Morgunblaðið - 04.07.2009, Blaðsíða 19
Fréttir 19VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2009
Þetta helst ...
● Margeir Pétursson, stjórnar-
formaður MP Banka, segir í viðtali við
The New York Times, að innstæður
bankans hafi fjórfaldast frá áramót-
um. Þær nemi 200 milljónum dollara.
Í maí opnaði MB Banki viðskipta-
bankaútibú en áður var reynt að kaupa
útibú Spron, sem gat ekki staðið af sér
hremmingar í efnahagslífinu.
Margeir á 28% hlut í MP Banka. Ekki
stendur til að fleyta honum á hluta-
bréfamarkað, samkvæmt fréttinni.
Innstæður MP banka
fjórfaldast frá janúar
tapað á gengisbreytingunum, ef það
þarf að kaupa evrur í haust.
Í Morgunblaðinu í gær kom fram
að tregða væri hjá þeim, sem eignast
gjaldeyri, að skipta honum í krónur.
Það ætti sinn þátt í að krónan styrkt-
ist ekki. Sagt var að staðan á gjald-
eyrisreikningum bankakerfisins
stæði í 170 milljörðum króna.
Seðlabankastjóri og aðstoðar-
seðlabankastjóri voru tregir til að
fjalla um þessa reikninga á fundi í
Seðlabankanum á fimmtudaginn,
þegar stýrivaxtaákvörðun var kynnt.
Í gær var svo hægt að finna tölur um
þessa þróun aftur í tímann á heima-
síðu Seðlabankans. Þar kemur fram
að staðan á innlendum gjaldeyris-
reikningum var 173 milljarðar króna
í maí síðastliðnum. Hins vegar var
staðan í febrúar 127 milljarðar króna
en ekki um 90 milljarðar eins og
fram kom í Morgunblaðinu í gær.
bjorgvin@mbl.is / helgivifill@mbl.is
SIGURGEIR Brynjar Kristgeirs-
son, framkvæmdastjóri Vinnslu-
stöðvarinnar, segir að útgerðin vilji
ekki taka þá áhættu að breyta er-
lendum gjaldeyri í krónur, þar sem
erlend lán séu á gjalddaga í haust.
Hann segir að hætta sé á að krónan
lækki í haust, og fyrirtækið gæti því
Heldur gjaldeyri ef krónan veikist
Framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar óttast að krónan veikist meira í haust
Háar fjárhæðir á gjaldeyrisreikningum sýna að gjaldeyri er ekki skipt í krónur
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
RAUNVIRÐI fyrirhugaðra kaupa
Geysis Green Energy (GGE) á 34,7
prósenta hlut Reykjanesbæjar í HS
Orku er háð þróun álverðs á næstu
sjö árum og munurinn gæti hlaupið á
milljörðum króna. Auk þess er virði
hlutar GGE í HS Veitum í samkomu-
laginu mun hærra en síðasta verð-
mat á honum gaf til kynna, þrátt fyr-
ir að breytingar á ytri aðstæðum
fyrirtækisins ættu að sýna minna
verðmæti fyrirtækisins.
Álverð getur lækkað virðið
Þetta kemur meðal annars fram í
minnisblaði sem Deloitte vann fyrir
Reykjanesbæ og var kynnt í bæj-
arráði í síðustu viku. Að mati Delo-
itte er raunvirði viðskiptanna, sem
kynnt hafa verið sem 13,1 milljarðs
króna virði, tæplega 11,5 milljarðar
króna. Þróun álverðsins hefur áhrif
á raunvirði skuldabréfs til sjö ára
sem í samkomulaginu er sagt greiða
fyrir 6,3 milljarða króna af kaup-
verðinu.
Það mat byggist þó á áætlunum
HS Orku um að þróun heimsmark-
aðsverðs á áli verði á þann veg að
tonn af málminum muni kosta
2.700 dali árið 2016 og miðar við tíu
prósenta ávöxtunarkröfu. Heims-
markaðsverðið er 1.643 dalir á
tonnið í dag og fór lægst í rúmlega
1.200 dali í janúar. Í minnisblaðinu
segir að ef þróun álverðs verður
sérlega óhagstæð á samningstím-
anum gæti raunvirði skuldabréfs-
ins lægst orðið 4,3 milljarðar króna
og raunvirði tilboðs GGE farið í 9,9
milljarða króna. Ef heimsmarkaðs-
verð á áli hækkar getur raunvirðið
hinsvegar orðið allt að 12,1 millj-
arður króna.
Tilboð GGE byggist á tveimur
verðmötum sem framkvæmd voru á
Hitaveitu Suðurnesja áður en henni
var skipt upp í HS Orku og HS Veit-
ur í desember í fyrra. Það miðar við
að sameiginlegt virði beggja fyrir-
tækjanna sé 52,2 milljarðar króna.
Um þriðjungur þess virðis sé í HS
Veitum (13,5 milljarðar króna) en
afgangur þess sé í HS Orku (38,7
milljarðar króna). Deloitte segir í
minnisblaði sínu að fyrirtækið
treysti sér ekki til þess að leggja
mat á hvort tilboð GGE sé viðun-
andi þar sem það telur „nauðsyn-
legt að endurskoða verðmat á bæði
HS Orku og HS Veitum miðað við
breyttar forsendur“.
