingar með helstu teikni-
myndafígúrum Halldórs.
Neikvæður að eðlisfari
Vinnuheiti sýningarinnar er Í frétt-
um var þetta helst og eins og heitið
gefur til kynna verður farið yfir það
sem helst hefur verið í fréttum síð-
ustu árin. „Ég byrja á jákvæðu mynd-
unum frá 2006-7. Ég ætla reyndar að
leggjast í rannsóknarvinnu og skoða
hvort þær voru virkilega svo jákvæð-
ar,“ segir Halldór. „Það er búið að
saka fjölmiðla um að hafa ekki haft
uppi nein varnaðarorð. Ég ætla að sjá
hvort myndirnar mínar hafi verið svo
jákvæðar en ég á erfitt með að trúa
því þar sem ég er svo neikvæður að
eðlisfari. Svo fer ég í gegnum krepp-
una og fram á okkar dag.“
Spurður hvaða teiknimyndafígúra
muni oftast koma fyrir í sýningunni
svarar Halldór að á um tveggja ára
tímabili hafi Geir H. Haarde, fyrrver-
andi forsætisráðherra, komið fyrir á
nánast hverri mynd. Að auki hafi
Davíð Oddsson, fyrrverandi seðla-
bankastjóri, og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráð-
herra, komið mikið fyrir. „Núna í
seinni tíð hafa Steingrímur [J. Sigfús-
son] og Jóhanna [Sigurðardóttir] ver-
ið mjög áberandi,“ segir Halldór og
bætir við að hann muni alveg örugg-
lega bjóða þeim öllum á opnun sýn-
ingarinnar.
Í tengslum við sýninguna ætlar
Halldór að halda námskeið fyrir unga
og upprennandi skopmyndateiknara í
haust .
Skoplega hlið kreppunnar
Morgunblaðið/RAX
Halldór Heldur sýningu á skopmyndum frá góðærinu og fram á okkar dag.
TYRFT hefur verið yfir „holuna“ svokölluðu á
Garðatorgi sem myndaðist eftir að hafist var
handa við framkvæmdir við nýjan miðbæ bæj-
arins. Í stað moldarholu stendur til að þar verði
grasi þakin laut með trjágróðri og setstöllum.
Fyrsta skóflustungan að nýjum miðbæ Garða-
bæjar var tekin 11. september sl. eftir að gerður
var samningur við Klasa hf. um verkefnið. Til
stóð að framkvæmdum lyki árið 2010 og var ætl-
unin að við torgið yrðu verslanir, þjónustufyrir-
tæki, menningarlíf og íbúðir. Nú hefur bærinn
hins vegar gert samning við Klasa um frestun
framkvæmdanna um þrjú ár og verður verkefnið
endurskoðað á þeim tíma, í ljósi breyttra að-
stæðna. ben@mbl.is
Morgunblaðið/Jakob Fannar
TYRFT YFIR HOLUNA Á GARÐATORGI
Ranglega var farið með nafn Jonas-
ar Rafns Ölvissonar í myndatexta
með mynd af uppskerustörfum við
Flúðir í gær. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Er í Framsóknar-
flokknum
Eysteinn Jónsson, bæjarfulltrúi og
félagi í Framsóknarflokknum, var
ranglega sagður í Samfylkingunni í
frétt um HS-fyrirtækin, Reykja-
nesbæ og Grindavík í gær. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Rangt nafn