Þær breyttu forsendur séu fyrst
og fremst gerbreytt efnahagsum-
hverfi. Hluti af samkomulagi
Reykjanesbæjar og GGE er að
bærinn kaupi 32 prósents hlut fyr-
irtækisins í HS Veitum á 4,4 millj-
arða króna. Morgunblaðið hefur
hins vegar heimildir fyrir því að í
nýjasta verðmati sem farið hefur
fram á HS Veitum, sem unnið var af
ráðgjafafyrirtækinu Arctica Fin-
ance og er dagsett 12. desember
2008, er heildarvirði hlutafjár HS
Veitna sagt 4,9 milljarðar króna.
Samkvæmt því mati er Reykjanes-
bær að greiða rúmum 2,8 milljörð-
um króna of mikið fyrir þriðjungs-
hlut GGE í fyrirtækinu.
Þróun álverðs stjórnar því
hvað Geysir Green greiðir
Reykjanesbær greiðir 2,8 milljörðum of mikið samkvæmt verðmati Arctica
Hitaveitan Enginn virðist vera með á hreinu hvers virði HS Orka, HS Veit-
ur og landsvæðin eru. Miklar pólitískar deilur geisa nú á Suðurnesjum.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Kauptilboð Geysis Green Energy í
hlut Reykjanesbæjar í HS Orku er
háð þróun álverðs. Nýjasta verð-
mat á HS Veitum sýnir að Reykja-
nesbær borgar allt of hátt verð
fyrir hlut í fyrirtækinu.
ANNAR aðaleig-
andi GGE er Gla-
cier Renewable
Energy Fund
(GREF) með 40
prósenta eign-
arhlut. Sá sjóður
er í umsjón Ís-
landsbanka og
bankinn á sjálfur
47 prósent í hon-
um. Stoðir, áður
FL Group, eiga 37,5 prósent og
Landsbankinn er á meðal annarra
eigenda. Kröfuhafar Stoða munu
eignast félagið að fullu á næstu vik-
um. Stærsti kröfuhafinn er skila-
nefnd Glitnis. Íslandsbanki á auk
þess handveð í öllum eignarhlut
GGE í HS Veitum og HS Orku og
þarf því væntanlega að samþykkja
allar breytingar á eignarhaldi á
þeim hlutum. Tveir fulltrúar
GREF, og þar með Íslandsbanka,
sitja í stjórn GGE.
Þegar Morgunblaðið leitaði til Ís-
landsbanka eftir upplýsingum um
hver aðkoma bankans að GGE væri
fengust þau svör að bankinn gæti
ekki tjáð sig um einstaka við-
skiptavini. Þegar spurt var hvað
ylli því að skilmálar skuldabréfs
upp á 6,3 milljarða króna sem GGE
ætlar að greiða Reykjanesbæ hluta
kaupverðsins með, fyrir 34 prósent
í HS Orku, skuli samþykkjast af Ís-
landsbanka fengust sömu svör.
Hinn aðaleigandi GGE er Atorka
með 41 prósents eignarhlut. Það fé-
lag er sem stendur í greiðslu-
stöðvun og heimildir Morgunblaðs-
ins herma að kröfuhafar þess muni
eignast það að fullu. Stærstu kröfu-
hafarnir eru skilanefndir Lands-
banka og Glitnis.
Ríkisbankar
ráða ferðinni
Íslandsbanki.
Íslandsbanki upp-
lýsir ekki aðkomu
HS Orka tapaði 11,7 milljörðum
króna í fyrra og eigið fé félagsins
nam 5,9 milljörðum en hafði ver-
ið um 20 milljarðar króna árið
áður. Þá hækkuðu skuldir fyr-
irtækisins úr 16,8 í 30,5 millj-
arða. Eiginfjárhlutfall HS Orku
nam 16,3%, en hafði verið
54,3% 2007. Í ársreikningnum
segir að hið lága eiginfjárhlutfall
geri það að verkum að HS Orka
uppfylli ekki lengur kröfur í lána-
samningum sínum. Þeir hafi því
heimild til að gjaldfella lán HS
Orku. Heimildir herma að þar sé
um að ræða Fjárfestingarbanka
Evrópu (EIB) og Norræna fjár-
festingarbankann (NIB).
Geta gjaldfellt lán
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.IS
VI
T
46
75
9
07
/0
9
VITA er lífið
Alicante
Flugsæti
Verð frá 7.900 kr.*
og 70.000 Vildarpunktar
fyrir flug fram og til baka,
með flugvallarsköttum 8. og 15. júlí.
* Verð án Vildarpunkta: 49.900 kr.
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
Kynntu þér ferðamöguleikana og skráðu þig
í ferðaklúbbinn á VITA.is
Sölutímabilið stendur til 15. júlí.
Takmarkað sætaframboð!
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
Dæmi um nýtingu Vildarpunkta:
Vildarpunktar verðmæti
70.000 42.000 kr.
40.000 24.000 kr.
15.000 10.000 kr.
Vissir þú að þú getur flutt Vildarpunkta
á milli reikninga og keypt Vildarpunkta
til að gefa öðrum?
Nánari upplýsingar hjá Vildarklúbbnum
á icelandair.is eða í síma 5050 100.